Dagblaðið - 17.12.1976, Blaðsíða 22

Dagblaðið - 17.12.1976, Blaðsíða 22
I)A(iBI.AÐIf). KÖSTUDAdUK 17. DKSKMBKK 1970. Rúnar Georgss. hættur í Fresh Rúnar Georgsson, saxófónleikari, hefur sagt skiliö vió hljómsveitina Fresh. Hann lék síðast nieö hljóm- sveitinni um síðustu helgi en um þessa helgi leika þeir fjórir saman Finnbogi Kjartansson, Omar Öskarsson, Tom Landsdown og Hrólfur Gunnarsson. Astæðan fyrir því að Rúnar hættir er einfaldlega sú, að hann var orðinn þreyttur á músíkinni í bili og vill nú hvíla sig. Þegar við hittum liðsmenn Fresh eftir helgina síðustu í æfingaskúr þeirra vestur í bæ, voru þeir hinir hressustu að vanda, efldir af Kristni Haraldssyni hljóðstjóra, sem lengst af var yfirrótari Júdas- ar, þar sem þeir voru Finnbogi og Hrólfur. Þeir kváðu allt óráðið um framtíð hljómsveitarinnar að öðru leyti en því, að hún héldi áfram af fullum krafti og í fyrsta lagi eftir áramót yrði farið að kanna grundvöll fyrir því að bæta e.t.v. einum manni í hljómsveitina. Fresh hefur gert það nokkuð gott á dansiballa- markaðnum hérlendis, síðan hljómsveitin fór af stað. Helzt hefur það háð hljómsveitinni, hve menn staldra þar stutt við þótt kjarninn sé sá sarai, píanóleikarinn Omar og'gítar- istinn Tom, sem báðir syngja megnið af lögum hljómsveitarinnar Til dæmis má nefna að Rúnar Georgsson er aðeins húinn að vera með hljómsveitinni í fjóra mánuði og þá var ekki langt síðan gerðar höfðu verið gagngerar breyiin,"ar á Fresh. Hljómsveitin spijar gott rokk og hefur á að skipa ágætum hljóðfæraleikurum, sem hver um sig á að geta notið sín í Fresh. Komist stöðugleiki á í hljómsveitinni má gera því skóna, að hún standi sig enn betur á komandi ári. -ÓV. Etur í bein afturhaldsmanna r* - EINU SINNI VAR: Vísur úr Vísnabókinni. UTGEFANDI: Iðunn UPPTAKA: Ramport. London og Hljóðriti, Hafnarfiröi. UPPTÖKUMAÐUR: Mark Dodson ÚTSETNINGAR: Gunnar Þorðarson. Björg- vin Halldórsson og Tómas Tómasson. Hún er allbrosleg sagan, sem ég heyrði um daginn um Vísnabókarplötu Iðunnar. Sögumaður hafði hana heint eftir tónlistarstjóra útvarps- ins. Þorsteini Hanness.vni. og þá hlýtur hún að vera sönn. Nokkrir barnaskólasöng- kennarar höfðu samband við Þorstein og óskuðu eftir því, að hann hannaði flutning laga af Vísnabókarplötunni í út- varpi Astæðan fyrir beiðni kennaranna var sú, að þegar nemendur þeirra kæmu til náms eftir jólalevfi. væru þeir farnir að s.vngja gömlu skóla- ljóðin með nýjúm takti og í sumum tilfellum undir öðru lagi en áður þekktist. Þetta myndi skapa öngþveiti og ólýs- anleg vandræði rneðal söng- kennaranna. Það fylgdi sögunni, að Þor- steinn Hannesson hefói hafnað beiðni söngkennaranna á þeirri forsendu, aö hann vildi ekki gefa plötunni þá frábæru auglýsingu að bannfæra hana á öldum ljósvakans. Engin hljómplata, sem nú er á jólamarkaðinum. hefur hlot- ið jafn mikið umtal og einmitt Vísnabókarplatan. íhalds- menn i tónlist eru margir á tslandi og þeir hlaupa svo sannarlega upp til handa og fóta. þegar gömlu lögunum, sem þeir hafa kunnað siðan þeir gengu i stuttbuxum og koti. er breytt. Hvað skyldi svo sem vera að því að færa gömul barnalög í nútímabúning? Hvers vegna ættu þau lög, sem valin voru á Vísnabókarplötuna. endilega að þurfa að hljóma um aldur og ævi á gamla úrelta mátann. sem hentar söngkénnurum bezt til að misþyrma á hljóm- litlar orgvélar og píanó? Mitt álit á Visnabókarplöt- unni er það, að hún sé mjög vel gerð. Utsetningar eru allar vandaðar og lög Gunnars Þórðarsonar eru góð. Ég nefni þar sérstaklega nýja lagið við ,,Eg á lítinn skrítinn skugga1: A plötunni geta flestir á aldr- inum 10—60 ára fundið eitt- hvað við sitt hæfi. Ég sakna aðeins vísnanna um Grýlu. Nóg er af þeim í Vísnabókinni, og þegar ég var ungur voru Grýlukvæðin alltaf vinsæl- ust- Hefði að minnsta kosti eitt slíkt fylgt með, hygg ég að m.a. fjögurra ára börn hefðu einnig fundið eitthvað við sitt hæfi. Tæknilega séð er Vísnabók- arplatan í sérflokki miðað við aðrar plötur, sem hafa komið út að undanförnu. Björgvin, Gunnar og Tómas Tómasson eru skólaðir úr enskum stúdíó- um og hér sýna þeir, svo að ekki verður um villzt, að eitt- hvað hafa þeir lært af veru sinni erlendis. Björgvins þáttur Halldórs- sonar er á þessari plötu fyrst og fremst söngurinn. Ég minn- ist þess ekki að hafa heyrt Björgvin syngja betur fyrr né síðar. I lesendabréfi í Dagblað- inu síðasta miðvikudag var rödd Björgvins líkt við Frank Sinatra. Ef bréfritari getur bent mér á einhverja plötu með Sinatra. þar sem hann syngur eitthvað í líkingu við Björgvin, þá væri það þakk- samlega þegið. Hver veit nema maður færi þá að hlusta á Sinatra, — betra er seint en aidrei. Ég reikna með að það sé fáum kunnugt, að Björgvin Halldórsson syngur sjálfur öll þau lög á Vísnabókarplötunni, sem „Helgi Halldórsson“ er skrifaður fyrir. Þar er beitt tækni, sem ég hygg að íslenzk- um tæknimönnum væri hollt að beita meira. Þá minnkaði ef til vill sá falski söngur, sem allt of mikið er af á íslenzkum plötum. Skoðun mín er sú, að Vísna- bókarplatan „Einu sinni var“ verði ein af fáum plötum í þessu margumrædda jóla- plötuflóði sem eiga eftir að heyrast þegar frá líður. Ég fæ það aldrei inn í hausinn á mér, að hér sé verið að misþyrma tónlist. Til þess er platan of fáguð og útsetningarnar vand- aðar. Bókaútgáfan Iðunn hefði getað falið mörgum hljómlist- armönnum og hljómsveitum að vinna plötu úr kvæðunum úr Vísnabókinni. Spilverk þjóð- anna hefði eflaust gert plötuna meira við hæfi barna og jafn- framt þjóðlegri, Jóhann G. Jóhannsson hefði gert melódískari plötu og þannig mætti lengi telja. En platan er kominn á mark- aðinn með þeim Gunnari, Björgvini. Tómasi og öllum hinum, sem aðstoðuðu, og ég held að allir, sem að útgáfunni stóðu. megi vel við una. —AT Lesendabréfi svarað “ „ÞAÐ MÁTTU VITA, NAFNLAUSA NÚLLNÚMER...” í Dagblaðinu þann 15. desember kveður einhver N.N. sér hljóðs, einhver sem skrifar undir fölsku símanúmeri, því ekki er það hið lögboðna nafnnúmer sem þessi furðufiskur notar undir rætna grein sína. Þessi furðulegi ónefndur þýkist hafa skoðun og telur sjálfsagt að úthrópa hana, og jafnvel eýðst til þess að rökstyðja þess'a skpðun sína ( ja, svei). Ég skil í raun ve? að hann skuli ekki einu sinni þora að nota rétt naínnúmer, því þá myndi hann gefa færi á sér, þannig að hægt væri að ræða við hann út frá hans eigin verðleikum og hæfileikum og þar mætti finna þess minnsta vott hvort hann gæti atað auri eitt ástsælasta nútímabarn tónlistar í landinu. Nei, kall minn, þér tekst ekki að fá frá mér reiði eða vandlætingu eins og"þti byst við, ég vorkenni þér, þú hlýtur að hafa fæðzt undir óheillástjörnu og vera af- skaplega þrúgaður af minni- máttarkennd. Ef til vill gefurðu út plötur sem enginn vill kaupa, eða ertu ef til vill á mála hjá einhverjum slíkum? Ef þú ert að sækjast eftir þvi að þjóðin elski þig, þá ertu á rangri leið, að rakka niður með skítaorðbragði þann sem gefur þjóðinni tónlist sem hún skilur, bæði fágaða og bitastæða tónlist- arlega séð, og tónlist sem ber léttara yfirbragð og fólkið í landinu lærir og not- ar sér til upplyftingar við ýmis tækifæri. Þú leggur tónlist Gunnars Þórðarsonar niður á lægra plan en þess manns sem lengst hefur gengið i því, með óskiljanlegu tuldri og muldri, að kopiera lélega, það fáránlegasta sem fram hefur komið á þessu sviði i hinu stóra USA, Bob Dylan, og þar dattstu á rassinn. Og það máttu vita í fram- haldi af þessu, nafnlausa núllnúmer, að íslendingar eru fyrir löngu búnir að fá nóg af niðursuðudósalista- mönnum eða rúgbrauðs- samansöfnurum, sem eftir upptroðslu krefja okkur skattborgarana um fram- færslu út á fallinn víxil ónýtra skóa o.s.frv. Við höfum fengið okkur fullsadda af misheppnuðum og misskildum lista- mönnum, sem skrifa bækur sem enginn nennir að lesa yrkja ljóð sem enginn skilur, mála myndir sem enginn vill kaupa og semur tónlist sem er bara prump. Nei, kallinn minn, þú misstir niður um þig og stendur berskjaldaður með beran bossann og ekkert að sýna nema tóma öfund og ræfilshátt. Hefðirðu getað sýnt fram á tónlistarlega hæfileika og gáfur til þess að setja Gunn- ar Þórðarson upp við vegg og tæta niður það sem venjulegt óafbakað fólk kallar tónlist, þá hefði ef til vill verið hægt að rökræða við þig. En þú blottaðir þig, þú ert á mála hjá fallistum, sem enginn nennir að hlusta á og á slíka er vart orðum e.vðandi. En það máttu vita að ég 45 ára skattborgari hér í þessu landi lýsi yfir aðdáun minm á-Gunnari Þórðarsyni fyrir verk hans og allar þá ánægjustundir sem hann hefur veitt okkur öllum með tónlist sinni allt frá því hann gaf okkur „Bláu augun þín“. Og jafnvel þó hann bregði á leik með því sem þú svo íagmannslega kallar „comm- ercial" þá á hann og mun eiga um ókomna framtíð aðdáun og þökk alls þorra landsmanna (venjulegs fólks) fyrir flest sin verk. En þitt frumhlaúp undir annarlegum áhrifum mun ekki gleymt, ef þú þyrðir að vera annað en ógilt síma- númer, þá m.vndirðu eflaust finna að margir. já ótrúlega margir, myndu vilja veita þér smáuppeldi í þvi hverjir eru ástmegir þjóðar vorrai og hverjir ekki. Og með því kveð ég þig standandi uppi með hendur og niðri með buxur. Revkjavík 16. des. 1976. 0840—1241. 1 ÁSGEIR K TÓMASSOM L— r/ i ÓMAR ft VALDIMARSSON ' pl -Musac” ... ■ ,v■%* Wíflaí íVy SÓNGFLOKKUR EIRlKS ÁRNA: Sdngvar um astina. UTGEFANDI: Júdas hf. (JUD 007) UPPTAKA: Hljóðriti hf. UPPTÖKUSTJÓRI: Eirikur Árni Sigtryggsson UPPTÖKUMAÐUR: Tony Cook. PRESSUN & PRENTUN: Soundtek inc. New York. Á þessari plötu, „Söngvar um ástina", s.vngur 23ja manna kór Eiríks Árna Sigtryggsson- ar söngkennara í Hafnarfirði tíu lög, — hvert úr sinni áttinni. Tvö laganna eru íslenzk. Það eru lögin „Konan, sem kyndir ofninn minn“ eftir Sverri Ólafsson og Davíð Stefánsson og „Minning" eftir Guðmund Jóhannsson. Hin lögin átta eru af er- lendum toga spunnin. Työ þeirra eru eftir Burt Bacharach, eitt eftir Lennon og McCartneý. Þá má einnig nefna lagió „Hver má sigla þá glæs ei byr", sem er á plötuum- slaginu sagt vera sænskí þjóðlag, en er, ef mig mis- minnir ekki, ættað frá Álands- eyjum. Tónlistarflutningurinn á „Söngvum um ástina" flokkast undir það, sem John Lennon nefndi eitt sinn musac. Þetta er afbökun á enska orðinu music og hefur á islenzku verið þýtt sem tónlast (í stað tónlist) Merking þessa orðs Lennons er sú að musac-tónlist fer inn um annað eyrað og út um hitt. Þetta þarf þó ekki að vera sagt í neikvæðri merkingu, heldur getur slík tónlist flokkazt und- ir það, sem enskurinn kallar „background music". Söngflokkur Eiriks Árna er ekki sérlega tilþrifamikill kór. Helzt ber þar á skorti á bassa- röddum, — en bassa- söngvararnir eru aðeins þrír. Bezt tekst kórnum upp í laginu „Hver má sigla þá blæs ei b.vr". Hin lögin eru meira í ætt við það, sem við heyrum Sergeo Mendez og Brazil ”66 og aðrar slíkar hljómsveitir syngja í lögunum við vinnuna. Vilhjálmur Vilhjálmsson, söngvarinn góðkunni. svngur einsöng i einu lagi, „Allir eru að tala um mig". Honum tekst óaðfinnanlega upp eins og vanalega. Finnst mér að hans hefði að skaðlausu mátt geta á plötuumslaginu innan um aðrar upplýsingar. Níu manna hljómsveit sér um látlausan undirleik á plötunni. Þar má finna poppara jafnt sem meðiimi sinfóníuhljómsveitarinnar og vinna þeir verk sitt mjög þokkalega. „Söngvar um ástina" voru teknir upp áður en Hljóðriti var stækkaður í 24 rásir og hljóðverið endurbætt á allan hátt. Platan hefði eflaust orðið allt öðruvísi og miklu meira spennandi hefði hún verið tek- in upp við þær aðstæður sent þar eru núna. A framhlið umslagsins utan um plötuna er málverk eftir söngstjórann. Eirík Arna Sigtrvggsson. Það er af fólki i skommtilegum stellingum með Þingvaliavatn i baksýn. Aga>t- is mynd. -ÁT- n

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.