Dagblaðið - 17.12.1976, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1976.
CHíuverð hækkar um
15% til 1. júlí 1977
— Sádi-Arabía og Sameinuöu
Arabalýðveldin hækka um aöeins 5%
Myndin er frá flugvellinum í Doha i Qatar. þar sem OPEC-fundi er að l.júka. Arabinn á myndinni telur
öruggara að vera með sínar eigin olíubirgðir og treysta ekki um of á vísar niðurstöður leiðtoganna.
Ellefu af þrettán aðildar-
rikjum OPEC, samtaka olíuút-
flutningsríkja munu hækka
olíuverð sitt um 10% frá og
með 1. janúar og aftur um 5%
frá 1. júií á næsta ári.
Valentin Hernandez, olíu-
málaráðherra Venezuela,
staðfesti í morgun að samkomu-
lag hefði orðið um síðari
hækkunina jafnframt þeirri
fyrri.
Ráðherrann sagði þó að
Sádi-Arabar — mestu olíuút-
flytjendur heims, er barizt hafa
fyrir sex mánaða veróstöðvun á
olíu — og Sameinuðu Arabalýð-
veldin myndu aðeins hækka
sína vöru um 5%.
Ekki er ljóst til hvaða ráða
þessi tvö ríki grípa þegar bilið á
milli þeirra og annarra aðildar
ríkja OPEC breikkar enn í júlí
á næsta ári.
I fréttum frá Brussel segir að
Efnahagsbandalag Evrópu
muni verða mun verr úti en
Bandaríkin vegna þessarar tvi-
skiptu hækkunar.
Claude Cheysson, sem sæti á
í framkvæmdanefnd EBE,
sagði á fundi með fréttamönn-
um í Brussel í morgun, að
Bandaríkjamenn hefðu að
undanförnu aukið mjög á inn-
flutning olíu frá Sádi-Arabíu
og Sameinuðu Araba-
lýðveldunum.
Aftur á móti hefði olíu-
innflutningur aðildarríkja
Efnahagsbandalagsins frá þess-
um tveimur ríkjum dregizt mik-
ið saman og væri bandalagið
mjög upp á önnur OPEC-ríki
komin, sagði Cheyssoh. Þau
ætluðu öll að hækka um tíu af
hundraði um áramót og síðan
önnur fimm í júlí , eins og áður
segir.
Spánn:
Veröur föngunum 15
sleppt fyrir kl. 24?
Spánska ríkisstjórnin, sem enn
er í sigurvimu vegna úrslita þjóð-
aratkvæðagreiðslunnar um
stjórnarskrárumbætur, þarf í dag
að taka afstöðu til krafna mann-
ræningja, sem hótað hafa að taka
einn af hæstsettu embættismönn-
um stjórnarinnar af lífi.
Vinstrisinnaðir ræningjar
Antonio Maria de Oriol y Urquijo,
forseta ráðgjafanefndar stjórnar-
innar, hafa hótað að myrða hann
láti stjórnin ekki fimmtán póli-
tíska fanga iausa fyrir miðnætti.
Ræningjarnir hafa krafizt þess
að fangarnir verði fluttir flugleið-
is til Alsír. Sendiherra Alsír á
Spáni átti í gær fund með utan-
ríkisráðherra Spánar. Marcelino
Oreja. Talið er að þeir hafi rætt
möguleikana á því að senda fang-
ana fimmtán úr landi.
Antonio Maria de Oriol yUrquijo.
forseti ráðgjafanefndar spánsku
st.jórnarinnar.
Gilmore er að komast
til meðvitundará ný
Gar.v Mark Gilmore fa-r ekki
að deyja.
Gary Gilmore, dauðadæmi
morðinginn í Utah. var enn
meðvitundarlaus á sjúkrahúsi í
morgun eftir að hafa gert aðra
tilraun i gær til aö svipta sig
1-ífi. í gær var liðinn mánuður
síðan Gilmore revndi fyrst að
stytta sér aldur.
Talsmenn sjúkrahússins
segja þó að búizt sé við að Gil-
moré fái fneðv, uud á ný áður
en lungt um líour og uð heilsa
hans sé eins góð og hægt sé að
búas við.
Gilmore, sem er 36 ára, tók
stóran skammt af svefnlyfjum i
fangaklefa sinum í gær, daginn
eftir að sýsludómari ákvað að
aftakan sk.vldi fara fram 17.
janúar á næsta ári.
Hinn dauðadæmdi kvað
ástæðulaust að fresta aftökunni
rétt einu sinni. og sakaði
dómarann um að sýna
„siðferðislegt hugleysi".
Vinstúlka Gilmores. sem
reyndi að fremja sjálfsntorð um
leið og hann fyrir mánuði
síðan, er undir strangri öryggis-
gæzlu á geösjúkrahúsi. Ekki er'
talið að þau fái að hittast í bráð
— og er þá miöaö við að
Gilmore endurheimti heilsu
sina. Rannsókn fer nú l'rain á
þvi hvernig Gilmore hel'ur
komizt yfir svefnlyfin. sem
hann tók inn i gær.
Erlendar
fréttir
ÓMAR
VALDIMARSSON
[ REUTER j
Miki
hættir á
aöfanga-
dag
Takeo Miki ræðir við frétta-
menn eftir tapið í kosningun-
um á dögunum.
Takeo Miki, forsætisráð^
herra Japans, tilkynnti form-‘
lega í morgun að hann hygð-
ist segja af sér og láta af störf-
um sem leiðtogi hins
niðurlægða Frjálslynda Iýðt
ræðisflokks, sem nú situr við
stjórn í landinu.
Talsmaður Mikis sagði í
morgun að hann hefði sent for-
ystumönnum flokksins bréf,
þar sem hann segðist segja af
sér og taka á sig ábyrgðina af
tapi flokksins í kosningunum
5. desember sl.
Talið er að Miki láti form-
lega af störfum á aðfangadag,
þegar aukaþing kemur samani
til að velja eftirmann hans.1
Líklegt þykir að það verði fyrr-
um aðstoðarforsætisráðherra
landsins, Takeo Fukuda, sem
er 71 árs, tveimur árum eldrí
en Miki.
230
særðust
i spreng-
ingunni á
Bagdað-
fíugvelli
Yfir 230 manns slösuðust í
sprengingunni á flugvellinum
í Bagdað á þriðjudaginn, að
því er frá hefur verið skýrt af
opinberri hálfu í trak.
í opinberri tilk.vnningu
sagði að fjöldi kvenna og
barna hefði blindazt í spreng-
ingunni, sent kostaði þrjá lífið.
Meðal hinna særðu eru
Egyptar. Sýrlendingar. Liban-
ir. Saudi-Arabar. Japanir og
Vestur-Þjóðverjar. sagði i til-
kynningunni.
Flugmaður egypzku vélar-,
innar. sem sögð er hafa flult
sprengjuna til Bagdað, sagði i
Kairó í gær að hefði flugvélin
ekki verið hálftíma á undan
áætlun hefði hún sprungið i
loft upp á miöri leið.