Dagblaðið - 17.12.1976, Síða 17
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1976.
Iþróttir
þróttir
Iþróttir
Iþróttir
Ford leikur á
golfmóti
Bing Crosby
Gerald Ford, forseti, mun taka
þátt i Bing Crosby-golfmótinu
mikla. sem háð verður í janúar.
Það er jafnt fyrir atvinnumenn
sem fræga áhugamenn. Ford er
þokkalcgur golfleikari með 18 í
forgjöf.
Ford getur þó ekki leikið í
fyrstu umferð Crosbymótsins, þar
sem Jimmy Carter verður þá sett-
ur inn í embætti forseta Banda-
ríkjanna — en annar áhugamað-
ur mun leika þá umferð fyrir
Ford. Bing kailinn samþykkti það
strax — en Ford flýgur svo til
Kaliforníu og beint í keppnina.
Boð Arsenal
er of lágt
Plymouth. sem varla hefur
hlotið stig í 2. deiid síðan Paul
Mariner var seldur til Ipswich.
keypti í gær Bruce Bannister.
miðherja Bristoi Rovers.
Bannister hefur iengi verið í
sviðsljósinu — leikið um 300
deildaleiki með Bradford City og
Bristol Rovers og skorað hátt í
150 mörk. Plymouth greiddi 10
þúsund sterlingspund til Rovers
og iét einnig ungan leikmann.
Jimmy Hamiiton, sem iék nokkra
leiki með Sunderland áður en
hann fór til Plymouth.
John Bond. framkvæmdastjóri
Norwich. tók ekki tilboði Arsenal
í gær í Phil Boyer. enska lands-
liðsmanninn hjá Norwich.
Arsenai bauð 175 þúsund
sterlingspund — en Bond telur
það allt of lága upphæð fyrir
Boyer.
Alan Ball. fyrirliði Arsenal. til-
'kynnti Blackpool í gær að hann
mundi athuga önnur tilboð. sem
honum hafa borizt m.a. frá
Southamton. áður en hann ákveð-
ur hvort hann gerist leikmaður
hjá Blackpool. Það verður í byrj-
un næstu viku. en Ball. sém hóf
feril sinn hjá Blackpool. sagðist
bera hlýjan hug til Blackpool og
m.vndi koma iiðinu í 1. deild ef
hann yrði leikmaður þess.
Badmintonmenn héldu nýlega
ársþing sitt og þar var Rafn
Viggósson kjörinn formaður
Badmintonsambands íslands. en
aðrir í stjórn Ragnar Haralds-
Frægu liðin
sigruðu
Real Madrid sigraði Maes Pils.
Belgíu. 81—71 í Evrópubikarnum
í körfubolta í gær. Leikið var í
Malines og staðan var 38—32 fyr-
ir Real í leikhiéi. Fiest stig Real
skoruðu Brabender 26. Rullan 22.
Szczerbiak 16 og Coughran 13, en
fyrir Maes Pils Lister 26 og
Peeters 16. Þá vann Mobiigirgi.
Italíu. Spartak Zorojovka.
Tékkósióvakiu. með 110—73 í
sömu keppni í gær. Leikið var í
Varese á ítaliu. Morse skoraði 38
stig fyrir ítalska liðið. Meister 20.
Bission og Zanatta 16 hvor.
son.varaformaður. Steinar Peter-
sen, ritari, Walter Lentz, gjald-
keri. og Þorsteinn Þórðarson
meðstjórnandi. í varastjórn,
Ilallgrimur Árnason. Axel
Ammendrup og Jónas Þ. Þóris-
son.
Á ársþinginu voru 27 fulltrúar
badmintonfélaga víðs vegar að af
landinu. Mörg mál voru rædd og
afgreidd og umræður oft á tíðum
mjög fjörugar. Það mál, sem bar
einna hæst, var umræða og
samþykkt nýrra laga um liða-
keppni í badminton, sem nú
nefnist deildakeppni. Sú keppni
hefst fljótlega eftir áramót og
félög.sem hafa í hyggju að senda
lið í keppnina, eiga að tilkynna
það til Walter Lentz fyrir 10.
janúar.
Karl Maack, scm verið hefur
formaður Bi í nokkur ár, gaf ekki
kost á sér til endurkjörs. Voru
honum færðar þakkir fyrir mikil
störf í þágu badminton-
sambandsins.
RAFN VIGGÓSS0N
F0RMAÐUR BÍ
Sportmagasín
í húsi Litavers við Grensásveg 22
TIL JÓLAGJAFA:
Bobspil 4.900 kr. — Fótboltaspil 3.400 kr. — Krokett 4.200
kr. — Skautar, verð frá kr. 2.500. — Skiptum á notuðum og
nýjum skautum — Skíðasett 3.775 kr. — Handboltar frá kr.
2.500. — Fótboltar frá kr. 1.500. —Plast- og gúmmíboltar frá
kr. 250. — Fótboltaskór frá kr. 1200.— Æfingagallar frá kr.
4.300. — Adidas æfingaskór frá kr. 3.700 — íþrótta-
fatnaður, allar tegundir
ALLT FYRIR HESTAMENN:
Spaðahnakkar kr. 29.000 — ístöð frá kr. 1.900 — Svipur frá
kr. 800. — Allar tegundir af reiðtygjum.
MJÖG ÖDÝRT:
Kven- og barnapeysur frá 400 kr.
Sportmagasínið Goðaborg hf.
Sími 81617 - 82125
Grensásvegi 22
Efstu lið töpuðu
í Allsvenskan
Sænski landliðsmaðurinn. Claes Ribendahl
Hjaltaiíns sem aðalmarkaskorari Lugi.
sem tekið hefur við hlutverki Jóm
Öll efstu liðin þrjú í Allsvenskan í
handknattleiknum. Hellas. Heim og
Lugi, töpuðu i eileftu umferðinni á
sunnudag — Lugi gegn Lidingö eftir að
hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik.
IFK Malmo heldur afram að hala ínn
stigin. Gerði sér lítið fyrir og vann
Stokkhólmsliðið Hellas með 15-14 í
Malmö. Staðan í leikhléi var 8-7. fyrir
Malmö. Lars Staffanssun var mark-
hæstur leikmanna Malmö með sjö mörk.
Fyrir Hellas skoraði Johan Fischerström
mest — eða fjögur mörk. Dan Eirksson
skoraði tvö mörk, en Lennart Eriksson
ekki nema eitt. Það var markvörður
Malmö, Thomas Andersson, sem lagði
grunn að srgrinum með frábærri mark-
vörzlu — og hann fylgdi í kjölfar þriggja
sigra á útivelli. Gegn Drott, Heim og
Kristianstad.
Lugi hafði yfirburði framan af gegn
Lidingö. í byrjun síðari hálfleiks komst
Lugi í 14-7 og virtist stefna í stórsigur.
En þá fór allt í baklás. Lugi skoraði bara
sex mörk það sem eftir var leiksins,
meðan Lidingö skoraði 14!! — Þeir Kjell
Sjöholm og Bertil Söderberg voru mark-
hæstir í Lidingö-Iiðinu með sjö mörk
hvor. Sænski landsliðsmaðurinn Claes
Ribendahl var að venju markhæstur hjá
Lugi—nú með 4 mörk en sama marka-
fjölda skoruðu einnig þeir Bengt Nyberg
og Eero Rinne. Jón Hjaltalín Magnússon
var ekki meðal þeirra, sem skoruðu
mörk Lugi.
Þá steinlá Heim í Kristianstad —
tapaði með sex marka mun. Lokatölur
24-18 eftir 13-9 i hálfleik fyrir heima-
liðið. Lars-Göran Jon.sson skoraði átta af
mörkum Kristanstad, en Curt Magnus-
son var langhæstur leikmanna Heim.
einnig með átta mörk.
Saab getur ekkert án Björns Anders-
son. sem ekki hefur leikið vegna meiðsla
að undanförnu. Neðsta liðið Frölunda
sigraði Saab með 18-10 (10-4) í Valhalla í
Gautaborg. Guif sigraði Drott á heima-
velli með 18-14 — Bo Andersson skoraði
átta mörk fyrir Guif — en Víkingarna
var eina liðið, sem vann á útivelli. Vann
20-18 í Ystad. Staðan eftir 11. umferðir í
Allsvenskan er þannig:
Hcilas 11 7 2 2 224-201 16
Heim 11 6 1 4 238-211 13
LCGI 11 6 1 4 232-210 13
Krist.st. 11 6 1 4 225-218 13
Vikingarna 11 6 0 5 224-234 12
GUIF 11 5 1 6 227-227 11
Drott 11 5 1 5 228-235 11
Lidingö 11 5 0 6 226-225 10
Ystad 11 3 4 4 220-219 10
Saab 11 4 2 5 204-224 10
Malmö 11 4 0 7 202-214 8
Frölunda 11 2 1 8 182-214 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1976.
17
Iþróttir
þróttir
Sþróttir
Iþróttir
8
EINS STIGS MUNUR Á ÞEIM
EFSTU í HEIMSBIKARNUM!
Lise-María Morerod, Sviss, sigraði í svigkeppninni í Cortina í gær
Lise-María Morerod. Sviss.
sigraði með yfirburðum í svig-
keppninni í heimsbikarnum í
Cortina D'Ampezzo á Ítalíu í gær
—: en forskot hennar í stiga-
keppninni féll niður í eitt stig.
Anna-María Moser-Pröll. Astur-
ríki. sem fimm sinnum hefur
sigrað í keppni kvenna um heims-
bikarinn. varð 23. í sviginu. en
Nýstárlegt
happdrætti
— til stuðnings HM-
þáttöku íslenzka lands-
liðsins í handknattleik
H.S.Í. er komið af stað með
nýstárlegt ferðahappdrætti. ætlað
tii fjáröflunar. vegna hins
kostnaðarsama undirbúnings
landsliðsins fyrir H.M. í Autur-
ríki.
Happdrætti þetta er með því
sniði, að dregið er alls 10 sinnum,
í hvert skipti um glæsilega
ferðávinninga fyrir tvo. Hver
miði kostar 400 krónur, og gildir í
öll skipti sem dregið er, án endur-
nýjunar. Þannig kostar hver miði
í raun 40 krónur.
í fyrsta skipti verður dregið á
aðgangadag og þá um ferð til
Kanaríeyja fyrir tvo. Næst verður
dregið 20. janúar nk., en síðan
mjög ört, þannig að happdrættinu
verður lokið í byrjun marz.
Það er von forráðamanna H.S.Í.
að þetta óvenjulega happdrætti
fái góðar viðtökur, jafnt vel-
unnara handknattleiksins sem al-
mennings.
Á skrifstofu H.Sl. má fá allar
upplýsingar um happdrættið.
vann þrátt fyrir það samanlagt í
Cortina. Yfirburðir hennar voru
svo gífurlegir í brunkeppninni í
fyrradag. Næsta keppni verður á
þriðjudag í Austurríki — brun —
og þá eru allar horfur á. að Anna-
María skjótist upp í efsta sæti
stigakeppninnar. þrátt fyrir fjar-
veru á annað ár frá keppni. þar til
hún byrjaði aftur nú í þessum
mánuði.
Svissneska stúlkan sigraði með
miklum yfirburðum í sviginu í
gær. Var 1.35 sek. á undan Hanni
Wenzel, Lichtenstein, sem varð í
öðru sæti og 1.52 sek. á undan
Claudiu Giordani, sem varð
þriðja. En það nægði Lisu-Mariu
ekki til að sigra samanlagt.
Anna-María varð 23ja og sagði
eftir keppnina, að hún heföi ekki
þorað keyra á fullu, þar sem fall
hefði getað kostað hana sigurinn
samanlagt.
Staðan í heimsbikarnum er nú
þannig:
1. Lise-María Morerod 70
2. Anna-María Moser 69
3. Hanni Werizel 51
4. B. Habersetter, Aust. 43
5. Claudia Giordani 34
6. Cindy Nelson, USA 27
7. L. Sölker, Aust. 22
8. Abbi Fisher, USA 21
9. E. Matous, íran 20
10. M. Kaserer, Aust. 17
—Ég er mjög ánægð með sigur-
inn samanlagt og nú eru tvö brun-
mót framundan í Zell am See í
Austurríki. Þar er líklegt að ég
nái forustunni í heimsbikarnum,
og til þess þarf ég ekki endilega
að sigra. Brautirnar þar eru
meira fyrir hraðann en tæknina,
sagði hin 23ja ára Anna-María í
gær.
I dag og á morgun verður keppt
í bruni karla í Valgardena á
Ítalíu. Franz Klammer, Austur-
ríki, — Olympíumeistarinn frá
Innsbruck, — náði beztum
brautartíma á æfingu í gær í síð-
ari umferðinni, en ekki þeirri
fyrri. Hann var raunverulega
ósigrandi í bruninu á síðasta
keppnistímabili, en talið er, að
hann fái nú harðari keppni frá
Bernard Russi, Walter Tresch,
Rene Berthod og Philippe Roux,
Sviss, og einnig Kanadamönnun-
um Dave Irwin og Ken Read. Þá
gæti ítalinn Herbert Plank orðið
Klammer hættulegur á heimavíg-
stöðvum. Á sunnudag verður
keppt í svigi í Madonna di
Campiglio og þá hefur Ingemar.
Stenmark möguleika á því að ná
efsta sæti i stigákeppninni — en
sem stendur hefur Bandaríkja-
maðurinn Phil Mahre þar
forustu.
Anne-Marie PröII-Moser sann-
aði áþreifanlega aó hún
hefur engu gleymt hvað skiða-
íþróttina áhærir. Hin glæsiiega
skíðakona. sem ekki hafði æft í 20
mánuði eftir að hafa tilkynnt að
hún væri hætt. sigraði í bruni í
keppninni um heimsbikarinn
sem fram fór í Cortina.
Yfirburðir Anne-Marie voru
mikiir — hún var tveimur
sekúndum á undan Brigitte
Habersatter —áður Toschtnig Á
eftir Brigitte komu 10 stúlkur og
tíminn milli þeirra var tvær
sekúndur. Eftir keppnina sagði
Habersatter. að tapa f.vrir konu
með 2 sekúndum — sem í
ofanálag hefði ekki æft í 20 mán-
uði væri nánast ótrúiegt.
Á meðan Anne-Marie sigraði í
Cortina var Ingemar Stenmark í
essinu sínu í Morgins í Sviss. Þar
sigraði Stenmark með mikium yf-
irburðum í svigi — en keppnin
var ekki liður í heimsbikarnum.
90. lands-
leikur
Geirs og
Viðars!
— gegn Dönum
í kvöld
20. landsleikur tslands og
Danmerkur í handknattleik
verður háður i kvöld í
Laugardalshöll — og þar
leika tveir af kunnustu
köppum íslands. Geir
Hallsteinsson og Viðar
Símonarson. sinn 90. lands-
leik hvor. íslenzku lands-
liðsmennirnir stefna í sinn
f.jórða landsleikssigur gegn
Dönum — þrír hafa áður
unnizt í Laugardalshöll.
Danir hafa 15 sinnum sigrað
og einum leik lauk með
jafntefli.
Möguleikar á sigri í kvöld
eru góðir — einkum ef
stuðningur áhorfenda verð-
ur góður. Leikurinn hefst
kl. 21.
Leikurinn hefst á ný og Roger sendir
til Bomma.... i----------------
C King F»»tur>» Syndicaf. Inc.. 197S Woria r.gm» rm••rv»d
Höfunda Helgafells þarf ekki að kynna
Þeir eru ávallt í fararbroddi
HALLDOR
LAXNESS
„Ungur ég var" heitir
nýtt skáldverk eftir Hall-
dór Laxness, unaðslega
fallegt verk, fyndið og
hreinskilið. Bók sem allir
kjósa sér að eignast
strax.
JON
HELGASON
Jón Helgason prófessor,
fyrrverandi forstöðu-
maður safns Árna
Magnússonar, er eitt af
fremstu Ijóðskáldum
okkar fyrr og síðar.
Komnar eru út nýjar
I jóðaþýðingar Jóns,
KVER, með útlendum
kvæðum. Sannkölluð
meistaraverk.
DAVIÐ
STEFÁNSSON
Davfð Stefánsson frá
Fagraskógi gaf á undan-
förnum áratugum út 10
Ijóðabækur. Nú er komin
úthjá Helgafelli skínandi
falleg útgáfa á öllum 10
Ijóðabókum skáldsins
ástsæla.
KRISTJAN
ALBERTSSON
Nýr stórróman, „Ferða-
lok" er komin út eftir
Kristján Albertsson,
raunar ástarsaga lífs-
reynds húmanista, bók-
menntamanns og mann-
vinar. Spennandi lista-
verk.
I Unuhúsi
kaupið þér bestu
bækurnar til
jólagjafa.
Tvö hundruð
klassískar
bækur, dýrar
og ódýrar.
UNUHÚS
HELGAFELL