Dagblaðið - 17.12.1976, Page 18
Saga frá Skagfirðingum
Fyrsta biridi viðamikils heimild-
arrits í árbókarformi um tíðindi,
menn og málefni í Skagafirði
1685-1847, en jafnframt nær frá-
sögnin til annarra héraða, eink-
um á Norðurlandi. Jón Espólín
sýslumaður er höfundur megin-
hluta ritsins, en Einar Bjarna-
son fræðimaður á Mælifelli lauk
verkinu. Ritverk þetta ber öll
sömu höfundareinkenni og Ár-
bækur Espólíns. Mikill fjöldi
manna kemur við söguna, þar á
meðal Hólabiskupar og Skúli
Magnússon síðar landfógeti, og
sagt er frá mörgum sögulegum
atburðum. Útgáfuna önnuðust
Kristmundur Bjarnason, Hannes
Pétursson og Ögmundur Helga-
son.
Úr fórum
Úr fórum
Stefán Vagnssonar
frá Hjaltastöðum
Stórt úrval úr verkum Stefáns,
og hefur meginhluti þess hvergi
verið prentaður áður. Bókin
flytur fjölbreyttar frásagnir af
mönnum, sem höfundurinn kynn-
ist, ýmsar endurminningar hans
sjálfs, þjóðlífslýsingar og þættir,
m. a. mjög sjálfstæða könnun á
samskiptum Bólu-Hjálmars og
Blönduhlíðinga, syrpu af þjóð-
sögum og að síðustu kveðskap
Stefáns af ýmsum toga. Stefán
var ágætlega ritfær og manna
gamansamastur. — Hennes Pét-
ursson skáld valdi bókarefnið og
bjó til prentunar.
Punktur punktur komma
strik
Fyrsta útgáfan af skáldsögu
Péturs Gunnarssonar seldist upp
á þremur vikum, en nú er ný
útgáfa komin á markaðinn. „Fyr-
ir alla muni lesið Pétur Gunnars-
son. Það er ósvikinn rithöfundur,
sem skrifar svona . . .“, segir
Jóhann Hjálmarsson í Morgun-
blaðinu. „Dýrleg lesning", segir
Árni Þórarinsson í Vísi. — Mynd-
ir eftir Gylfa Gíslason.
í leit að sjálfum sér
Hreinskilin og hispurslaus bók
eftir Sigurð Guðjónsson, skýrsla
ungs manns um baráttu við að
finna fótfestu í lífinu, festa hend-
ur á þeim lífsgildum, sem duga.
Höfundurinn leitar ákaft sann-
leikans og h'efur fullan kjark til
að tjá skoðanir sínar umbúða-
laust. — Fyrsta bók Sigurðar,
Truntusól, seldist strax upp og
þessi er þegar á þrotum.
Einleikur á glansmynd
Nútímasaga eftir Þorgeir Þor-
geirsson, ofur raunsæ lýsing á
þjóðfélagi okkar í dag, þar sem
m. a. er fjallað um hin óhugnan-
legu glæpamál samtímans. Með
þessari bók hefur Þorgeir unn-
ið nýjan rithöfundarsigur.
Úr hugskoti
Kvæði og laust mál eftir Hannes
Pétursson. í bók þessari kemur
höfundur víða við og minnist
m. a. ýmissa skálda og rithöf-
unda, s. s. Stefáns frá Hvítadal,
Jóhannesar úr Kötlum, Sigurðar
Nordals, Kristjáns Fjallaskálds
og Steins Steinars. Laust mál
Hannesar er sömu töfrum slung-
ið og Ijóð hans. Ný bók frá hendi
þessa listfengna höfundar er ó-
tvíræður bókmenntaviðburður.
Síðasta skip suður
Hin fallega og skemmtilega bók
Jökuls Jakobssonar og Baltasar
um hverfandi byggð í vestureyj-
um Breiðafjarðar, þar sem
brugðið er upp eftirminnilegum
myndum í máli og teikningum af
sérstæðu mannlífi. Örlitlar leifar
upplagsins hafa verið bundnar
og settar á markað.
ISTEINAR OG STERKIR
LITIR
SVIPMYNDIR 16 MYNDLISTARMANNA
Steinar og sterkir litir
Svipmyndir 16 myndlistarmanna
eftir jafnmarga höfunda. Fjöldi
mynda. Fögur bók og forvitnileg
fyrir alla listunnendur. Meðal
höfunda eru Halldór Laxness,
Hannes Pétursson, Thor Vil-
hjálmsson, Matthías Jóhannes-
sen, Sigurður Benediktsson og
Sigurður A. Magnússon. Bók
þessi hefur verið ófáanleg í all-
mörg ár, en nú hafa leifar upp-
lagsins verið bundnar og settar
á markað.