Dagblaðið - 20.10.1976, Blaðsíða 13
UAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. OKTOBER 1976.
___________wgrngKF.
HHI
xýliiM
þróttir
róttir
Evrópukeppnin í knattspyrnu:
Meistorar Boyern
með erfiðan leik
Það verður knattspyrna um alla
Evrópu í dag og kvöld — leikið
frá írlandi í vestri til Georgíu í
Sovétríkjunum í austri. Önnur
umferð í Evrópumótunum þrem-
ur.
I Evrópubikarnum — keppni
meistaraliða — beinist athyglin
einkum að þremur leikjum.
Bayern Munchen, sem stefnir að
sigri í keppninni fjórða árið í röð,
fær erfiðan leik í Tékkóslóvakíu
gegn Banik Ostrava. Eftir
tapleikinn hroðalega gegn
Schalke í Bundeslígunni á
dögunum vann Bayern athyglis-
verðan sigur í þýzku bikar-
keppninni á laugardag. Sigraði
þá Hamborg með 5-1. Svíinn
Thorstensson var aðalmaður
Bayern gegn Hamborg og skoraði
tví vegis. Banik-liðið hefur mörg-
um tékkneskum landsliðsmönn-
um á að skipa.
Liðin, sem léku saman í undan-
úrslitum í vor, St. Etienne,
Frakklandi, og PSV Eindhoven,
Hollandi, mætast I kvöld I Frakk-
landi. Hvorugt þeirra hefur staðið
sig vel í deildakeppninni
heimafyrir í haust. PSV vann þó
stórsigur á sunnudag — en St.
Etienne gerði aðeins jafntefli
heima og verður án fyrirliða síns.
Jafnvel tveggja annarra
l.vkilmanna. Þá leika þýzku
meistararnir Borussia gegn Torino
og verður leikið á ttalíu. Það er
athyglisverður leikur, svo og
leikur Dynamo Dresden gegn
Fcrensvaros.
Ensku meistararnir, Liverpool,
leika í Tyrklandi við mótherja
Akurnesinga úr 1. umferðinni,
Trabzonspor. Liverpool ætti
auðveldlega að komast í 3.
umferð. Real Madrid leikur á
Spárii — ekki heimavelli vegna
banns UEFA — gegn Brugge,
Belgíu, og leikmenn Dynamo Kiev
verða áreiðanlega fullir sjálfs-
trausts gegn gríska liðinu PAOK
frá Saloníka.
í keppni bikarhafa verður aðal-
leikurinn milli Atletico Madrid
og Hadjuk Split, Júgóslavíu.
Meistarar Anderlecht leika við
Galatasarey, Tyrklandi. og það
ætti að verða léttur leikur fyrir
þá.
í UEFA-keppninni verða
margir stórleikir — en athyglin
mun þó einkum beinast að
viðureign Manch. Utd. og
Juventus, Ítalíu. Í fyrstu
umferðini sló Juventus Manch.
City út. Lou Macari hefur náð sér
eftir meiðslin, sem hann hlaut
gegn WBA á laugardag og leikur
með Manch. Utd. — en það verður
ekki fyrr en rétt áður en leikur
hefst að ákvörðun verður tekin
hvort Martin Buchan leikur eða
ekki. Buchan, fyrirliði Manch.
Utd., gat ekki leikið gegn WBA á
laugardag vegna meiðsla, sem
hann hlaut i landsleik Skota við
Tékka sl. miðvikudag og í fjar-
veru hans var vörn United afar
slök. Derby County, sem skoraði
átta mörk gegn Tottenham á
laugardag, leikur í Aþenu og þar
tekur Bruce Rioch aftur stöðu
sína I Derby-liðinu sem fram-
vörður. Hann var framherji á
laugardag og skoraði þá fjögur
mörk — en greinilegt á liðsskipan
Derby, að MacKay telur sig ekki
geta án hans verið í vörninni,
þegar leikið er á útivelli í Evrópu-
keppni.
Allt á af turf ót-
unum hjá Holbœk
Allt gengur nú á afturfótunum
hjá sjálenzka liðinu Holbæk í 1.
deildinni dönsku. Liðið hefur
aðeins hlotið eitt stig af tíu mögu-
legum i síðustu fimm leikjum
sínum. Hrapað úr 1. sæti niður
það fimmta og möguleikar á
meistaratitlinum áreiðanlega úr
sögunni.
Atli Þór Héðinsson, miðherjinn
kunni úr KR, sem lék í aðalliði
Holbæk lengi vel í vor og framan
af sumri, hefur ekkert leikið þar I
haust, en þrálát meiðsli hjá
honum settu þar strik í reikning-
inn. a sunnudaginn tapaði
Holbæk í Ve.jle 2—0. Keppnin um
meistaratitilinn er mjög hörð.
Þrjú Kaupmannahafnarlið eru í
efstu sætunum. B1903 efst með 35
stig, aðeins stigi á undan Frem, og
tveimur á undan KB — Köben-
havn Boldklubb. Frem vann
Vanlöse 3—0 á sunnudag, KB
vann Kastrup 1—0. en B1903
gerði jafntefli á útivelli við
Fremad Amager 2—2.
Staðan er nú þannig
eftir leikina á sunnudag:
1. deitd
B1903
Frem
KB
/vaB
Holbæk
Vejle
OB
B1901
Köge
Esbjerg
B93
Kastrup
Næstved
26 14
26 15
26 15
26 13
26 13
26 14
26 13
26 12
26
26
26
26
26
Fremad A. 26
R. Freja
Vanlöse
26
26
47- 27
41-19
50-33
45-36
35-28
50-34
44-37
48- 44
32-34 25
32-40 22
32- 39 21
31-40 21
33- 44 20
29-46 18
33-48 17
41-72 16
35
34
33
32
32
31
31
28
Leiknar eru 30 umferðir. í 2.
deild hefur Fredrikshavn svo gott
sem tryggt sér sæti í 1. deild’
næsta leiktímabil. Hefur 34 stig
eftir 26 leiki. AGF-Árósaliðið
kunna hefur 30 stig, en síðan
koma B1909, Óðinsvéum, og
Herfölge með 29 stig.
Frá Sill'urncsvclli i llornafirði
deildinni í kvöld
Tveir leikir í 1.
Hátt er stokkið! — Hæsti maðurinn i Valsliðinu, Þorbjörn Guðmundsson,
gnæfir yfir Árna Guðjónsson í leik FH og Vals i Hafnarfirði á mánudagskvöld.
Valur vann öruggan sigur og mjög þýðingarniikinn á útivelli, 15—20. Þor-
björn skoraði fjögur af mörkum Vals — og hefur skorað 15 mörk í þremur
f.vrstu leikjum Vals í 1. dcildinni. Hann er þó ekki markhæstur leikmanna
Vals. Jón Karlsson hefur skorað 16 mörk — fimm þeirra úr vítum. Þorbjörn
hefur skorað tvö af sínum mörkum úr vítaköstum. Þriðji markhæsti leik-
maður Vaisliðsins er Jón Pétur Jónsson, sem skorað hefur 12 mörk.
Fjögur Reykjavíkurliðanna verða í
sviðsljósinu í 1. deildarkeppninni í
handknattieik i kvöld í Laugardals-
höllinni og þar má búast við tvísýn-
um leikjum.
Fyrst leika Reykjavíkurmeistarar
Þróttar við Fram og hefst leikurinn
kl. 20.00. Bæði liðin leika skemmileg-
an handknattleik — léttan og lipran
— og þó kannski fleiri reikni með
sigri Fram kæmi ekki á óvart þó
Þróttur næði báðum stigunum í
leiknum. Til þess þarf Þróttur að ná
sínum bezta ieik — betri en i tveimur
f.vrstu leikjum liðsins á mótinu. Lið
Fram er líklegt til að blanda sér mjög
í baráttuna um íslandsmeistaratitil-
inn.
Síðari leikurinn í kvöld
verður milli IR og Víkings —
af.ar opinn leikur, þar sem sigurinn
fellur því liði í skaut, sem meiri bar-
áttuvilja sýnir. I Reykjavíkurmótinu
á dögunum vann ÍR Víking með litl-
um mun, en Víkingsliðið með rnarga
snjalla leikmenn er hættulegt hvaða
liði sem er. Markvarzlan hefur verið
aðalvandamál liðsins í haust.
ÍR b.vrjaði mjög vel í f.vrsta leik
sínum — sigraði þá islandsmeistara
FH, en tapaði illa I næsta leik gegn
Val. Víkingur hefur aðeins leikiðeinn
leik. Tapaði gegn Haukum 1 Hafnar-
firði. Þetta verður leikur stemmn-
ingsliða, þar sem allt getur skeð — og
spenna ætti að verða mikil fyrir
áhorfendur.
Lugi vann Guif
Sænski iandsliðsmaðurinn
Claes Ribendahl — vei studdur á
þýðingariniklum augnabiikum af
islenzku leikmonnunum Jóni
Hjaltaiín Magnússyni og Guðjóni
Magnússvni — var óstöðvandi,
þegar Lugi sigraði Guif 22-16 í
ÁUsvenskan á sunnudag. Skoraði
11 mörk, skrifar Dagens Nyheder.
Staðan í hálfieik var 10-5 fyrir
Lugi og áhorfendur í Lundi voru
1183.
Heim er eina liðið, sem sigrað
hefur í báðum leikjunum i
tveimur fyrstu umferðunum. Er
því með 4 stig. Lugi. Hellas,
Ystad og Kristianstad hafa 3 stig.