Dagblaðið - 20.10.1976, Side 24

Dagblaðið - 20.10.1976, Side 24
r # ............ Hvað fó þeir fyrir nefndastörfin? Guðmundur Skaftason f ékk 1,3 milljónir Guömundur Skaftason lög- fræðingur hefur fengið allra manna mest greitt sem þóknun og laun fyrir störf í nefndum, st.iórnun og ráðum ríkisins. Hann fékk á síðasta ári 1.303.822 krónur fyrir þetta, þar af meginhlutann. 810.019 krðnur, fyrir formennsku i ríkisskattanefnd. Jóhannes Nordal Seðla- bankastjóri fékk þá 880.844 krónur og var í öðru sæti. Þessir tveir menn voru ekki í; mörgunt nefndum miðað við suma aðra, eins og fram kom í blaðinu í gær. Sá, sem í flestum nefndum er, Már Elísson fiski- málastjóri fékk til dæmis „aðeins“ 495.820 krónur greidd- ar fyrir vikið. Af öðrum, sem ntikið fengu greitt, má nefna Egil Sigur- geirsson hæstaréttarlögmann, sem fékk 837.073 fyrir for- mennsku í matsnefnd eignar- námsbóta. Sigurður R. Símonarson kennari fékk 755.998 fyrir formennsku í prófanefnd og Lík íslendings fannst í Slésvík — fór utcm i ágúst og hafði ekki verið saknað Lík af fullorðnum Islendingi fannst um helgina i Flensborg- arhöfn í Slésvík í norðurhluta Þýzkalands. Mannsins hafði ekki verið saknað hér heima, enda einstæðingur og engum háður. Skilríki sem fundust á líkinu bentu til þess að um íslending væri að ræða og var send fyrirspurn til Islands um það hvort þessa tiltekna manns væri saknað. Að sögn Hauks Bjarnasonar rannsóknarlögreglumanns kom kom í ljós við athugun igærað rnaður með þessu nafni fór úr landi í águst sl. og ætlaði að ferðast um Danmörku, Svíþjóð og Vestur-Þýzkaland. Hefur nú verið staðfest að líkið sem fannst er af honum. Maðurinn var 57 ára gamall og starfaði sem timburaf- greiðslumaður í Reykjavík. Rannsókninni verður haldið áfram ytra og hér heima. -ÖV. Á móti ólveri við Eyjafjörð: — segir Jón Sólnes „Það er skoðun mín að álver rísi ekki í Eyjafirði,“ sagði Jón Sólnes, alþingismaður og bæjarfulltrúi á Akureyri í við- tali við Dagblaðið í morgun. Hann bætti því við að hann hefði enn sem komið væri ekki kynnt sér kosti þess né galla. enda væri málið enn á algjöru umræðustigi, en ntiðað við undirtektir almennings væri Karvel sparkað Alþýðubandalagið ýtti Kar- vel Pálmasyni.Samtökunum.út úr fjárveitinganefnd Alþingis i gær. Karvel var í fyrra á lista með Alþýðubandalagsmönnum við kosningar í nefndina, en nú voru kosnir tveir Alþýðubanda- lagsmenn í stað eins. Lúðvík Jósepsson (AB) sagðist ekki vilja styrkja Karvel, sem væri „Ég er enginn stóriðjumaður" þetta sitt mat. Það væri margt sem mælti gegn því. „Ég er enginn stóriðjumaðúr en hef alls ekkert á móti því að fá erlenda aðila og þá peninga til uppbyggingar hér á landi," sagði Jón Sólnes og vildi þá leggja áherzlu á gæðaiðnað og hagkvæma nýtingu í eðlilegri bvggðaþróun. -EVI. kominn hálfur í Alþýðuflokk- inn. Karvel sakaði Alþýðubanda- lagsmenn um að hafa brotið munnlegt samkomulag þing- flokka frá árinu 1974, þegar fjölgað var i nefndinni, þess efnis að allir þingflokkar skyldu eiga menn í nefndinni. — HH lenzkt séi Það er sannarlega skoplegt að hluti verzlunar í Reykjavík skuli fara fram á þann hátt er myndin sýnir. Árni Páll tók þessa mynd við gat í Þingholts- stræti en svona eöt eru um all- ritari þeirrar nefndar, Ingunn Tryggvadóttir, laut 747.287 krónur. Torfi Asgeirsson, deildar- stjóri í mennta- málaráðuneytinu, hlaut alls 748.069 kr. fyrir störf í þeim mörgu nefndum, sem hann á sæti í. Guðlaugur Þorvaldsson Háskólarektor fékk 727.073 krónur fyrir sínar nefndir og Ölafur Björnsson prófessor 717.085 krónur. -HH. an bæ. Það merkilegasta er að þau eru tilkomin vegna ákvörðunar borgarstjórnar. Is- lendingar eru fyrir margra hluta sakir sérstæðir meðal þjóða. DB-mynd Arni Páll. frýálst, úháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 20. OKT. 1976 Brúargerðar- maður drukknaði i Borgarfirði Gúmbát með tveimur mönnum innanborðs hvolfdi við brúarsmíðina á Borgar- firði um ntiðjan dag í gær með þeim afleiðingum að annar þeirra, liðlega tvítug- ur Akurnesingur, drukkn- aði. Hinum var bjargað og var hann mjög þrekaður og kaldur er hann náðist á land. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Borgarnesi var hann ekki talinn í lífs- hættu. Víðtæk leit var hafin að Akurnesingnum strax í gær en þarna á firðinum er mjög straumhart. Strax í birtingu í morgun var hafin leit að nýju. Eru það björgunar- sveitirnar úr Borgarfirði og frá Akranesi, auk starfs- manna vegargerðarinnar sem taka þátt i leitinni. A.Bj. Þyrstir þjóf- ar ó Vellinum Fingralangir og þyrstir náungar brutust inn í vöru- skemmu fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli aðfara- nótt sunnudags og nældu sér í þrjátíu og sjö viskíflöskur. Brotizt var inn i kyndi- klefa með þeim hætti að vír- net sem var fyrir loftinntaki var rifið frá að utanverðu. Inni i kyndiklefanum er annað loftop einnig með vír neti. Það net hafði verið tekið frá að nokkru leyti, þó ekki meira en svo að rétt mátti teygja hendi inn fyrir og næla í flöskurnar sem stóðu þar skammt fyrir innan. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Keflavíkur- flugvelli hafa nú þegar nokkrir menn verið yfir- heyrðir í sambandi við þetta mál en ekki lágu játningar f.vrir i morgun. —A.Bj. Ökumaðurinn slapp — í bili I gærkvöld um hálf ellefu leytið ætlaði lögreglan að hafa tal af ökumanni Mosk- vitchbifreiðar í miðbænum, en ökumaður sinnti ekki stöðvunarskyldu. Leikurinn barst um miðbæinn og í Þingholtunum bilaði lög- reglubíllinn, þannig að Moskvitchinn hvarf út i nátt- rnvrkrið. Lögreglan hefur númerið á honum. -A.Bj. LÝST EFTIR GUNNARI ELÍSSYNI UM ALLT ÞÝZKALAND sambandi við lögregluna „Myndir af Gunnari Elissym birtust í Frankfurtblöðunum í Vestur-Þýzkalandi í gær og hefur nú verið lýst eftir honum um allt Þýzkaland,“ sagði Nils P. Sigurðsson ambassador i við- tali við Dagblaðið i morgun. Hann kvaðst vera í stöðugu sambandi við lögregluna út af þessú mannshvarfi og hefði enn ekkert komið fram sem varpaði nýju ljósi á það. Til Gunnars Elíssonar hefur ekkert spurzt siðan um hádegi á priðjudag i sioustu viku, hinn 12. október. Samkæmt frásögnum þýzkra blaða er talið að Gunnar hafi leitað fyrir sér um kaup á ein- hvers konar byggingarkrana í Diisseldorf og að hann hafi verið með talsverða peninga meðferðis vegna þeirra kaupa. Hafa verið nefnd 20 þúsund þýzk mörk í því sambandi. „Það má telja til undantekn- inga ef gjaldeyris.vfirfærslur til tækjakaupa eru veittar á þann hátt sem hér virðist um að ræða, ef rétt er frá skýrt," sagði Sigurður Jóhannesson, for- stöðumaður gjaldeyriseftirlits Seðlabankans, í viðtali við fréttamann DB í gær. Sérstök nefnd fjallar um slík undan- tekningartilvik og á Sigurður sæti í henni. Kveðst hann ekki kannast við neina afgreiðslu þeirrar nefndar sem geti gefið bendingu um þau kaup sem að var vikið. Er nú rannsakað hvort yfirleitt nokkurs konar yfirfærsla á gjalde.vri nafi farið fram til véla- eða tækjakaupa Gunnars EHssonar. Faðir Gunnars Elíssonar hefur með höndum verk f.vrir Byggung, Byggingarfélag ungra sjálfstæðismanna, í Kópavogi. Hefur Gunnar starfað hjá föður sínum en á alls enga aðild að verktaka- fyrirtæki hans eða starfsemi. Dagblaðið hefur áreiðanlegar heimildir f.vrir því að umrædd hugsanleg kaup Gunnars á byggingarkrana í Þýzkalandi voru ekki á vegurn föður hans eða þess aðila sem hann vinnur fyrir. Hvorki föður hans né talsmönnum Byggung er kunn- ugt um nein tækja- eða krana- kaup Gunnars. Rannsóknarlögreglan i Revkjavík hefur ekki haft rannsókn þessa mannshvarfs með höndum. BS.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.