Dagblaðið - 17.12.1976, Blaðsíða 1
RITSTJOSM SIÐUMULA 12v SÍMI 83322. AUGLVSÍNGAR ÓG AFGREIÐSLA. ÞVERHOLTI 2, SIMI27022
/ '
Viðræður áfram
í dag
Gundelach
enn
bjartsýnn
Meðan íslenzkir ráðamenn
lýsa ýfir að litlar líkur séu
til samninga við Efnahags-
bandalagið um veiðiheimild-
ir í bráð, heldur Gundelach,
forystumaður bandalagsins í
samningunum.bjartsýni
sinni.
Enn í gær höfðu erlendir
fjölmiðlar eftir honum, að
hann vænti yfirlýsingar frá
íslenzkum stjórnvöldum,
sem veittu Bretum
veiðiheimildir hér við land.
Viðræður íslands og
EBE í Briissel halda áfram í
dag og þeim lýkur sennilega
í kvöld. Ræða á veiði-
heimildir í dag.
Fiskvernd var dagskrár-
mál á fundunum í gær.
-HH
Jólasveinar
sem eiga
framtíðina
fyrir sér
„Ég gæti nú verið afi hans,
það gerir skeggið,“ gæti hann
Giljagaur verið að segja en
hann er sá til vinstri á
myndinni.Hann Guðmundur
litli Fróðason lagði lítið til
málanna í þeim efnum, en naut
sín ágætlega innan um stéttar-
bræður sína, jólasveinana, sem
gáfu honum hikstalaust nafnið
Stúfur
Þeir félagar voru þátt-
takendur á jólaskemmtun sem
haldin var á Barnaspítala
Hringsins í gær, en þar var
ýmislegt um að vera. Börnin
sungu hástöfum og starfsfólkiÁ
virtist ekki síður hafa gaman
af.
- Sjá bls. 6
DB-mynd Arni Páll.
Eftir miklar hækkanir á Bandaríkjamarkaði
Sjómenn krefjast nú veru-
tegrar hækkunar fiskverðs
(„Nú er ástæða W veizluhalda”
segir forseti
Sjómannasambandsins
„Ég hef lýst því yfir, vegna
verðhækkana á sjávarafurðum,
að ég teldi ástæðu til „veizlu-
halda“ fyrir þá sem að þessu
vinna. Enn frekari ástæða er
nú eftir mikla hækkun. Það
hlýtur að leiða af sjálfu sér að
fiskverð verði verulega hækkað
nú um áramótin til hagsbóta
fyrir sjómenn," sagði Óskar
Vigfússon, forseti Sjómanna-
sambandsins, í morgun í tilefni
mikillar hækkunar á verði á
Bandaríkjamarkaði.
„Ég tel grundvöll fyrir að
kjör verkafólks í fiskvinnsl-
unni verði einnig bætt veru-
Iega,“ sagði Oskar.
Þorskblokkin á Bandaríkja-
markaði hefur hækkað um sex
prósent síðustu daga1 og er kom-
in í 90 cent. Verðið á sjávaraf-
urðum héðan á Bandaríkja-
markaði hefur aldrei verið
hærra. Þorskflök hafa nú
hækkað um fjórtán af
hundraði.
Ýsu- og steinbítsflök hafa
hækkað um fjögur prósent og
ýsublokk er komin í 95 cent
pundið og hefur hækkað um
átta af hundraði.
Þessar hækkanir siðustu
daga gætu veitt okkur um
tveggja milljarða tekjuaukn-
ingu á ársgrundvelli.
Sala í Bandaríkjunum hefur
aukizt verulega á árinu. Sala á
flökum og blokk hefur vaxið
um 17—18 af hundraði. —HH
Erla Jónsdóttir rannsakar
mál Guðbjarts Pálssonar
— yfirheyrslur v/kæru ökumanns á handtökunni
hófust í gær
Erlu Jónsdóttur, fulltrúa
yfirsakadómarans í Reykjavík,
hefur verið falin rannsókn á
meintu fjármálamisferli
Guðbjarts Pálssonar, sem hand-
tekinn var í Vogum á Vatns-
leysuströnd 6. þessa mánaðar.
Steingrímur Gautur
Kristjánsson, sem skipaður
hefur verið setudómari I
kærumáli mannsins, er ók
Guðbjaiti suður eftir umrætt
kvöld, hóf yfirheyrslur í gær
Yfirheyrði hann m.a. öku-
manninn, sem kært hefur hand-
tökuna — svo og leigubifreiðar-
stjöra er kveðst hafa komið
tveim stúlkum í samband við
Guðbjart þennan sama dag:
þær sömu stúlkur eru sagðar
hafa horfið út í náttmyrkrið er
handtöku Guðbjarts og öku-
manns hans bar að.
Einnig yfirheyrði Steingrím-
ur Gautur í Keflavík í gær og
mun halda yfirheyrslum áfram
I dag.
Hæstiréttur hefur ekki enn
tekið fyrir kæru Guðbjarts á
varðhaldsúrskurðinum, sem
kveðinn var upp í Keflavík, og
hefur komið fram sú tilgáta, að
kæran verði ekki tekin fyrir
fyrr en frumrannsókn
Steingríms Gauts liggur fyrir
Dagblaðið sneri s£r i gær til
Jóns Eysteinssonar, bæjarfó-
geta I Keflavík, og spurði hann
hverjar hefðu verið ástæður
þess að svo mikið lá á að fá
rannsókn meints misferlis
Guðbjarts flutta til Reykja-
víkur. Jón kvaðst ekkert um
málið hafa að segia að svn
stöddu annað en að ekki hefði
legið á og ástæðurnar væru
tilgreindar í bréfi, er hann
hefði ritað yfirsakadómaranum
í Reykjavík um leið og hann
óskaði eftir að embætti hans
tæki við rannsókninni. -ÓV
Leigubflstjóri handtekinn:
Lögreglumenn höfðu frumkvæðið
að því að svipta hulunni af
— en málið var umsvifalaust
af þeim tekið
Sjá föstudagskjallara
Vilmundar Gylfasonar á bls. 11
Stefán Jónsson alþingismaður
svarar Vilmundi
Sjá kjallaragrein á bls. 12