Dagblaðið - 17.12.1976, Page 7

Dagblaðið - 17.12.1976, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1976. .7 Hneykslið í og við Aðalvík á Ströndum: Vitamálastjóm hirti ekki um flotbryggju sem hún fékk að gjöf og tankar flotbryggjunnar eru nú uppistaða ruslsins í Aðalvík. Þar er mikið verðmæti í brotajárni, að dómi kunnugra ,,Þaö er mikið verk að hreinsa til í Aðalvík og ekki á færi nokk- urs eins raanns," sagði Vilhjálm- ur Vilhjálmsson stórkaupmaður. en hann annaðist tilraun til hreinsunar þar, líklega þá einu sem fram hefur farið. Kostnað af því sem Vilhjálmur og menn hans gerðu í Aðalvík greiddi Sala varn- arliðseigna eftir reikningi. Taldi Vilhjálmur að það hefðu verið 7-800 þúsund krónur. Meginhluti upphæðarinnar var laun og flutn- ingskostnaður logsuðumanna og tækja þeirra. Vilhjálmur sagði að hreinsa þ.vrfti fleira en aðeins það ógnar- magn af drasli sem eftir hefði orðið er Bandaríkjamenn fóru. Bretar voru með einhverjar bæki- stöðvar vestanvert við víkina og þar eru einnig leifar sem þyrftu að hverfa. Aðalvík varð að friðlýstu landi fyrir tilstilli Náttúruverndarráðs og formaður þess, Eysteinn Jóns- son, mun hafa þrýst á ríkisstjórn- iria um að þarna yrði hreinsað til og landið yrði aftur eins og það var áður en ríkið gerði samning við landeigendur vegna bygging- ar radarstöðvarinnar. Vegna þessa þrýstings frá Náttúruvernd- arráði fól ríkisstjórnin Sölu- nefndinni að sjá um hreinsunina, að. áliti Vilhjálms. „Við fórum vestur í hittiðfyrra en ekkert var unnið að hreinsun i ár. Voru þarna nokkrir logsuðu- menn með tæki sín. Var gengið á tanka. sem liggja þarna um allar Önnur hús standa sig enn vel. Af byggingarlagi má ráða að ekkert var til sparað að byggja vel. (Ljósm. Skúli Ingim.) fjörur, og þeir skornir sundur þannig að stykkin væru viðráðan- leg fyrir 2-3 menn. Tankar þessir eru úr flotbryggju sem þarna var gerð. Var hún borin uppi af tug- um tanka. Hver tankur er á að gizka 1,5x4 metrar að stærð. Flot- bryggjan var sterk og mikil og bar 80 tonna þunga eða þyngstu vinnuvélar. Ég held að Vitamála- stjórn hafi verið gefin bryggjan en ekki var um gjöfina hirt. Svo fór að bryggjan slitnaði sundur og tankarnir liggja eins og hráviði um allar fjörur,“ sagði Vilhjálm- ur. Vilhjálmur kvaðst hafa verið bjartsýnn á hreinsunarmálin. Ætlun hans hefði verið að ná sam- vinnu við fólk sem ættað er af þessum slóðym og fer þangað í skoðunarferðir hvort sem er. Taldi hann að slíkt fólk hefði átt að hafa ánægju af að taka þátt í hreinsun staðarins. í þessum efn- um kvað hann sér hafa orðið lítið ágengt. „Ef nægileg áhöld og vinnuvél eða vélar væru á staðnum er hreinsunin auðvelt verk. En eins og aðstæður eru nú er vandinn meiri. í járnaruslinu tel ég felast verðmæti sem ætti að borga sig að bjarga og selja í bræðslu. En hvernig á að koma járnaruslinu í skip er annað mál. Að kasta rusl- inu í víkina er óhæfa því á botni hennar eru auðug kúfiskimið. Væri vélum komið á land mætti og grafa draslið og ganga snyrti- lega frá en flutningur véla á stað- inn er nokkurt mál.“ Vilhjálmur sagði frá því að lík- lega um 1908 hefði strandað tog- ari í vikinni. Þar var kviksyndi undir og hvarf togarinn með öllu á nokkrum árum. Vilhjálmur kvaðst hafa hent nokkrum plötum sundurskorinnp tanka á þeim stað er togarinn strandaði í því skyni að kanna hvort stykkin kæmu upp á ný. Það hefði hann kannað sumarið eftir og ekkert séð af sundttrskornu stykkjunum. Þau hefðu horfið eins og togarinn. „Náttúruverndarráð þyrfti að knýja aftur á um hreinsun svæð- isins við Aðalvík. Það var fyrir tilstilli ráðsins að ég fór í hreins- unarferð til Aðalvíkur með log- suðumennina. Það er vart hægt að kalla okkar aðgerðir annað en byrjunar- eða könnunaraðgerðir. Meira þarf að gera því það er agalegt að sjá hvernig Banda- ríkjamenn skildu þarna við,“ sagði ViJhjálmur. En gleymum því ekki að Banda- ríkjamenn skildu þarna eftir mikil verðmæti sem greiðslu fyrir að eftir þá yrði hreinsað. Þessi verðmæti sköpuðu uppgrip hjá Sölu varnarliðseigna og hjá mörg- um einstaklingi. Verðmætin voru sem sé nýtt en það gleymdist að borga gjaldið — hreinsunina á staðnum. Rannsókn antíkmáls- ins enn á byrjunar- stigi í sakadómi Rannsókn antík-málsins hef- ur enn ekki hafizt fyrir alvöru í Sakadómi Reykjavíkur. Þórir Oddsson aðalfulltrúi, sem ann- ast rannsókn málsins þar, hefur verið fjarverandi að undan- förnu vegna veikinda og auk þess hafa önnur forgangsmál legið fyrir. Mál það, sem um ræðir, fjall- ar um meint bókhalds- og skattalagabrot í sambandi við innflutning og sölu á antík- húsgögnum. Að innflutningi þessum og sölu stóð opinber embættismaður sem vikið hef- ur úr starfi á meðan rannsókn málsins fer fram. Þórir Oddsson sagði í samtali við fréttamann blaðsins I gær að hann gæti ekki sagt um hve- nær kraftur yrði settur i rann- sókn málsins. -ÓV Er þetta er ritað hefur Helgi Eyjólfsson framkvæmdastjóri Sölu varnarliðseigna boðið DB á sinn fund og verður fjallað um sjónarmið Söluvarnarliðseigna I sérstökum þætti. -ASt. Draugaborgin á Straumsnesfjalli. Sum húsin eru tekin að brotna eftir 17 ára vanhirðu í óbyggðum og þau húsbrot auka ekki á ..snyrtilegheitin". Úrval jólagj afa Walt Disney kvikmyndir Kvikmyndatökuvélar, margar gerðir Sýningartjöld, blá, þau bestu í bænum Skuggamyndaskoðarar Kvikmyndasýningavélar Sjónaukar í úrvali Leifturljós í úrvali Töskur undir myndavélar, mikið úrval c* Konica myndavélar 4 tegundir Borð fyrir sýningarvélar WWW? Xusturstrœti 6 &nu »955

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.