Dagblaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 24
f.. Verðbólgan, Guðbjartur og Samvinnubankinn: VfXLAKAUP UPP A 21 MILUÓN EF REIKNAÐ ER í NÚ-KRÓNUM Viðskipti Guðbjarts Páls- sonar við Samvinnubankann voru miklu umfangsmeiri en nýbirtar tölur bankans gefa til kynna. Sést þetta auðveldlega ef tekið er mið af margföldun almenns neyziuvöruverðlags, sem DB aflaði sér upplýsinga um á Hagstofu íslands í gær. Þá kemur til dæmis í ljós að Guðbjartur seldi Samvinnu- bankanum víxla, sem hann samþykkti sjálfur, fyrir and- virði 21 milljón króna árið 1963. Þá hefur Samvinnu- bankinn skýrt frá því í athuga- semd um skrif Kristjáns Péturssonar um málið að víxil- skuld Guðbjarts Pálssonar við bankann hafi verið kr. 1.465.000 í árslok 1963. Um það þarf ekki að efast en síðan þá hefur neyz'.uvöruverðlag 14.2- faldast og fæst þá út kr. 18.605.500,-. Kristján Pétursson hefur einnig greint frá umtalsverðum hreyfingum á hlaupareikningi Guðbjarts í Samvinnubankan- um í ágúst 1969. Með sömu reikningsaðferð kemur í Ijós, að yfirdráttarskuld Guðbjarts við bankann 11. ágúst 1969 samsvarar andvirði tæplega 23 milljóna króna í dag, (5.7- földun). 13. ágúst lagði Guð- bjartur inn skuldabréf, þá I. 980 þúsund króna virði, í dag II. 3 milljóna króna. Tuttugasta og fyrsta ágúst var núvirði yfir- dráttarskuldar á reikningi Guð- bjarts 16.3 milljónir en tveimur dögum síðar lagði hann inn skuldabréf að núvirði 22.3 milljóna kr. Svo lesendur geti betur gert sér grein fyrir raunverulegu umfangi viðskipta Guðbjarts Pálssönar við Samvinnu- bankann á árunum 1962-1965 eru birtir hér kaflar úr greinar gerð Samvinnubankans um þessi viðskipti, en með núvirði peninganna: Á umræddu tímabili keypti bankinn víxla samþykkta af Guðbjarti Pálssyni sem hér segir: 1962 samtals kr. 16.046.000,- (14.2-földun); 1963 samtals kr. 20.726.400.- (12.7- földun); 1964 samtals kr. 4.028.000,- (10.6-földun). Viðskiptavíxla samþykkta af öðrum aðilum keypti bankinn af Guðbjarti á þessu tímabili þannig: 1962 samtals kr. 3.365.400,-; 1963 samtals kr. 16.764.000,-; 1964 samtals kr. 16.271.000,- og 1965 sam'tals kr. 9.117,900,- (9,9-földun). í árslok 1962 var víxilskuld Guðbjarts Pálssonar samtals kr. 10.934.000.-; í árslok 1963 sam- tals kr. 18.605.500.-; í árslok 1964 samtals kr. 12.794.200,- og í árslok 1965 samtals kr. 9.167.400,-. Samkvæmt þessu hefur Guðbjartur á þessum tíma haft fjármagn frá bankanum vegna víxilkaupa á bilinu frá kr. 10.934.000,- og upp í 18.605,500,- krónur. Með þessari sömu reiknings- aðferð má einnig sjá að núvirði skuldar á hlaupareikningi 313 um áramót 1964 er 3.4 milljónir, en ekki 319 þúsund eins og Samvinnubankinri setur dæmið upp. -ÓV Auðar götur og hreinir bílar — hvcnær áður hefur slíkt verið daglegt brauð í höfuð- borginni næstum því allan janúar og fram i miðjan febrúar. Ekki í manna minn- um. Það er líka einhver munur að geta skolað af bíinum sínum í sólskininu svona rétt eins og verið sé að koma úr lautarferð frá Þingvöllum á miðju sumri. Sólin er farin að hækka á Joftt, hun kom upp í Reykjavík í morgun kl. rúmlega háiftiu — bráðum vakna landsmenn við að fugl- arnir syngja í vorsólinni. Það er gaman að vera höfuðborgar- barn a þessum vetri og þess að ganga um breiðstræti borgarinnar í góðu og fallegu veðri. A.Bj. DB-m.vnd Hörður Vilhjálmsson frjálst, úháð ðagblað FÖSTUDAGUR 11. FEBR. 1977 ÚTBREIÐSLU- STJÓRIKIWANIS í HEIMSÓKN Utbreiðslustjóri Kiwanis- hreyfingarinnar utan Bandarikj- anna og Kanada er í heimsókn á íslandi. Fyrir 15 árum hófst starf hreyfingarinnar hér á landi en ein meginástæðan fyrir heimsókn útbreiðslustjórans, Roberts M. Detloff er hin mikla útbreiðsla Kiwanis hér. Yfir 30 klúbbar eru nú starfandi um land allt og hefur þéssi starfsemi vakið athygli inn- an hreyfingarihnar. Detloff mun hér ræða við forseta Evrópu- stjórnar Kiwanis, Bjarna B. Ásgeirsson. Umdæmisstjóri á íslandi er Bjarni Magnússon. Hólmanesið þurfti ekki að sækja langt í stóra þorskinn Hólmanesið fékk 110 tonn af góðum fiski hér rétt fyrir utan. Megnið af aflanum var stór og góður þorskur, svo hásetahlutur- inn verður góður. A miðin var ekléi nema 6 tíma stím og afla- brögðin voru jöfn og góð, þetta 20 tonn á sólarhring. — Regína Eskifirði. Loðnan: Upp ítveggja sólarhringa löndunarbið — hægt að taka við 4 þús.tonnum á Austf jörðum á morgun Nú er löndunarbið loðnubát- anna á Austfjörðum allt upp í tveir sólarhringar en í gær gáfu verksmiðjurnar þær upplýsingar að þær gætu tekið við 6 þús. tonn- um á laugardag. 1 gær munu um tvö þús. tonn hafa borizt upp í það þannig að 4 þús. eru eftir. Síðasta sólarhring fengu 10 skip 3 þús. tonna afla, skv. upp- lýsingum loðnunefndar, en í nótt fékk aðeins eitt skip afla, 210 tonn. Eitthvað er erfiðara að ná í loðnuna nú en áður, því fleiri bátar voru við veiðar. Heildaraflinn er að nálgast 200 þús. tonn, sem læ.tur nærri að vera helmingi meira en á sama tima í fyrra. Vatnsskortur á Akranesi: Bæjarbúar komu í veg fyrir vanda með sparnaði Akurnesingar komu eiginlega sjálfir í veg fyrir alvarlegan vatnsskort þar því þeir tóku mjög vel við sér þegar bæjaryfir- völd hvöttu þá til vatnssparnaðar. að sögn Reynis Kristinssonar. bæjarverkfræðings. Eftir að fólk var beðið að spara minnkaði notk- unin. sem varð til þess að vandinn varð aldrei mjög alvarlegur. Rennsli varð að vísu mjög lítið á efri hæðum húsa og enn er mjög lítið í safngeymunum. Illákan bætti strax úr ástand- inu. að sögn Re.vnis og er ekki lengur hægt að tala um alvarlegt vandamál. Minniháttar vandt hefur einnig verið í Mosfellssveit i kjölfar jturrkanna, enda minnkar þar í vatnsbólum. en vandinn hefur þó ekki orðið eins mikill þar og á Akranesi. Tösku með 250 þúsund krónum stolið Kona, sem kennir við Náms- flokka Reykjavíkur í Miðbæjar- skóla. varð fyrir miklu fjár- hagslegu tjóni í fyrrakvöld er tösku hennar var stolið. í töskunni voru um 250 þúsund krónur í reiðufé sem konan hafði sótt í banka í því skyni að greiða afborgun af íbúð sinni. Auk þess voru i töskunni fjórar bankabækur og tvær útfylltar launaávísanir. Töskuna skyldi konan eftir í kaffistofu í skólahúsinu, en þar ganga margir um. Ekkert hefur enn fundizt sem vísað gæti á þjófinn. Taskan er ófundin og ekki er vitað til að gerðar hafi verið tilraunir við að ná út úr banka- bókunum eða skipta ávísunun- um. Rannsóknarlögreglan vinnur að málinu. -ASt. -G.S.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.