Dagblaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. FEBRUAR 1977 Nígeríuskreiðin stöðvast í Reykjavíkurhöfn: Undirbúningur skreiðarút- flutningsins til Nígeríu á næst- unni virðist vera eitthvað í mol- um, þ.ví enn liggur Lagarfoss í Reykjavíkurhöfn með 940 tonna skreiðarfarm og má ekki leggja úr höfn. Var lokið við að lesta skipið um síðustu helgi og gat það þess vegna siglt þá. Ástæðan fyrir því að skipið siglir ekki er sú, að Landsbank- inn og Utvegsbankinn telja sig ekki vera búna að fá nægilegar bankatryggingar að utan fyrir farminum, en þessir tveir bank- ar eiga veð í farminum. Þar af leiðandi fæst ekki útflutnings- leyfi. Þegar b.vrjað var að lesta skipið f j'rir nokkru, höfðu bankarnir afskipti af því máli. Eimskip og útflytjendurnir þrír leituðu hins vegar mjög sterklega eftir að fá að halda lestun áfram þar sem banka- ábyrgðir væru væntanlegar á hverri stundu og hentugt væri að skipið gæti siglt um leið og þær bærust. Bankarnir sáu ekki ástæðu til að hefta lestun að þessum útskýringum fengnum, enda lágu fyrir loforð Eimskips og útflytjendanna þess efnis að skipið sigldi alls ekki úr höfn fyrr en fullgildar ábyrgðir Fá ekki að sigla fyrr en tryggingar eru settar lægju fyrir. Umboðsaðilarnir eru SÍS, íslenzka umboðssalan og Samlag skreiðarframleið- enda. Undanfarna daga hafa ábyrgðir verið að berast hingað, en áður höfðu borizt skeyti um að þær væru á leiðinni. Þau skeyti gátu bankarnir ekki tek- ið sem gilda pappíra, enda hafa ýmis vandamál verið samfara þessum útflutningi af og til undanfarin ár. -G.S. í dag er vika síðan lokið var við að lesta Lagarfoss og var hon- um ekkert að vanbúnaði að sigla þá strax, ef pappírar út- flytjendanna hefðu verið í lagi. Verðmæti farmsins um borð mun vera eitthvað nálægt 800 milljónum. DB-mynd Sveinn Þorm. r GOLFTEPPI ^ f fyrir \ heimili—stigahús—skrifstofur AXMINSTER Grensásvegi 8 — Sfrni 30676 TAKIÐ EFTIR! Við bjóðum ekki aðeins mjólk og mjólkurvörur heldureinnig brauðogkökur frá5helztu brauð- gerðarhúsum á Suður landi Einsog áðurverzlum við meðallar kjöt- ognýlenduvörurvið hliðina á mjólkurbúðinni KJ0TB0RG Ein skreiðarferð til Nígeríu hefur fallið niður — Skeiðsfoss átti að lesta skreiðarfarm um síðustu helgi en skortur á bankaábyrgðum kom ívegfyrir það Undir siðustu helgi átti að lesta skreið í Skeiðsfoss til Nígeríu og átti hann að vera annað skip þangað, en þar sem það dróst fram í síðustu viku að lesta Lagar- foss og óvissa ríkti enn um farar- tíma hans, var hætt við fyrirhug- aða ferð Skeiðsfoss. Lagarfoss er ekki enn farinn, en komist bankaábyrgðarmálin vegna þessa útflutnings í lag inn- an tíðar bjóst Erlingur Brynjólfs- son hjá Eimskip við að unnt yrði að skjóta öðru skipi inn 1 fyrir Skeiðsfoss. Lokið var við að lesta Lagarfoss fyrir síðustu helgi og hefur skipið legið í höfn síðan. Skipið er leigt til ákveðins tíma, en Erlingur taldi að ef skipið færi fljótlega, fengi það fljóta afgreiðslu ytra, stæðist samningurinn. Ef leigu- takar hafa skipið í fleiri daga en um er samið, ber þeim að greiða 1500 dollara á dag fyrir það. eða nálægt 300 þúsund krónur. -G.S. Yfirlýsing frá Súðavík: ENGINN REYNDIAD HAFA ÁHRIF Á 0KKUR Við undirritaðir félagsmenn í Verkalýðs- og sjómannafélagi Álftfirðinga, Súðavík, sem studdu framboð núverandi stjórnar félagsins, lýsum furðu okkar á þeim skrifum sem komu fram í Þjóðviljanum þann 8. febrúar frá fráfarandi formanni, Heiðari Guðbrandssyni, í sam- bandi við stjórnarkjör félagsins og lýsum því sem marklausum orðum og staðlausum stöfum að Börkur Ákason, framkvæmda- stjóri Frosta hf. á Súðavík eða nokkur annar aðili hafi reynt að beita áhrifum sínum á skoðanir okkar í sambandi við stjórnar- kjörið og lýsum yfir skömm okkar á slíkum fréttaflutningi. Súðavík 13. feb. Steinunn Jonatansdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir, Kristján Jonatansson, Ingibjörg Egiladóttir, Fríöa Ólafsdóttir, Þorbargur Þorborgsson, Gísli Sigurbjörnsson, Halldór Þóröarson, Sigríður Kristjánsdóttir, Guömundur Halldorsson, Hall- dór Guðmundsson, Ingibjörg Guömundsdóttir, Sigurgoir Garðarsson, ÞorvarÖur Hjaltason.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.