Dagblaðið - 12.11.1976, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 12.11.1976, Blaðsíða 7
OöiM«um06 5to« ptYSUR. " K^U URtUNtBUXUR. Herradeild tNSK TtRt^NtíÖT RltfLUÐ FlAUtlSfOT gaiubuxur TtRtlTNlBUXUR REUTER DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1976. Vill frekar deyja en sitja í fangelsi: Tugir manna hafa boðizt til að sjá um aftökuna — óvenjulegt dómsmál í Utah í Bandaríkjunum Moróinginn Gary Gihnore, sem hefur óskaö eftir því aö fá að ganga fyrir aftökusveit, verður að bíða í að minnsta kosti fimm daga áður en hann veit hvort orðið verður við ósk hans. Tugir manna hafa þegar boðið sig fram til að skjóta hann. Gilmore. sem dæmdur var til dauða fyrir að myrða háskólastúdent nokkúfn, óskaði eftir því að fá að ..deyja eins og maður" með þvi að ganga fyrir aftökusveit, í stað þess að dvelja það sent eftir var ævinnar i fangelsi. Calvin Rampton, fylkisstjóri Utah, fyrirskipaði í gær að aftaka Gilmores sk.vldi ei fara fram fyrr en náðunarnefnd fylkisins hefur komið saman á mánudaginn. Þrátt fyrir að Gilmore hafi óskað eftir því að fá að deyja — og skv. lögum getur hann valið um pftökusveitina eða gálgann — hafa fjölmargar mann- réttindahreyfingar og hópar sem berjast gegn dauðarefsing- unni, látið í ljós áhuga sinn til að áfrýja dauðadómnum. Fylkisst.iórinn hefur óskað eftir því við náðunarnefndina, að mál Gilmorcs verði tekið fyrir á sama hátt og ef hann hefði beðið um náðun. Jafnvel þótt nefndin ákveði að láta af- tökuna fara fram, þá verður dómarinn í málinu að ákveða nýjan dag f.vrir hana. Það getur veitt aukinn tíma til að afla frekari gagna í málinu. Hæstiréttur fylkisins fellst á ósk Gilmores um að fá að deyja fyrir aftökusveitinni eftir að hann sendi henni bréf, sem i sagði meðal annars: „Hafa íbúar Utah ekkí kjark til að fylgja eftir sannfæringu sinni? Þið dæmið mann til dauða — mig — og þegar ég sætti mig við það...með virðingu og heiðarleika, vilja íbúar þessa fylkis hætta við allt sanian og rífast við mig um það.“ Síðasta aftaka í Banda- ríkjunum var 1967. Angola: ,Útrýmum leppunum' — sagði Neto forseti Agostinho Neto, forseti Angola, sagði í gær að landi sínu væri ógnað frá árásar- stöðvum heimsvaldasinna í Namibíu (SV-Afríku) og lét að því liggja, að Angola gæti hugsað sér að veita þjóðernis- sinnum þar aukna aðstoð. Neto forseti lét þessi orð falla í höfuðborginni Luanda, þegar hann hélt ræðu þar í til- efni þess að eitt ár var liðið siðan landið fékk sjálfstæði frá Portúgölum. Forsetinn hvatti til þess að síðustu menjar andstöðunnar gegn stjórninni væru þurrk- aðar út og kvað öryggissveitir landsins verða að styrkja til að „útrýma síðustu leppunum". S-Afríkumenn hóta hörðu P.W. Botha, varnarmálaráð- herra Suður-Afríku, sagði í Pretoríu í gær að Suður-Afríka rnyndi snúast til varnar með öllum mætti ef angólskar her- sveitir réðust gegn Namibíu. Hann sagði þetta í viðtali við suður-afríska féttastofu þegar verið var að ræða harða bar- daga í suðurhluta Angola, á milli stjórnarhersins þar og skæruliða frelsisfylkingarinnar UNITA. Botha neitaði þvi með öllu, að stjórn sín veitti UNITA stuðning. Timburflutningaskip sekkur 33 manna áhöfn flutninga- skips sendi út neyðarskeyti og för síðan í björgunarbáta et'tir að hafa látið þau boð út ganga að skipið væri að siikk' a á Norðaustur- Kyrrahafi. Strandgæ/.la Bandaríkjanna sagði að skipið héti Garbelian væri timburflutningaskip og skrásett í Panama. Ekki er enn vitaö iun afdrif skipshafnarinnar. stærð skipsins. né staðfestingu á nafninu, að sögn Reutersfréttastofunnai Spánn: Skyndiverkföll um Fegurðardrottn- ing týnd! Opið tii kl. 10 í kvöld og 9-12 laugardaga Skipuleggjendur alheims- feguróarsamkeppninnar sem fara á fram í London innan fárra daga leita nú með logandi ljósi að einni fegurðardís- anna, Mariu Gimenez, 19 ára að aldri, sem kjörin var fegurðar- drottning Venezuela fyrir árið 1976. Konan, sem er tæpir tveir metrar á hæð, og þar með hæsta stúlkan í keppninni mun hafa farið frá Caracas fyrir skömmu og ætlað að sóla sig á Spáni áður en hún héldi til London. Hins vegar hefur hún ekki látið sjá sig á því hóteli, sem hún átti að gista í London og hefur henni nú verið gefinn frestur til mánudags að láta heyra frá sér, — annars verður hún úr leik. allt land eftirliti lögreglunnar á heimili sínu í úthverfi Madríd. Camacho á sæti í miðstjórn spdnska kommúnistaflokksins. Hann sagði í símtali við frétta- mann Reuters í gærkvöld, að skyndiverkföllin væri hugsuð sem „friðsamleg og borgaraleg viðbrögð við hrikalegri efnahags- stefnu, sem leggur allar byrðarnar á spánska verka- manninn.“ Camacho mun svo go'tt sem vera í stofufangelsi, enda fylgist lögreglan með öllum hreyfingum hans. Spánskir verkamenn hafa i hyggju að efna til skyndiverkfalla í dag um allt land í mótmælaskyni við efnahagsaðgerðir stjórnvalda, og þrátt fyrir að lögreglan hafi farið með valdi að virkum verka- lýðsleiðtogum. Verkalýðsleiðtoginn Marcelino Camacho ^ar látinn laus úr fang- elsi fyrir ári. þegar Juan Carlos konungur náðaði fjölda pólitískra fanga. Nú kveðst Camacho vera því sem næst í stofufangelsi. Tugir annarra verkalýðsleiðtoga á Spáni hafa verið handteknir í nótt og í gærkvöld. Yfir þrjátíu vinstrisinnar voru í haldi í morgun, allt frá Las Palmas á Kanarí-eyjum til Barcelona og Bilbao, sem hvort tveggja eru mikilvægar iðnaðar- borgir. Haft er eftir heimildum innan stjórnarandstöðunnar á Spáni, að meirihluti fanganna séu félagar í verkalýðssamtökum, er lúta stjórn kommúnista. Flestir voru handteknir þegar þeir dreifðu verkfallsáróðri. Sömu heimildir herma að handtökurnar gætu verið miklu fleiri. Leiðtogi verkalýðssam- bandsins, sem um ræðir, er Marcelino Camacho, sem sat í fangelsi í átta ár fyrir stjórnmála- skoðanir sínar og starfsemi á Franco-tímanum. Camacho var í morgun og gærkvöld undir | ÉÉiMÍH BANKASTRÆTI 9, SÍMI 11811. Erlendar fréttir

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.