Dagblaðið - 29.01.1977, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 29.01.1977, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1977. Gjjöf Jóns Sigurðssonar Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar hefur til ráðstöfunar á árinu 1977 1,8 millj. kr. Um verðlaunaveit- ingu og úthlutun fjár úr sjóðnum gilda þær reglur, að fénu skuli verja til „verðiauna fyrir vel samin vísindaleg rit, og annars kostar til þess að styrkja útgáfu slikra rita og til þess að styrkja útgáfur merkilegra heimildarita". Heimilt er og að „verja fé til viðurkenningar á viðfangs- efnum og störfum höfunda sem hafa vísindarit í smíð- um.“ Öll skulu rit þessi „lúta að sögu tsiands, bókmenntum þess, lögum, stjórn og framförum." A síðastiiðnu ári veitti verðiaunanefndin tvenns konar viðurkenningu, verðlaun og starfslaun. Upphæð verð- launanna var 100 þús. kr„ en starfslauna 250 þús. kr. Verðlaun hlutu Arnór Sigurjónsson rithöfundur fyrir framlag til íslenskrar sagnfræði, Heimir Þorleifsson menntaskólakennari fyrir 1. bindi Sögu Reykjavíkur- skóia og Ólafur Halldórsson handritafræðingur fyrir ritið Grænland í íslenskum miðaldaheimiidum. Starfslaun hlutu Gunnar Karisson sagnfræðingur til að ganga frá útgáfu ritsins Frelsisbarátta Suður- Þingeyinga og Jón á Gautiöndum, Hörður Ágústsson iistmálari til að semja ritið Staðir og kirkjur I, Laufás, og séra Koibeinn Þorleifsson tii að ljúka ævisögu séra Egils Þórhallssonar Græniandstrúboða. Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar auglýsir hér með eftir umsóknum um fjárveitingar úr sjóðnum. Skulu þær stílaðar til verðlaunanefndar, en sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6 i Reykjavík, fyrir 15. mars nk. Umsóknum skulu fylgja rit, ritgerðir eða greinar- gerðir um rit í smíðum. Reykjavík í janúarmánuði 1977. 1 verðiaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar Giis Guðmundsson Magnús Már Lárusson Þór Vilhjálmsson. Auglysing um aðalskoðun bifreiða ílögsagnarumdæmi Reykjavíkur i febrúarmánuði 1977 Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur 1. febrúar 2. febrúar 3. febrúar 4. febrúar 7. febrúar 8. febrúar 9. febrúar 10. febrúar 11. febrúar 14. febrúar 15. febrúar 16. febrúar 17. febrúar 18. febrúar 21. febrúar 22. febrúar 23. febrúar 24. febrúar 25. febrúar 28. febrúar R-1 til R-400 R-401 til R-800 R-801 tilR-1200 R-1201 til R-1600 R-1601 til R-2000 R-2001 til R-2400 R-2401 til R-2800 R-2801 til R-3200 R-3201 til R-3600 R-3601 til R-4000 R-4001 til R-4400 R-4401 til R-4800 R-4801 til R-5200 R-5201 til R-5600 R-5601 til R-6000 R-6001 til R-6400 R-6401 til R-6800 R-6801 til R-7200 R-7201 til R-7600 R-7601 til R-8000 Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar til bifreiðaeftirlitsins, Borgartúni 7, og verður skoðun fram- kvæmd þar alla virka daga kl. 08.45 til 16.30. Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum. Festivagnar, tengivagnar og farþega- byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoð- unar. Við skoðun skulu ökumenn bif- reiðanna leggja fram fullgild ökuskír- teini. Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiðaskattur og vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Athygli skal vakin á því, að skrán- ingarnúmer skulu vera læsileg. Vanrœki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tíma verður hann látinn sœta sektum samkvœmt umferðarlög- um og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar nœst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 26. janúar 1977, Sigurjón Sigurósson. Óvenjuleg listsýning á Loftinu: ÖLL VERKIN EFTIR ÞROSKAHEFT BÖRN Óvenjuleg listsýning verður opnuð á laugardag á Loft- inn við Skólavörðustig. Þar eru eingöngu sýnd myndverk þroskaheftra barna. Það var Björg Sverrisdóttir, umsjónar- maður Loftsins, sem átti hug- m.vndina að þessari sýningu, valdi hana og setti upp. .,Það var mikið rætt um mál- efni þroskaheftra barna í lok síðasta árs og þá varð þessi hug- mynd til. Upphaflega ætlaði ég mér að að fá m.vndverk frá öllum þeim stofnunum. þar sem þroska- heft börn eru en ég varð loks að takmarka mig við fjórar slíkar stofnanir’!' af nógu var að taka og plássið takmarkað fyrir myndir.'1' sagði Björg í gær. Hvatti hún fólk til að koma og skoða og skoða vel. Myndirnar eru til sölu, kosta frá 5-10 þúsund. og verður ágóðanum varið til mál- efna þroskaheftra. Opið er virka daga á verzlunartímum en á laugardögum frá 14-18. -JBP- Björg Sverrisdóttir við eina mvndanna á sýningunni. Fóru rænandi og ruplandi um Akranesbæ Tveir aðkomumenn gerðu óvenjulegan usla á Akranesi nótt eina í vikunni. Fóru þeir rænandi og ruplandi um bæinn og stálu miklum verðmætum og ollu spjöllum. Fyrst brutust þeir inn i bíl og stálu úr honum talstöð. Síðan 1 á. leið þeirra inn í íbúð eina. sem talin er hafa verið þeim auð- veld bráð. þvf hún mun hafa verið opin. Þar stálu þeir sjón- varpstæki. Ránsferðinni lauk svo í söluskála í miðbænum þar sem þeir brutu rúðu í bakhurð og stálu síðan tóbaki fyrir á annað hundrað þúsund að verð- mæti. Lögreglan á Akranesi hand- tók mennina og náði öllum ránsfengnum. Mun þó eitthvað af honum hafa orðið fyrir skemmdum. ;ASt. MEGRUNARLEIKFIMI Nýtt námskeið Vigtun — Mæling — — Kaffi — Nudd fæða — Matseðill. Gufa — Ljós - Megrunar- Innritun og upplýsingar i síma 83295 alla virka daga kl. 13-22. Júdódeild Ármanns Ármúla 32.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.