Dagblaðið - 22.10.1976, Síða 9

Dagblaðið - 22.10.1976, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1976. 9 Stuðnlngsmenn Oskars hafa gefið upp boltann með símskeytadrífu Væntanlega munu stuðningsmenn Karls Steinars svara i sömu mynt. Húsgagnadeild Jón Loftsson hf. t03S3 iiigai CDDDDO CZ EU L_I Dj lD □ SJ-1. Hringbraut 121 Sími 28601 Sjómenn velja sér foringjo: FLOKKADRÆTTIR 0G STUÐNINGS- YFIRLÝSINGAR 235 sjómenn á 21 togara hafa með skeytum lýst yfir stuðningi við kjör Óskars Vigfússonar sem forseta Sjómannasambands tslands. Talið er að Jón Sigurðs- son, sem lengi hefur gegnt forsetastarfinu, gefi ekki kost á sér til þess lengur. I Dagblaðinu hefur verið skýrt frá því að auk Óskars hafi verið rætt um Karl Steinar Guðnason, formann Verkalýðs- og sjómanna- félags Suðurnesja, sem líklegan formann Sjómannasambandsins. Vera má að fleiri komi þar til greina. Togararnir, sem skeyti bárust frá um áður greindan stuðning við Öskar Vigfússon, eru þessir: Júnl, Jón Vídalín, Runólfur, Þormóður goði, Otur, Vigri, Maí, Sléttbakur, ögri, Engey, Harð- bakur, Kárlsefni, Kaldbakur, Erlingur, Hjörleifur, Guðsteinn, Haraldur Böðvarsson, Guðmund- ur Jónsson, Aðalvík, Dagstjarnan. og Framtíðin. Rétt er að geta þess að stuðn- ingsmenn Óskars Vigfússonar, einkum úr röðum hafnfirzkra sjó- manna, hafa gengizt fyrir því að afla áður getinna traustsyfirlýs- inga. Ekki hefur DB haft spurnir af hliðstæðum aðgerðum vegna Karls Steinars. —BS Fjáröflunardagur Landssambands islenzkra barnaverndarfélaga Stuðla að velferð barna og bœttum hag Barnaverndarfélagið í Reykja- vík átti til dæmis mikinn þátt í því að Skálatúnsheimilið komst upp. Þá var einnig lagt fé í heimilissjóð taugaveiklaðra barna upp úr 1960 sem efldist mjög mikið með erfðagjöfum og árlegu söfnunarfé. Gaf félagið að hálfu með kvenfélagi Hvítabandsins húsið að Kleifarvegi 15 þar sem rekið er meðferðarheimili fyrir börn á grunnskólaaldri sem eiga við hegðunar- og/eða geðræn vandkvæði að stríða. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi hjá Landssambandi íslenzkra barnaverndarfélags (LÍB) en i því eru 8 félög, en Reykjavíkurfélagið er langfjöl- mennast. Önnur félög á landinu hafa styrkt mjög dagheimili í sinu byggðarlagi og jafnvel komið þeim upp. llinn árlegi fjarsöfnunardagur LlB er á morgun, fyrsta vetrar- dag. Markmið allra félaganna er eitt og hið sama: að stuðla að velferð barna og bættum hag þeirra. Barnaverndarfélag Reykjavikur hyggst verja því fé, sem safnast til að veita þvi fólki, sem hyggst sérmennta sig (einkum erlendis) til hjálpar- starfs fyrir börn o& unglinga myndarlega námsstyrki og styrkja einstaka stofnanir. Loks mun hluta af fénu verða varið til að kosta þau verkefni sem LlB hefur á prjónunum. LlB er til húsa að Skólavörðu- stíg 2. Sími er 21442, gíró númer 22022. Barnaverndarfélag Reykjavíkur er til húsa á sama stað. Skólabörn munu selja merki og Sólhvörf fram yfir hádegi, en Sólhvörf er að þessu sinni gerð af Barnaverndarfélagi Hafnar- fjarðar og er efnið að mestu eftir Stefán Júlíusson. Ætlunin er að fullorðnir félagar selji merkið á laugardagskvöldið við skemmti- staöi og aðra samkomustaði. —EVI Feikilegt úrval — Mjúkt og þœgilegt leður Midbæiarmarkadi Hád egi s

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.