Dagblaðið - 29.01.1977, Qupperneq 22
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGIJR 29 .IANUAR 1977.
( Bíóauglýsingar eru á bls. 20 ]
Útvarpið ídag kl. 13.30: Hvað er á seyði?
Að þreyja þorrann
Það verður Guðmundur
Sæmundsson, formaður Sam-
bands íslenzkra námsmanna er-
lendis, sem flytur pistilinn að
þessu sinni. Jú, það mætti segja
mér að hann ræddi eitthvað um
námslánin, en orðið er vitan-
lega frjálst,'1 sagði Einar Örn
Stefánsson, umsjónarmaður
þáttarins A seyði.
Þar sem þorrinn-er nú geng-
inn í garð með öllu því sem
honum tilheyrir, en okkur nú-
tímafólki er sennilega efst í
huga þorramatur, fær Einar
Árna Björnsson þjóðhátta-
fræðing til þess að segja okkur
frá þorranum. Vafalaust fáum
við því ýmsa fróðleiksmola um
hvernig var farið að því að
þreyja þorrann hér áður.
Fastir liðir verða eins og
venjulega, með kynningu á dag
skrá útvarps og sjónvarþs,
fréttum af veðri, færð, íþrótt-
um og létt lög verða leikin inn á
milli. EVI
Sjónvarpið íkvöld kl. 21.40:4stjörnu mynd frá 1952
Afríkudrottningin
20.10 Frá tonlistarhátíö í Holsinki í sumar.
20.40 „Þekktu sjálfan þig". Jon K. Hjaim-
arsson fræöslustjóri ræðir við
Ingimar Jóhannesson, fyrruin skóla-
stjóra.
21.10 Svissneskar lúörasveitir leika.
Fridolin Biinter stjórnar. — Frá út-
varpinu í Zúrich.
21.35 Bjarmalandsför. Steingrimur Sig
urðsson listmálari segir frá ferð um
Norðurlönd.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Sunnudagur
30. janúar
8.00 Morgunandakt. Séra Sigurbjörn
Einarsson biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Útdráttur úr forustugr. dagbl.
8.30 Létt morgunlög. Tónlist frá Noregi
i og Svíþjóð.
9.00 Fréttir. Hver er í símanum?
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morguntónleikar. Ilana Vered
leikur tónverk eftir Chopin,
Píanósónötu nr. 3 í h-moll op. 58 og
Noktúrnu i f-moll op. 55 nj. 1
11.00 Guðsþjónusta í kirkju Fíladelfiu-
safnaöarins í Reykjavík. Einar J. Gisla-
son forstöðumaður safnaðarins
predikar. Guðmundur Markússon les
ritningarorð og bæn. Kór safnaðarins
syngur. Einsöng með kórnum syngur
Agústa Ingimarsdóttir. Orgelleikari
og söngstjóri: Árni Arinbjarnarson.
Daniel Jónasson o. fl. hljóðfæraleikar-
ar aðstoða.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.15 Samanburður á afbrotahneigð karla
og kvenna. Jónatan Þórmundsson
prófessor flytur erindi.
14.00 Sigfús Einarsson: 100 ára minning.
Dr. Hallgrímur Helgason tekur saman
tónlistardagskrá og flytur erindi um
Sigfús.
15.00 Spu.t og spjellaö. Umsjón: Sig-
urður Magnússon. Þátttakendur:
Jenna Jensdottir rithöfundur,
Kristján Friðriksson iðnrekandi,
Kristján Gunnarsson fræðslustjóri og
dr. Wolfgang Edelstein.
16.00 íslenzk einsöngslög. Ragnheiður
Guðmundsdóttir syngur; Guðmundur
Jónsson leikur á píanó.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Staldrað við á Snœfellsnesi. Jónas
Jónasson ræðir við fólk á Gufuskálum
óg lýkur hljóðritun að sinni á flug-
vellinum á Rifi í októbersl.
17.20 Tónleikar.
17.30 Útvarpssaga barnanna: „Borgin við
sundið" eftir Jón Svoinsson (Nonna).
Freysteinn Gunnarsson ísl. Hjalti
Rögnvaldsson les (5).
17.50 Miöaftanstónleikar. Pierre
Fournier og Fílharmoníusveit Vínar-
borgar leika Sellókonsert í h-moll op.
104 eftir Dvorák; Rafael Kubelik
stjórnar. Tilkynningar.
18J5 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Maðurinn, sem borinn var til
konungs" framhaldsleikrit eftir
Dorothy L. Sayers. Þýðandi: Vigdís
Finnbogadóttir. Leikstjóri: Benedikt
^rnason. Fyrsti þáttur: Konungar í
Júdeu. Helztu leikendur: Gísli Hall-
dórsson, Þorsteinn ö. Stephensen,
Pétur Einarsson, Kristín Anna
Þórarinsdóttir, Klemenz Jónsson,
Randver Þorláksson, Jón Hjartarson
og Valdemar Helgason.
20.10 Kammerkórinn í Stokkhólmi syngur
lög eftir Gesualdo, Gastoldi Monte-
verdi og Rossini; Eric Ericson stjórn-
ar.
20.30 Að vera þegn. Hjórtur Pálsson Ies
erindi eftir Hannes J. Magnússon.
21.05 Tónleikar.
21.35 „Landlausir menn", smásaga eftir
Kristján Jóhann Jónsson. Höfundur
les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög. Heiðar Ást
valdsson danskennari velur lögin og
kynnir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
Hún fær fjórar stjörnur,
ameríska myndin Afríkudrottn-
ingin (The African Queen), í
kvikmyndahandbók okkar.
Hún gerist árið 1915 i Mið-
Afríku þar sem systkinin
Samuel og Rose starfrækja trú-
boðsstöð. Trúboðsstöðin er lögð
i rúst og Samuel deyr. Það er
ekkert annað fyrir Rose
(Katherine Hepburn) að gera
en að fara. burtu. Hún fær far
með skipinu Afríkudrottning-
unni. Skipinu stjórnar drykk-
felldur skipstjóri (Humphrey
Bogart) og hann kallar ekki allt
ömmu sína. Þrátt fyrir hina
hrjúfu skel er Bogart hinn
bezti náungi inn við beinið og
Hepburn, hinn siðavandi trú-
boði, verður hrifin af honum.
Það þarf ekki að spyrja um
leik í þessari mynd, hann er
frábær hjá báðum leikurum.
Ekki er síðri leikstjórnin hjá
John Huston.
FVI
Það eru fern hjón, ein úr hverjum hinna fjögurra fvrri þátta, sem
koma fram í kvöld. Spennandi verður að vita hver vinnur þetta
Hjónaspil. en það eru, eins og allir vita, þau sem vita hug hins, hvað
hann eða hún mundi gera undir hinum ýmsu kringumstæðum.
Sjónvarpið íkvöld kl. 20.55:
Lokaþáttur Hjónaspils
Hvert hjónanna veit
bezt um hug hins?
„Það er bezt að hætta hverjum
leik þá hæst stendur,“ sagði Jón
Þórarinsson, deildarstjóri lista-
og skemmtideildar sjónvarpsins,
um þáttinn Hjónaspil. Urslita-
þátturinn er í kvöld og munu ekki
verða fleiri þættir í þessu formi.
Jón sagði að þetta yrði einhæft
til lengdar, rétt væri að breyta til.
Líklega yrði hleypt af stokkunum
öðrum spurningaþætti í marz.
„Nei, það verða ekki sömu
spyrjendur og i Hjónaspili,“ sagði
Jón.
Sem fyrr segir er þetta úrslita-
þátturinn í kvöld. Þátttakendur
eru fern hjón, ein úr hverjum
hinna fjögurra þátta sem fluttir
hafa verið. Þau eru Ingimar
Haukur Ingimarsson og Kristín
Mjöll Kristinsdóttir, Valdimar
Ásmundsson og Edda Sigurðar-
dóttir, Burkni Dómaldsson og
Ólína Sveinsdóttir og Sigurður
Jónsson og Helga Leifsdóttir.
Milli þess sem spurt er og
spjallað skemmta Jakob Magnús-
son og söngflokkurinn Randver.
Spyrjendur er víst óþarft að
kynna, þeir hafa aflað sér vin-
sælda um allt land fyrir skemmti-
lega framkomu og létt fas. Það
eru þau Edda Andrésdóttir og
Helgi Pétursson.
EVI
Uppboðið heitir þátturinn í dag
um Emil í Kattholti. Ungir sem
aldnir hafa haft gaman ' af að
horfa á þennan sænska mynda-
flokk sem byggður er á sögu eftir
Astrid Lindgren, þá sömu og
samdi Línu langsokk.
Það eru bæði vel þekktir og góðir ieikarar. sem fara með aðalhlutverkin í mynd kvöldsins,
Afríkudrottningunni. Það eru þau Humphrev Bogart og Katherine Hepburn.
Sjónvarpið íkvöld kl. 18.35:
Emil í
Kattholti
Uppboðið
20.30 Hmmsókn. Fyrir 40 árum hófu
systur úr St. Fransiskusarreglunni
rekstur sjúkrahúss í Stykkishólmi og
hafa rekið það síðan. Auk sjúkrahúss-
ins starfrækja þær einnig prent-
smiðju og barnaheimili. Sjónvarps-
menn heimsóttu reglusysturnar um
miðjan þennan mánuð og kynntu sér
starfsemi þeirra og lífsviðhorf. Um
sjón Magnús Bjarnfreðsson. Kvik-
myndun Sigurliði Guðmundsson.
Hljóð Jón Arason. Klipping Ragn-
heiður Valdimarsdóttir.
2Í.25 Allir eru að gera það gott. Síðari
skemmtiþáttur með Ríó.
21.45 Saga Adams-fjölskyldunnar. Banda-
riskur framhaldsmyndaflokkur. Loka-
þáttur. Charies Francis Adams II. iðju-
höldur.
22.45 Að kvöldi dags. Séra Grímur Grims-
son sóknarprestur i. Asprestakalli í
Reykjavík flytur hugvekju.
22.55 Dagskrárlok.
Utvarp
Laugardagur
29. ianúar
13.30 A seyði. Einar Orn Stefánssor
stjórnar þættinum.
15.00 í tónsmiðjunni. Atli Heimir Sveins
son sér um þáttinn (12).
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. íslenzkt mál. Dr.
Jakob Benediktsson talar.
16.35 Létt tónlist.
17.30 Framhaldsleikrit barna og
unglinga:.,Bræðúrnir frá Brekku'1
eftir Kristian Elster. Reidar Anthon-
sen færði í leikbúning. Þýðandi: Sig-
urður Gunnarsson. Leikstjóri:
Klemenz Jónsson (Aður útv. 1965).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Gerningar. Hannes Gissurarson sér
um þáttinn.
^ Sjónvarp
Laugardagur
29. janúar
17.00 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.35 Emil í Kattholti. Sænskur mynda-
flokkur byggður á sögum eftir Astrid
Lindgren. Uppboðið. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóltir. Sögujnaður Ragnheið-
ur Sleindór.sdöttir.
19.00 íþróttir.
Hló.
20.00 Fróttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Fleksnes. Norskur gamanmynda-
flokkur. gerður i samvinnu við >.unska
sjónvarpið. Heimboðið. Þýðandi Jön
Thor Haraldsson. (Nordvis-
ion—Norska sjónvarpið)
20.55 Hjónaspil. Spurningaleikur. Loka-
þáttur.
21.40 Afrikudrottningin (The African
Queen) Bartdari.sk bíómynd frá árinu
1952. Leikstjóri John Huston. Aðal-
hlutverk Humphrey Bogart og Kulh-
erine Hepburn. Sagan gerist í Mið-
Atríku ariö 1915. Systkinin Samuel og
Rose starfrækja trúboðsstöð. Oðru
hverju kemur til þeirra dr.vkkfelldur
skipstjóri. Þýskt herlið leggur
trúboðsstöðina i rust með þeim af-
leiðingum, að Samuel andast skömmu
seinna. Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
23.20 Dagskrárlok.
Sunnudagur
30. janúar
16.00 Húsbnndur og hjú. Breskur mynda-
flokkur. Ástarinnar vogna. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
17.00 Mannlifið. Unglingsárin. Tímabiliö
frá 13 til 18 ára aldurs hefur oft verið
talið mesta umbrotaskeiðið á ævi
mannsins. I myndinni er lýst viðhorf-
um unglinga til umhverfisips, þar á
meðal heimilis og skóla. Rætt er við
unglinga, sem hafa lent á „villigöt-
um“, eins og það er nefnt, og foreldrar
segja frá reynslu sinni í uppeldismál-
um. Þýðandi og þulur Óskar Ingimars-
son.
18.00 Stundin okkar.
19.00 Enska knattspyman. Kynnir Bjarni
Felixson.
Hló.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglysingar og dagskrá.