Dagblaðið - 17.12.1976, Síða 2

Dagblaðið - 17.12.1976, Síða 2
<0* L*vrót,\TIK'ií*! r»? Cítft«asws» mrSí,«ö,íijf» CL-nt- »«3fc w 6^ fð 9Stx<(Mj*tn um *í cj co* &t?heft *« Síftrí 9trt íitri u ifcwífimt«. ‘Xnijitil tn ^oíiwrffns Söt'tHnmg uHSáfcrai •mi ÍW !W &Jfe. (Mk-feM «'*» t-i fc*. »' íw> *w CH*1ST»Í.»«K»<. w »ww *• "'<*** **'•>"* '*« ••!»' *V (!*í. ttnfen C-crrt ^'i«t%31iW!lias ÍSLAND 35 2 UACBLAiMÐ. FÖSTUDACUR 17. DESKMBER 1976, LÁTUM HERINN Sveinn SÍKur.jónsson. Keflavík. skrifar: Sagt var frá jivi um daginn í útvarpi að margir flugvellir í smærri byggðarlögum væru ljóslausir og því ekki lendandi á þeim í skammdeginu nema 2 tíma á dag meðan bjart er. Eykur það mjög á einangrun og aðra samgönguörðugleika. Var sagt að úrbóta væri ekki að vænta í náinni framtíð vegna peningaleysis þar sem slíkur ljósabúnaður kostaði töluvert fé. Viljið ekki þessir dreifbýlis- staðir sem þannig er ástatt um, taka upp nýja stefnu.Við eigum námu sem við getum látið mala gull í þessar framkvæmdir, vegi og hafnir. Það er hin margumdeilda landsspilda Nato á Miðnesheiði, sem allir flokksforingjar eru sammála um að ekki megi nýta til hags- bóta fyrir þjóðina og sem lyftistöng fyrir framkvæmdir. Áðrar þjóðir hlæja að ráða- mönnum okkar fyrir þá sýndar- mikilmennsku að þiggja ekki greiðslu fyrir aðstöðuna, þó við séum sokknir upp að mitti i skuldafen sem þessir heiðurs- menn hafa steypt okkur í. Þetta má að einhverju Ieyti rekja til þess að allir flokksforingjarnir eru í Reykjavík, sömuleiðis flestir þingmenn. Þeirra heimur er aðeins Stór- Reykjavíkursvæðið, þar eru peningarnir sem þessir stóru menn geta velt á milli sín á misheiðarlegan hátt að eigin geðþótta. Dreifbýlið má fara í auðn. samkvæmt nefndaráliti. að áliti þeirra er| skipuðu hana. Nei, nú hristið þið af ykkur slenið og kjósið aðeins til næsta þings þá menn sem hafa það á. stefnuskrá sinni að Nató greiði fyrir veru sína hér og það fé sem inn kemur verði aðeins varið til uppbyggingar vega, flugvalla og hafna. Þetta er sú lausn sem við eigum að stefna að. Burt með þessa þingmenn sem láta flokksforingja hugsa fyrir sig, og virðast hafa þá einu hugsun að vera í sem flest- ÞAÐ VÆRINÆR AÐ LÆKKA VÉL- HJÓLAALDURINN Bréfritara finnst það mesta fásinna að lækka kosningaald- urinn. Telur hann sk.vnsamlegra að veita yngri unglingum réttindi til aksturs á vélhjóli. Þessir kappar eru að leika listir sinar í Aðalstræti. einmitt í næsta nágrenni við Hallæris- planið umtalaða. 8039-8689 skrifar: Ég var að lesa eitt af dagblöð- unum fyrir nokkru og sá þar mér til furðu að það stæði til að lækka kosningaaldurinn um þrjú ár. Mér finnst nú meiri ástæða til annarra breytinga, eins og t.d. að lækka vélhjólaaldurinn um eitt ár, eða úr 15 árum í 14 ár. Ekki veitti af, því aðeins tvö ár eru frá leyfilegum aldri til vélhjólaaksturs, þar til viðkom- andi getur fengið bílpróf. Svo eru þessi farartæki líka mjög þægileg fyrir krakka til að fara á í skóla eða til vinnu. fyrir utan gamanið sem þau hafa af þessu. Þá hefðu krakkarnir líka eitthvað annað að gera en að hanga fram eftir kvöldum í sjoppum eða niðri á Hallæris- plani. Erla Sigurðardóttir hringdi: Eg ferðast mjög oft með SVR og hef tekið eftir því að sumt fólk er með nokkurs konar passa. sem það sýnir vagnstjóra þegar það kemur inn i vagninn. Þetta fólk greiðir GOÐ GJOF EKTA LEÐUR Kr. 5660 Gott vinil brunt svart Kr. 8420 Fallegt fœti Kr. 8850 Póstsendum Opið til kl. 10 í kvöld Laugavegi 69 3imi 16850.' — Miðbæjarmarkaði — simi 19494 Hverjir fá f rítt í strætó? ekki fargjöldin á sama hátt og við hin. Nú langar mig að vita hverjir það eru sem hafa svona skírteini og hverjir þaði eru sem geta fengið þau? Hvað kosta þau, ef þau þá kosta eitthvað? Eiríkur Asgeirsson forstjóri SVR sagði okkur að starfsfólk SVR fengi sérstök kort, sem það framvísaði í vögnunum. Einnig hefðu lögíeglumenn sams konar kort, en ríkið greiddi fvrir þau. frimerki í höfuðborginni Erlend kona. búsett hér á landi. hafði samband við DB: Þar sem ég er hér útlendingur ber ég gjarnan saman það sem ég rekst á hér og það sem ég er vön heiman frá mér. Eg þarf mikið á frímerkjum að halda en það getur verið erfitt að fá þau nema gera sér ferð niður í bæ. • Svo er alveg merkilegt að hvergi, að því ég veit til, er hægt að fá frímerki eftir að •pósthúsum er lokað. Mér finnst að það eigi að vera alveg sjálfsagður hlutur að frímerki sé hægt að kaupa í sjoppum. Það á að vera auðvelt að nálgast þau. Það er miklu þægilegra að geta farið út i sjoppu og keypt þau og stungið svo bréfinu við tækifæri póstkassa, þeir loka aldrei. Mér finnst það svolítið skrítið að hér í höfuðborg Islands, Reykjavík. skuli svona smáræði vera i ólagi. Syo vona ég að hér verði bætt um og þeir sem eru pennaglaðir geti fengið frímerki á bréf.sín. Kannski er hér skýringin, frimerkjaleysið, á því hversu líjþéndingar eru pennalatir. i

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.