Dagblaðið - 29.01.1977, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. JANUAR 1977.
Stöður íTanzamu
Samkvæmt ósk finnska utanríkis-
ráðuneytisins auglýsast hér með til
umsóknar eftirtaldar 7 stöður við nor-
ræna Landbúnaðarverkefnið í Mbeya,
Tanzaníu.
1. Staöa yfirmanns við rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins í Mbeya,
(Chief scientific officer).
2. Staða forstöðumanns við
rannsóknarstofu jarðræktardeildar
stofnunarinnar.
3. Starf við skipulagningu
rannsóknarstarfseminnar.
4. Starf við skipulagningu rannsókna
á sviði búreikninga og bústjórnar
(Agro-economics-Research Officer).
5. Staða forstjóra við rannsóknarstofu
í efnafræði.
6. Staða leiðbeinanda í heimilishag-
fræði (Home Economics Training
Officer).
7-. Staða fjármálalegs framkvæmda-
stjóra (Financial and Administration
Officer).
Umsóknarfrestur er til 18. febrúar.
Nánari upplýsingar um störfin,
menntunarkröfur, launakjör o. fl.
verða veittar á skrifstofu Aðstoðar
íslands við þróunarlöndin, Lindargötu
45 (herb. 8), en hún verður opin
mánudaga 3-4 e.h. og miðvikudaga 4-
5 e.h, Þar fást einnig umsóknar-
eyðublöð.
Almenni
Músik-
skólinn
Miöbæjarskólanum (noröurdyr).
Innritun nýrra nemenda mánud.,
þriöjud. og föstudaga kl. 18-20.
Kennt er á:
GITAR, HARMONIKU, ORGEL &
PIANO
mandolin, fiölu, flautu, klar, saxo-
phon, trumpet, trombon, bassa og
trommur.
Upplýsingar daglega I sfma 75577.
Skólinn fyrir áhugafólk á öilum aldri.
Iðnaðarhúsnæði
Iðnaðarhúsnæði óskast, helzt með
sýningarglugga.
Uppl. ísíma 17950ogeftir k 1.7 í
síma20397
Hárnn rxc ■ /m
sérverslun með hárkollur
10% afsláttur þessa viku á leðurhönskum, vínilhönskum. prjóna- Hár-
vettlingum, prjóna- húfum, prjönasjölum, prjónatreflum og slæðum. fÐpryði
20% afsláttur af hár- l ysérverslun
kollum. Glæsibæ
Allt ný vara. Reykjavík Sími 32347
Ríkisendurskoðandi segir:
SKÝBSLUM BEB
EKKI SflMAN!
Siðastliðinn mánudag skrifaði
ég grein í Dagblaðið. þar sem
fjallað var um innflutning og sölu
á töbaki. í greininni staðhæfði ég,
að misræmi væri á milli innflutn-
ingsskýrslna og söluskýrslna
ÁTVR. Ég sagði. að á ellefu ára
bili næmi misræmið milli skýrsln-
anna tæpum 1500 tonnum. Ég
komst að þeirri niðurstöðu, að
enginn í ríkisapparatinu hefði
'hugmynd um hvort söluskýrslur
og innflutningsskýrslur væru
réttar. Ég sagði. að enginn hefði
hugm.vnd um hvað væri eðlilegt
og hvað óeðlilegt í þessunt efnum.
Eg sagði- jafnframt. að hver.jum
sem væri hefði verið í lófa lagið
að stinga undan nokkrum tonnum
árlega án þess að eftir því væri
tekið. Þetta eru meginatriði, sem
fram komu í greininni.
Síðan gerist það. að Ríkisendur-
skoðun sendir frá sér yfirlýsingu,
þar sem lýst er hvernig. eftirliti
embættisins með ATVR sé háttað.
Þar segir, að sú staðhæfing mín.
að auðvelt hefði verið að stela af
birgðum ÁTVR, sé út í hött. Þessa
fullyrðingu b.vggir Ríkisendur-
skoðun á nákvæmu birgðabók-
haldi. sem fært sé. Þetta er
einasta atriðið í allri grein minni,
sem Ríkisendurskoðun hnýtur
um. Nú má vel vera, að orð mín
megi skil.ja sem svo, að ég hafi
verið að gefa í sk.vn. að birgða-
rýrnun ætti sér stað á lager
Afengis- og tóbaksverzlunar
ríkisins. Þetta sagði ég aldrei.
Slikt getur gerzt víða annars
staðar á ferli vörunnar til birgða-
gevmslna ATVR. Til þess að ekk-
ert fari á milli inála skal tekið
fram. að birgðabókhald er
skráning vöruhirgða inn og út úr
vörugeymslum.
Inntak greinar minnar má
draga saman í eina fullyrðingu:
Söluskýrslum ÁTVR og innflutn-
ingsskýrslum Hagstofu Islands
ber ekki saman. Og ég spurði og
spyr enn: Hvernig stendur á því?
Hver er skýringin?
í samtali við Halldór V.
Sigurðsson ríkisendurskoðanda í
gær staðfesti hann staóhæfingu
mína. Hann sagði: ,,Það er rétt.
Söluskýrslum og innflutnings-
skýrslum ber ekki saman." Hann
sagði, að það væri ekki í
verkahring Ríkisendurskoðunar
að athuga hver nettóþyngd inn-
flutts tóbaks væri. „Okkur kemur
ekki við hvað þetta vegur," sagði
hann. Hann kvaðst lítillega hafa
kannað þetta atriði og sagði, að
niðurstaðan væri sú, að það væri
ekki hægt að bera þessar skýrslur
saman vegna þess að mismunandi
einingar væru notaðar.
Það er nákvæmlega þetta, sem
ég var að segja i grein minni, og
ekkert annað. Staðhæfingar
mínar urrí misræmi á söluskýrsl-
unt og innflutningsskýrslum hafa
þar með verið staðfestar. Hvaða
ál.vktanir verða af því dregnar er
svo annað mál.
Þess má geta, að Ríkisendur-
skoðun sendi yfirýsingu sína til
Dagblaðsins, þar sem grein mín
birtist, og til Jóns Kjart^nssonar,
forstjóra ÁTVR, þar sem málið
snertir hann óneitanlega. Halldór
V. Sigurðsson sagði aðspurður við
mig í samtali okkar í gær, að það
hefði verið að frumkvæði Jóns
Kjartanssonar. að yfirlýsingin var
send öllum dagblöðunum.
Þar leyfðu tvö dagblöð, Vísir og
Tíminn.sér að túlka yfirlýsinguna
sem endanlegt og fullnægjandi
svar við öllu því, sem ég sagði í
greininni um tóbakið. Vísir talaði
um. að „hulunni hefði verið
svipt" af „le.vndardómnum" og
annað af þvi tagi og Tíminn talaði
um „söguburð" og „árásir" á Jón
Kjartansson.
Halldór V. Sigurðsáon hefur nú
staðfest í samtali við mig, að ég
hafi farið með rétt mál, þegar ég
sagði. að inisræmi væri á milli
söluskýrslna og innflutnjngs-
skýrslna, og þetta misræmi hefði
ekki verið skýrt. Og það sem
meira er, þejta misræmi er ekki
hægt að skýra. Halldór V. Sig-
urðsson rikisendurskoðandi lagði
hins vegar áhexzlu á aó það eftir-
lit, sem sneri að embætti ríkis-
endurskoðanda, væri gott.
Halldór vildi hins vegar, að það
kæmi fram, sem ég tók fram í
grein minni um hugsanlegar
skýringar á misræminu. Þar er
fyrst að nefna að ytri umbúðir
eru áætlaðar á Hagstofu íslands
5% heildarþyngdar. Hitt atriðið
er, að engar skýrslur eru til um
þ.vngd innri og ytri umbúða. Að
meta ytri umbúðir 5% er venja án
þess að nokkur vissa sé fyrir því,
að þessi tala sé nákvæmleea rétt
Jón Kjartansson, forstjóri
ÁTVR, knúði það í gegn, að yfir-
lýsing Ríkisendurskoðunar var
lesin í útvarp í gærmorgun, og er
það algert einsdæmi. Þar með var
reynt að gera mig að ósanninda-
manni, sem alls ekki var ætlunin
með svari Ríkisendurskoðunar.
eins og kom skýrt frarn í samtali
okkar Halldórs V. Sigurðssonar
ríkisendurskoðanda. Ég spurði
Halldór hvort hann hefði verið
spurður áður en athugasemdin
var lesin í útvarp. Hann sagði nei.
Athugasemd hans hefði verið
lesin í útvarp að honum for-
spurðum og hann satt að segja
orðið undrandi þegar hann heyrði
lesturinn i gærmorgun.
Hér fer á eftir vfirlýsingin sem
útvarpsstjóri neitaði að lesin yrði
strax á eftir athugasemd ríkis-
endurskoðanda:
„Vegna þoirrar athugasemdar ríkisendur-
skoðanda. sem hér hefur verifl lesin, vill Halldór
Halldorsson, höfundur greinarinnar sem gerfl er
að umtalsefni, taka eftirfarandi fram:
í fyrsta lagi er bréf ríkisendurskoflanda
athugasemd gerfl afl beiflni fjarmalaraflherra vifl
blaflagrein um Áfengis- og tóbaksverzlun
rikisins, en ekki athugasemd vifl forystugrein
um sama efni, sem birtist i Dagblaflinu i gær.
Þess vegna hlýt ég afl fordæma afl nafn mitt sé
dregið inn i umræflur i útvarpi vegna forystu-
greinar, sem ég skrífafli ekki. Þess vegna er
mefl ollu órettmætt afl nota svar rikisendur-
skoflanda vifl blaflagrein minni sem svar vifl
forystugrein Dagblaflsins.
í öflru lagi er með öllu óréttlætanlegt, og
raunar forkastanlegt, að birta athugasemd ríkis-
endurskoðanda við grein mina i upphafi lestrai
forystugreina dagblaflanna án þess afl hlustend-
um útvarps hafi verifl gerfl grein fyrir efni
greinar minnar. Ég fæ ekki betur sefl en hér sé
um afl ræða brot á hlutleysisreglum Rikisút-
varpsins.
í þriflja lagi er athugasemd rikisendur-
skoðanda rangtúlkun á grein minni um tóbaks-
innflutning og tóbakssölu. Þó ekki værí nema
vegna þess, verflur málið mun alvarlegra. í grein
minni tala ég hvergi um birgflabókhald og dreg
hvergi i efa aö það kunni afl vera i stakasta lagi.
í grein minni segi ég þetta og styðs* i þvi efni
vifl opinbera skyrslu: Skyrslum um sölu a tóbaki
og skyrslum um innflurning a tóbaki ber ekki
saman. Auk þess segi ég afl nær ógreiningur sé
að bera saman þéssar skyrslur vegna þess afl i
innflutningsskyrslum seu vindlar oq vindlingar
taldir i tonnum, en i soluskyrslum séu vindlar og
vindlingar taldir i stykkjum. Niflurstafla min er
sú, að á ellefu árum, frá 1964 til 1975 hafi ekki
verið gerfl. viflhlitandi grein fyrir tæpum 1500
tonnum af tobaksinnflutningi. Margt annafl
tindi eg til, en engu af þvi var svarað."
Halldór Halldórsson.
Lausar stööur
Veðurstofa íslands óskar eftir að ráða
2 eftirlitsmenn fjarskipta. Laun eru
samkvæmt flokki B-ll í kjarasamning-
um ríkisins við opinbera starfsmenn.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi
loftskeytamanns eða prófi rann-
sóknarmanns hjá Veðurstofunni. Um-
sóknir er tilgreini aldur og fyrri störf,
ásamt öðrum upplýsingum ef fyrir
hendi eru, skulu sendar Veðurstof-
unni, pósthólf 5330, fyrir 12. feb. 1977.
Veðurstofa Íslands
DANSLEIKUB í HÓTEL HVEBAGEBÐI
íkvöld kl. 10-2
HUÓMSVEITIN CRYSTAL 0G GYLFIÆGISS0N
MIÐAVERÐ1500 KR.
SÆTAFERÐIR FRÁ B.S.Í. 0G SELF0SSI