Dagblaðið - 11.02.1977, Side 6
6
r
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. FEBRUAR 1977
Oscarsverð-
launa„kandi-
datar”
útnefndir
Peter Finch hlaut
útnefningu mánuði
eftir andiát sitt
Kvikmyndirnar Network og
Rocky fengu flestar útnefning-
ar til Oscarsverðlauna í Holly-
wood í gær — tíu hvor mynd.
Peter Finch, sem lézt fyrr á
þessu ári, hlaut útnefningu
fyrir bezta aðalhlutverk í Net-
work. Uetta mun vera í þriðja
skipti sem látinn leikari hlýtur
útnefningu. Hinir tveir voru
Spencer Tracy og James Dean.
Hvorugur hlaut þó Oscars-
verðlaunin.
Auk Peters Finch hlutu eftir-
taldir útnefningu sem beztu
leikarar í aðalhlutverki:
Robert DeNiro (Taxi Driver),
Gianearlo Giannini (Seven
Beauties), William Holden
(Network) og Sylvester Stall-
one (Rocky). Stallone hlaut
einnig útnefningu fyrir hand-
ritið að Rocky. Það er í þriðja
skiptið, sem leikari hlýtur
þennan tvöfalda heiður. Hinir
voru Charlie Chaplin fyrir
Einræðisherrann árið 1940 og
Orson Welles fyrir Citizen
Kane árið eftir.
Eftirtaldar kvikmyndir hlutu
útnefningu til Oscars-
verðlauna:
All The Presidents’s Men, ,
Bound For Glory, Network,
Rocky og Taxi Driver.
Oscarsverðlaunin verða af-
hent í Los Angeles við
hátíðlega athöfn 28. marz næst-
komandi.
Concorde flýgur
í Bandaríkjunum
—en rýfur þó ekkl hljóömúrinn
Fulltrúar flugfélaganna British
Airways, Air France og Braniff
undirrituðu í gær samning í
Forth Worth í Dallas. Þar segir að
Braniff muni frá og með júní
næstkomandi. nota Concorde-
þotur til fólksflutninga á milli
Washington og Dallas.
Concorde þoturnar eru
hljóðfráar eins og kunnugt er.
Bandaríkjamenn fá þó aldrei að
heyra. þegar þær rjúfa hljóðmúr-
inn því að Braniff skuldbindur
sig til að fara ekki gegnum hann.
Braniff er fyrsta flugfélagið í
Bandaríkjunum, sem tekur
Concordeþotur í notkun og það
þriðja í heiminum.
Ekkert er því nú til fyrirstöðu að Concorde verði notaðar á
fluglciðinni milli Dallas í Texas og Washington — ef þær fljúga
undir hraða hljóðsins.
Erlendar
fréttir
ÁSGEIFf
TÓMASSON
REUTER
D
París:
Kveiktiísér
á skrifstofu
Aeroflot
Skrifstofumaður á þrí-
tugsaldri kveikti í sér á
skrifstofu sovézka flug-
félagsins Aeroflot í mið-
hluta Parisar í gær. Hann
var þegar í stað fluttur á
sjúkrahús og vart hugað líf.
Að sögn skrifstofufólks
Aeroflot snaraði maðurinn
sér inn í skrifstofuna, hellti
tveimur dósum af steinolíu
yfir sig og bar síðan eld að.
Lögreglan hefur enga hug-
mynd um hvers vegna
maðurinn gerði þetta.
Oft kemur fyrir að skrif-
stofur Aeroflot hafa orðið
fyrir átroðningi mótmæla-
fólks sem þarf að lýsa and-
stöðu sinni við stefnu Sovét-
stjórnarinnar í málefnum
Gyðinga.
Opið til kl. 7 á
föstudögum.
Lokað á laugardögum.
Hringbraut 121
Og enn lœkkum við verðið. í samrœmi við tollalœkkun frá 1. janúar sl.
lœkkum við teppabirgðir okkar þannig að þér getið strax í dag valið teppi
á hinu nýja útsöluverði.
Og við bjóðum eftir sem áður mesta teppaúrval borgarinnar á einum stað.
Þér getið valið úr um 70 stórum tepparúllum eða um 200 mismunandi
gerðum af hinum vinsœlu dönsku Weston teppum.
Sfmar: 10600 — 28603
Jón
Loftsson hf.
ÁKERRÉN-FERÐASTYRKURINN 1977
Dr. Bo Akerrón, lœknir í Svíþjóð, og kona hans tilkynntu íslenskum stjómvöldum
ó sínum tíma, afl þau heföu í hyggju aö bjoöa arlega fram nokkra fjárhœö sem
feröastyrk handa íslendingi er óskaöi aö fara til náms á Noröurföndum. Hefur
styrkurínn veríö veittur fimmtán sinnum, i fyrsta skipti voríö 1962.
Akerrón-feröastyrkurinn nemur aÖ þessu sinni 1.690 sœnskum krónum. Um-
sóknum um styrkinn, ósamt upplysingum um náms- og starfsferíl, svo og
staöfestum afrítum prófskírteina og meömnla, skal komiÖ til menntamálaráöu-
noytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 20. mars nk. i umsókn skal'einnig
greina, hvaöa nóm umsnkjandi hyggst stunda og hvar á Noröuiiöndum. —
Umsóknareyöublöö fást í ráöuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
9. fobruar 1977.
STYRKVEITINGAR TIL NORRÆNNA GESTALEIKJA
Af fá þvi sem Ráöherranefnd Noröurianda hefur til ráöstöfunar til norrnns
samstarfs á sviöi menningarmála er á árínu 1977 ráögert aö verja um 1.145.000
dönskum krónum til gestasýninga á sviöi leiklistar, óperu og danslistar.
Umsóknir um styrki til slíkra gestasýninga eru teknar til meöferöar þrísvar á árí
og lýkur öörum umsóknarfresti vegna fjárveitingar 1977 hinn 1. mars nk. Skulu
umsóknir sendar Norrnnu monningarmalaskrifstofunni i Kaupmannahöfn á
tilskildum eyöublööum, sem fást í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið
9. fobruar 1977.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Sími 15105
Tjáningarfrelsi
er ein meginforsenda þess
að frelsi geti vióhaldist
í samfélagi.