Dagblaðið - 20.10.1976, Side 14
14
OACBLAÐIt). MIÐVIKUDAíiUK 20. OKTÓBER 1976.
Stuðmenn brugðust ekki
bjðrtustu vonum fólks
„Er ekki allt á sínum stað." gæti Tómas stuðkarl hafa sagt er hann
skipti um föt i búningsherberginu eftir skemmtunina. DB-myndir
Arni Páll.
Visitasíu Stuðmanna um
föðurlandið lauk síðasta laugar-
dag í samkomuhúsinu Borg í
(irimsnesi. A fimmtudaginn
skemmti hl.jómsveitin á Hótel
Sögu. Mikið f.jiilmenni var sam-
an komið það kvöldið til að
horfa ekki siður en að hlusta á
hl.jómsveitina og tæplega hefur
nokkur maður farið þaðan súr á
svipinn.
Auk Stuðmanna s.jálfra komu
l'ram þeir Skafti og Jóhannes,
eftirhermusöngkona sem
gleymdist því miður að fá
nafnið á og siðast en ekki sízt
þau Sæmi rokk og Br.vn.ja Nord-
quist. Auk þess var efnt til
spurningakeppni og kosinn var
herra Reykjavík.
Stuðmennirnir s.jálfir voru ,,i
fínu formi", eins og segir í einu
laga þeirra. Þeir léku á als oddi
og gerðu óspart grín að þjóð-
félaginu eins og ven.julega. Eini
galli kvöldsins var hljóm-
burðurinn og mátti hann vart
lélegri veraþvi að þá hefðu
samkomugestirnir ekki greint
orð á sviðinu. Orsök þessa er of
lítið söngkerfi. sem bar ekki
jafnstóran sal og Súlnasalinn.
að þvi ógleymdu að þar var
troðfullt.
Öskandi væri að við Islend-
ingar ættum fleiri hljómsveitir
sem gætu virkilega skemmt
okkur. Stuðmenn og Lónlí Blú
Bojs eru ekki nóg. Þessar
hljómsveitir koma aðeins fram
einu sinni á ári og það er ekki
nóg. — En samt; beztu þakkir,
Stuðmenn og Lónlí Blú Bojs.
Þið björguðuð stöðnuðu dægur-
tónlistarlífi landsins þetta árið.
Það leyndi sér ekki á útliti Ragnars Sigurjónssonar tronunara að
hann hefur einhvern tiina leikið í hl.iómsveit sem hét Mexikó.
ASGEIR
TÓMASSON
Verðum að loka
á laugardags-
kvökfum vegna
ónógrar þátt-
TCMCIf L Árnason formann ÍUT J
„X'ið hófum diskótekstarf-
semina h.já okkur í Templara-
höllinni upp úr 20. september,
— eins konar tilraunastarfsemi
á föstudögum og laugardög-
um,“ sagði Halldór Árnason
formaður tsl. ungtemplara
er Dagblaðið ræddi við hann
fyrir stuttu. „Föstudagskvöldin
eru fyrir unglinga, 13 ára og
eldri. og þau hafa gengið mjög
vel. Aldurstakmarkið á laugar-
dagskvöldum hefur verið 15 ár
en þau hafa ekki borið jafn-
góðan árangur. Sannast að segja
hofur vt-rið hálftóint h.já okkur.
Ef við tökum sem dæmi
síðustu helgi þá voru um 50
manns h.já okkur þegar mest
var og um 200 í Tónabæ. A
föstudagskvöldið var hins
vegar fullt í Templarahöllinni."
Hvað veldur?
„Það er örugglega engin ein
skýring til á því hvers vegna
unglingarnir notfæra sér ekki
þá staði sem eru opnir fyrir þá
meir en raun ber vitni," svaraði
Halldór spurningunni um
hvers vegna unglingar væru sí-
fellt að biðja um að eitthvað
yrði gert fyrir sig en notfærðu
sér síðan ekki þá aðstöðu sem í
boði væri.
„Eg held fyrir mína parta að
inikill hluti þeirra safnist
saman í heimahúsum og haldi
partí. Talsverður hópur er
sjálfsagt stilltur og prúður á
heimilum sínum.
Þú spyrð hvort nafn staðar-
ins — Templarahöllin — fæli
gesti frá. Eg get eiginlega
ekkert sagt um það. Hjá okkur
hefur að sjálfsögðu alltaf rikt
strangt áfengisbann og ég er
þess fullviss að því sé helzt að
þakka að við höfum aldrei átt í
neinum erfiðleikum hjá okkur,
hvorki utan dyra né innan."
Reykingar leyfðar
„Við höfum hins vegar ekki
farið út í að banna reykingar.
Eldri aldurshópnum er leyft að
reykja í danssalnum en yngri
krakkarnir verða að fara úr
salnum og upp á pall, vilji þeir
fá sér að reykja.
I vetur höfum við eingöngu
starfrækt diskótek fyrir krakk-
ana. í fyrra fengurn við öðru
hvoru hljómsveitir til að leika
hjá okkur en það gafst ekki
nógu vel. Hins vegar höfum við
farið út i nokkrar nýjungar til
að laða að. Til dæmis höfðum
við rokkkvöld á laugardags-
kvöldið þar sem gestir áttu að
koma í gömlu fötunum sínum
og með tagl og briljantín í hár-
inu. Árangurinn varð ekki betri
en ég sagði áðan.
Við verðum að taka um það
ákvörðun mjög fljótlega hvort
við verðum að leggja laugar-
dagsdansleikina niður vegna
ónógrar þátttöku. Húsið er
nokkuð ásetið á laugardögum
og margir sem vildu komast að í
staðinn."
Æskulýðsróð gegnir
ekki sínu hlutverki
„Það þarf áreiðanlega margt:
að bæta til að einhver árangur
náist í að fullnægja skemmt-
anaþörf unglinganna," sagði
Halldór Árnason að lokum.
„Það skortir alla samstöðu
hinna ólíku hópa sem fást við
þetta hlutverk. Ég tel að þar
eigi Æskulýðsráð Reykjavíkur
að ganga fram fyrir skjöldu og
hafi í raun og veru átt að gera
fyrir löngu.“ _ At
Það var heldur tómlegt um að litast i Templarahöllinni er Dagblaðsmenn litu þar inn skömmu eftir
miðnætti á laugardagskvöldið. DB-mvnd Arni Páll.
Ekkert var dansað á Stuð-
mannaskemmtuninni á Sögu.
Tvær ungar stúlkur stóðust þó
ekki mátið og brugðu á leik
innan um hljómsveitina.