Dagblaðið - 12.11.1976, Side 28

Dagblaðið - 12.11.1976, Side 28
■—■ allt að 8200 tonna umframframleiðsla árið 1985 fxjálst, nháð dagblað FÖSTUDAGUR 12. NÓV. 1976, f Niðurstöður úttektar á sauðfjárrækt: Sauðfjárrækt á íslandi stefnir s algert óefni — sívaxandi byrði á ríkissjóð Sauðfjárrækt á íslandi stefnir í álgert óefni. Umfram- magn, sem flytja yrði, og þá líklega með gífurlegum útflutn- ingsuppbótum, á erlendan markað gæti orðið allt að 8200 tonn árið 1985 með sama áfram- ahldi. Þetta kemur fram af út- tekt á þróun sauðfjárræktar, sem Rannsóknarráð ríkissins hefur gerl. „Með núverandi stefnu í sauðfjárræktunarmálum úgmeð því fyrirkomulagi á verðlagn- ingu sauðfjárafurða, sem hér tíðkast og hvetur mest til auk- innar kjötframleiðslu, svo og með áframhaldandi stuðningi við uppbyggingu sauðfjárbú- skapar, er líklegt, að á næstu árum muni framleiðsla á dilka- kjöti umfram innanlandsþarfir fara stórlega vaxandi," segir í skýrslu Rannsóknarráðs. „Nú er um 20 prósent kjöts- ins flutt út, og því er spáð, að árið 1985 geti umframmagnið orðið frá 6300 til 8200 tonn, eftir því hvort kjöt yrði áfram greitt niður eða niðurgreiðslum yrði hætt.“ Þá segir, að reynist ekki unnt að finna hagstæðari markaði fyrir dilkakjöt munu útflutn- ingsbætur verða sívaxandi ttyrði á ríkissjóði, ef flytja á umframframleiðsluna út. Uttektin sýnir, að sauðfjár- rækt hér á landi er ekki sam- keppnisfær við sauðfjárrækt í þeim löndum, em ráða fram-' boði og heimsmarkaðsverði á dilkakjöti, við ríkjandi búskaparhætti. Til dæmis er framleiðslu- kostnaður bónda á Nýja Sjálandi á 16,8 tonnum af kjöti og 6,6 tonnum af ull eftir 1650 kindur um það bil jafnhár og framleiðslukostnaður íslenzks bónda af miklu minni fram- leiðslu, 6,9 tonnum af kjöti og 0,62 tonnum af ull eftir aðeins 355 kindur. Svo mikill er mun- urinn okkur í óhag. — HH DANSKUR SPÉFUGL í Jesper Klein ásamt konu sinni, leikkonunni Lykke Nielsen. Seldu spilavítisseðil sem harðan gjaldeyri — og sviku nær 12. þús. krónur út úr unglingum sem vildu ná sér í áfengi Tveir náungar komu inn í ísbúðina á Lækjartorgi í gær og buðu þar brazilskan peninga- seðil til sölu. Afgreiðslustúlkan var til í að næla sér í gjaldeyri og keypti seðilinn á 8400 krónur. Litlu siðar fékk hún bakþanka en þá voru náungarnir á bak og burt. I banka fékk stúlkan upplýsing- ar um að þetta væri ekki gildur seðill en að öllum líkindum seðill notaður í spilavíti. En svikalóð náunganna varð lengri. Af Lækjartorgi héldu þeir í vínbúð til að halda upp á vel heppnuð svik á Lækjartorgi. Skammt frá vín- búóinni voru fjórir unglingar undir aldri til að fá afgreiðslu. Föluðust unglingarnir eftir því að náungarnir keyptu fyrir þá áfengi og fengu náungarnir tveir afhentar 11.800 krónur til áfengiskaupanna. Unglingarnir biðu lengi náunganna tveggja en allt án árangurs. Skarst nú lögreglan í leikinn. vissi á hvernig bíl þeir voru og svo lauk að lögreglu- menn höfðu upp á svikurunum. Náðist mest allt fé það sem þeir' höfðu svikið út. En lögbrot þeirra eru hin sömu þrátt fyrir ■að og verða þeir nú að svara fyrir þau. -ASW N0RRÆNA HÚSINU „Intim Finkultur tilbydes af yngre Herre i pæne Omgivelser“ nefnist efnisskráin hjá danska leikaranum Jesper Klein, sem skemmtir í Norræna húsinu á sunnudaginn kl. 16.00 — Klein skemmtir þar aftur á miðviku- daginn kl. 20.30 og þá verður efnið úr „Kleins komiske Laboratorium". Klein er vinsæll gamanleikari í heimalandi sínu og kemur þar oft fram í hljóðvarpi og sjónvarpi í svokölluðu „One Man Show“, sem er skopkenndur leikureins manns þar sem spaqgileg atriði eru tengd saman með notalegu rabbi. Það er einmitt slík sýning sem Klein verður með í Norræna húsinu. Jesper Klein er fæddur 1944 hefur leikið í mörgum kvikmynd- um og einnig er hann þekktur Holberg leikari. -A.Bj. STARFSFÓLKI N0RÐURSTJÖRN- UNNAR SAGT UPP minnkánu! Wnnere- neyzla í heiminum og óvíst um framtíð fyrirtækisins Um síðustu mánaðamót var þeim fimm til sex föstu starfs- mönnum niðursuðuverksmiðj- unnar Norðurstjörnunnar í Hafnarfirði sagt upp störfum með eðlilegum uppsagnarfresti. Oslóarsamn- ingurinn staðfestur Með 39 atkvæðum gegn 17 var Öslóarsamkomulagið við Breta í landhelgismálunum samþykkt á Alþingi i gær. Stjórnarliðar greiddu atkvæði með, stjórnarandstæðingar á móti. Jón Armann Héðins- sC.n 1A) sagðist í fyrstu hafa verið fyigjandi sa.7:.,]ingum en nú vera honum andvígur, þar hætta væri á að enn yrði nú samið um áframhaldandi veiðar Breta hér við land. Fjarstaddir voru: Sverrir Her- mannsson (S ), Pétur Sigurðsson (S), Friðjón Þórðarson(S) og Magnús Torfi Ölafsson (Samtök- in). -HH. Utvarpsstöðin „Radíó top sixty“, þar sem hún hvílir í lófa útvarpsstjórans ásamt eldspýtnastokki. ÚTVARP AKUREYRI, RADÍÓ B, RADÍÓ TÖP SIXTY 0G RADÍÓ MÝVATN Fjórar leynilegar útvarpsstöðvar á Akureyri: — senda út 9—10 tíma tónlistardagskrá bak við kerfið Það er ekkert launungarmál lengur að hér á Akureyri reka táningar að minnsta kosti fjórar „leynilegar" útvarpsstöðvar. Og það er hlustað á þær. — Það er sarna hvar þú kemur, músíkin frá þeim dynur úr hverju horni. Það hlægilega við þetta er að í raun og veru er það ríkisúivarpið, sern heldur þessum stöðvum gangandi, því að þrautleiðinleg dagskrá þess skapar þessum „pirat-radíóum“ tilverurétt. Þetta kom fram á fundi, sem ég átti með „útvarpsstjórunum" hér fyrir norðan. Það er verra að ná tali af þess- um mönnum heldur en banka- stjórum, en þegar ég hitti á réttan „kondtakt" var viðtalið auðfeng- ið. Ég var ekki kynntur fyrir þeim, þvi að ég má ekki vita hvað þeir heita og ég veit ekki hvar stöðvar þeirra eru starfræktar. En ég sá stöðvarnar af því að þeir komu með þær i vasanum á fund- inn. Það er sama hvort stöðin heitir Eyfirsk útvarpsstöó, þar sem huu liungir í vírum frá raf- hlöðu, plötuspilara og ioftneti. Hún er á bak við gardínu ein- hvers staðar í glugga á Akur- eyri. DB-myndir F.Ax. Utvarp Akureyri, Radío B, Radío top sixty eða Radíó Mývatn, þær eru allar reknar af því að það hefir gleymzt að gera ráð fyrir táningunum í kerfinu okkar. — Og þetta er ekki í fyrsta skipti sem við rekum okkur á það. „Utvarpsstjórarnir" ganga ekkert að því gruflandi að þessar framkvæmdir þeirra kunni að veróa stöðvaðar af hinu opinbera en þeir munu senda út „Program 2“ á meðan nokkur straumur er á loftnetunum. „Utvarpsstjórarnir“ eru frá barnaskólaaldri og upp táninga- aldurinn. Þeir eru á kafi í raf- eindatækni og poppmúsik og þeir vilja gjarnan borga fyrir að fá að reka stöðvarnar en það er bara ekki til neitt eyðublað fyrir slíkt hjá okkur. „Af hverju megum við ekki út- varpa eins og kaninn?“ Þessi spurning kom oft fram i viðtalinu. Já, — af hverju mega þeir ekki útvarpa eins og kaninn? Það vantar prógramm fyrir unga fólkið. — Unglingarnir eru sjálfir reiðubúnir til þess að senda það út, en kerfið leyfir það ekki, — hvað á að gera? Tæknilega séð eru þessar ey- firzku útvarpsstöðvar ekki nein bákn. Þetta eru örbylgjustöðvar, sem senda út með um það bil einu watti á loftnet, sem þýðir það að þær draga ekki langt út fyrif- bæjarmörkin. Þær senda út um tíu tíma dagskrá á dag og skiptast þá gjarnan á um útsendingu. Þær éru óháðar duttlungum Laxárraf- magnsins því að sent er út með rafhlöðum ef rafmagnslaust er. — Það eina sem útvarpsstjórana vantar er pósthólf, til þess að hlustendur geti lagt inn beiðnir um óskalög. Væri ekki ástæða til þess að reyna að finnaþessum áhugasíÚXUJ unglingum tilverurétt heldur en aö oskapast ytir því að þeir fylli ljósvakann yfir Akureyri af dillandi popp-músík. F.Ax. Ekki hefur verið unnið úr nýju hráefni í hátt á annað ár í verk- smiðjunni, en fólkið unnið að merkingu og pökkun framleiðsl- unnar eftir því sem pantanir hafa borizt, ayk skrifstofustarfa. Guðmundur B. Olafsson hjá Framkvæmdasjóði, en sjóðurinn á um 45% hlutafjár í fyrirtækinu, sagði í viðtali við DB í gær að nú yrði skoðað i kjölinn hvort ein- hver framtíð leyndist í einhverri svipaðri framleiðslu. Nú virtist útilokað að reka verksmiðjuna i því formi sem hún er. Hún er eingöngu byggð fyrir kippers framleiðslu. sem eru reykt og niðursoðin flök, en neyzlan á þeirri vöru hefur farið ört mfnnk- andi í heiminum undanfarin ár. Varðandi skuldir fyrirtækisins, yrði það lagt niður, sagði hann að þær væru ekki umtalsverðar og litlar miðað við eignir. Auk hluta- fjársjóðsins, á ríkissjóður um 30% i Ijlorðurstjörnunni, Hafnar- fjarðarbær um 6% og aðrir hlut- hafar um 18%. — G.S.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.