Dagblaðið - 22.10.1976, Page 16
lfi DACRLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. OKTÖBER 1976.
ÓMAR
VALDIMARSSON
ASGEIR
TOMASSON
Keith Richard
týndi buxunum
— og fékk 30 þús. krona sekt
Keith Richard — annar gítar-
leikarinn í Rolling Stones er
staddur í London um þessar
mundir. Þar dugir honum auð-
vitað ekkert minna en heill
Rolls Royce til að komast á
milli. En þrátt fyrir þessa auð-
legð á Keith ekki nema einar
buxur til að ganga í.
Þessi buxnafátækt gítarleik-
arans kostaði hann heilar
30.000 krónur fyrir skömmu.
Keith átti nefnilega að mæta
fyrir rétti vegna þess að hann
hafði verið handtekinn með
LSD og kókaín í fórum sínum.
Réttarhöldin töfðust í þrjár
klukkustundir á meðan einka-
bílstjóri Keiths fór að kaupa
nýjar buxur handa honum.
Dómaranum fannst rétt að
áminna gítarleikarann og refs-
aði honum því með fjársekt-
inni.
í réttarsalnum skýrði Keith
Richard svo frá að hann hefði
sent öll sín föt í hreinsun
kvöldið áður en hann átti að
mæta fyrir dómstólunum. Allt
tauið hcfði komið til baka —
nema buxurnar. „Ég þorði
ómögulega að mæta fyrir rétt-
inum buxnalaus," sagði Keith,
„og það tók bílstjórann minn
Keith Richard: buxurnar týnd-
ust í hreinsun.
vitanlega talsverðan tíma að
finna nýjar buxur.“
Að sjálfsögóu valdi bílstjór-
inn buxur handa Keith í stíl við
Rollsinn og mætti hann þvi í
skærgulum buxum. — Keith
Richard var síðan látinn laus
gegn 1,6 milljón króna trygg-
ingu vegna eiturlyfjanna.
Það geispar enginn
hjá
á tónleikum
David Essex
+ allt þetta fólk sér fyrír því
„Eg hef aðeins farið á tónleika
S—10 sinnum á ævinni og í öll
;kiptin hefur mér hundleiðzt,"
;egir enska poppstjarnan David
Essex. Oa hann hefur skvríngima
á reiðum höndum: Þar gerist of
lítið.
Essex hefur hins vegar oft
leikið á tónleikum j>g dregur þá
ályktun að einshljóti aðvera farið
fyrir áheyrendum hans og honum
sjálfum þegar hann. er áheyrandi.
Essex hefur því ráðið sér og
undirleikurum sínum til aðstoðar
heilan flokk af trúðum, fimleika-
fólki og öðrum sem vinna við
sirkus. Með þessu telur hann
tr.vggt að enginn geispi af leiðind-
um meðan á tónleikunum stend-
ur.
eru hörkuvinna
Trommuleikarinn Artimus
Pyle lét „pressuna" gossa á
Hiltonhótelinu í Macon. Hann
Engin bandarísk rt>kkhljómsveit
er sögð leggja jafn hart að sér
(eða hafa hærra) en L.vn.vrd
Skynyrd, sjö manna hljómsveit
frá Jacksonville í Flórída. Þeir
koma sjaldan heim. Tónlist þeirra
er blanda af enska „hard'1-
rokkinu og léttum bandarískum
sveitablús. Það kemur fyrir að
tónlistin tekur fram fyrir
hendurnar á ljóðinu en þannig
vilja ungir áheyrendur
hljómsveitarinnar líka hafa það.
Hljómsveitin er skírð i höfuðið á
ieikfimikennara liðsmanna
hennar úr gagnfræðaskóla, þ.e.
framburðurinn ekki staf-
setningin. Þeir hafa selt þrjár
milljón plötur. Fimmta breiðskífa
hljómsveitarinnar, One More For
the Road. hefur selzt í 350 þúsund
eintökum siðan hún kom út fyrir
mánuði.
Flestar rokkhljómsveitir verða
að vera á stöðugum hljómleika-
ferðalögum til að halda sér á floti.
„Pyntingaraðferðir" Lynyrd
Skynyrd eru orðnar að þjóðsögum
vestra. Það kemur fyrir að
hljómsveitin haldi tvö hundruð og
fimmtíu hljómleika á þrjú
hundruð dögum á ferðalagi.
Á niutíu og fimm daga tímabili á
síðasta ári kom hljómsveitin fram
á 88 stöðum, eitt kvöld á hverjum
stað. Fyrr í þessum mánuði fóru
þeir um fjögur af vesturf.vlkjum
Bandarikjanna og héldu fimm
hljómleika á sjö dögum. Þessi
ferðalög taka sinn sálræna toll.
„Eftir nokkurn tíma verður
maður ringlaður," sagði
söngvarinn Ronnie Van Zant, 27
ára gamall, í samtali við News-
week fyrir skömmu. „Hugur og
likami gefast upp."
Morguninn-eftir vandamál eru
erfiðust. En dálítið amfetamín
leysir þann vanda fyrir morgun-
verð. Dálítið viskí gerir
ferðalagið á milli hótela
bærilegt og ein kampavínsflaska
kemur öllum í gott form fyrir
hljómleikana um kvöldið. „Þetta
er skitt líf, en til hvers að hafa
áhyggjur af því?" segir Van Zant.
„Við drögum aðallega að okkur
drukkið fólk og órólega krakka
sem vilja hrista sig dálítið."
Liðsmenn hljómsveitarinnar fá
útrás með „einföldu" ofbeldi.
Þeir hafa sameiginlega safnað
dágóðum lista yfir handtökur
fyrir árás á lögregluþjón og að
hafa amfetamín í fórum sínum
svo eitthvað sé nefnt. I fyrra
eyðilögðu félagarnir i Lynyrd
Skynyrd meira en helminginn af
öllum leikfimitækjum og vélum á
Spence Manor Hotel í
Nashville. Nýlega gerðist það í
Bristol í Englandi að Van Zant
henti eikarborði út um glugga á
fimmtu hæð hótels þar. „Við
vorum bara að skemmta okkur,
létta af okkur pressunni," sagði
hann síðar. „Það var fyndið þegar
löggurnar komu inn og horfðu á
okkur eins og við værum brjálaðir
hundar." En það var ekki mjög
fyndið þegar bassaleikarinn Leon
Wilkeson henti brotnum gítar
sínum út í áheyrendasalinn með
þeim afleiðingum að ung stúlka á
fremsta bekk meiddist stórlega í
andliti.
Lynyrd Skynyrd á hljómleikum: landsfræg „pyntingar" ferðalög þrjú
hundruð daga ársins. Það tekur sinn sálræna toll.
hafði beðið herbergisþernuna um
íste, sem hann og fékk — en
sykurlaust. Það féll honum ekki i
geð. „Fyrst eyðilagði ég dyrnar,"
segir hann frá. „Ég reyndi að
henda sjónvarpstækinu út um
gluggann en það komst ekki út.
Þá eyðilagði ég allt annað." Hann
andvarpar: „Uff, það er alltaf svo
miklu betra án spennunnar."
Ferðastjóri hljómsveitarinnar,
Ron Eckerman, aðeins 24 ára,
gengur með ávísanahefti með 40
þúsund dollurum (7.5 millj. kr.)
og tvö þúsund dollara í seðlum til
að afgreiða smámálin. Hann
greiðir umyrðalaust alla
reikninga fyrir unnum skemmd-
um, sem mánaðarlega nema um
þúsund dollurum, eða 188 þús.
krónum. Það græðir þó ekki öll
sár. í mörgum borgum er ástandið
þannig að ekkert stærri og betri
hótelanna vill hýsa Lynyrd
Skynyrd. Þegar hljómsveitin
leikur í Atlanta, Georgíu þarf hún
til dæmis að gista á sumardvalar-
stað í klukkustundar aksturs
fjarlægð. Wilkeson hefur ekki
áhyggjur af því. „Við erum heitir
núna" segir hann. „Höldum
áfram."
SIGGIKARLS í GIFSI
A.M.K. MÁNUÐ ÍNN
Brotin á úlnliðum Sigurðar
Karlssonar trommuleikara
Celsíusar ætla að gróa seint.
Sigurður fór í rannsókn í síð-
ustu viku og þá var hann settur
í gifs á báðum höndum, sem
ekki á að taka fyrr en í fyrsta
lagi eftir mánuð.
„Maður er að verða vitlaus á
aðgerðaleysinu;" sagði Sig-
urður er DB ræddi við hann.
„Ég get nákvæmlega ekkert
gert með höndunum. Og ekki
bætir það úr skák að maður er
alveg að farast úr kláða undir
umbúðunum."
Sigurður var farinn að æfa
lítillega áður en hann fór I
rannsóknina í síðustu viku.
Hann gat þó ekki spilað eins og
hann var vanur áður fyrr og tók
því að æfa upp nýjan stil í
trommuleik — svonefndan
amerískan stíl. Læknar á slysa-
deild Borgarspítalans bönnuðu
hins vegar stranglega allar
frekari æfingar á meðan hann
erígifsinu. __Á/r___
Lynyrd Skynyrd:
Hljómleikaferðir