Dagblaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1977. 13 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir ), m úr vegi Steinn Sveinsson skoraói flest stig ÍS — 21. Liðið lék ágætlega í fyrri hálfleik — en datt hins vegar niður í hinum síðari. Aðalkeppinautur Armanns um íslandsbikarinn — Njarðvík vann hins vegar öruggan sigur á ÍR. Að vísu skildu aðeins sex stig í lokin 86-80 en sigur Njarðvíkur var ávallt öruggur — liðið leiddi lengst af með 10-14 stigum. Staðan í leikhléi var 48-38 Njarðvík í vil og sem fyrr í vetur skar sig enginn úr í liði Njarð- víkur — liðið sem heild vann mjög vel. Þeir Gunnar Þorvarðarson og Þorsteinn Bjarnason voru stigahæstir Njarðvíkinga með 14 stig hvor — en Kristinn Jörundsson skoraði 26 stig fyrir IR. sem ekki virtist hafa getu til að vinna upp forskot UMFN. ndregizt ftur úr Englendingar yfirspiluðu Tékka á Wemble.v og sigruóu 3-0 — og Tékkar urðu Evrópumeistarar. Hins vegar gerðist það á miðvikudag að Englend- ingar voru yfirspilaðir á Wembley og nú sjá þeir hættuljósin. Zwartkruis — hollenzki fram- kvæmdastjórinn, sagðist hafa mjög gaman af að horfa á ensk féiagsiið í leik — „en,“ hélt hann áfram, „allir vilja vera ódrepandi vinnuhestar. Hlaupa og sparka — það er mottóið. Og einmitt þetta vilja enskir áhorf- endur sjá.“ Leikmenn Neweastle stigu óvenju- legt skref í gær — allir ieikmenn 1. deildarliðsins skrifuðu undir yfirýs- ingu þar sem þeir lýstu stjórn félags- ins gjörsamlega óhæfa — sögðust enga trú hafa á stjórnarmönnum félagsins. Þeir sögðust leika út keppnistímabilið fyrir Neweastle en aðeins fyrir áhangendur félagsins. Einnig heimtuðu þeir að Richard Dennis yrði skipaður framkvæmda- stjóri félagsins en hann hefur séð um stjórn liðsins eftir að Gordon Lee fór til Everton. ngaverðir bað uin seðla til útfvllingar. Hann sótti síðan seðiana og þeir félagar — fangaverðirnir — útf.vlltu seðiana og afraksturinn varð 76 þúsund krónur. 1 síðustu viku komu fram 9 raðir- með 10 leikjum réttum — og hvorki fleiri né færri en 141 röð með 9 réttum. F.vrir 10 rétta leiki fengust 38 þúsund — og 1000 krónur fengu þeir er höfðu 9 rétta! keppni sreyjar Hjálmar Aðalsteinsson Björgvin Jóhannesson Gunnar Finnbjörnsson Stefán Konráðsson 15—17 ára Hjálmtýr Hafsteinsson Tómas Guðjónsson Sveinbjörn Arnarson 13—15 ára Bjarni Kristjánsson Gylfi Pálsson J Klammer aftur í fyrsta sæti — en naumlega þö - sigraði í bruni í austurríska mótinu aðeins fjórum hundruðustu úr sekúndu á undan öðrum manni Franz Klammer varð austur- rískur meistari í bruni í gær. Sigur meistarans var naumur — en kærkominn eftir að hafa mis- tekizt í tveimur síðustu brun- keppnum í Heimsbikar- keppninni. Þegar átt er við mistekizt er að sjálfsögðu átt við að Klammer hafnaði ekki í fyrsta sæti. En í gær varð hann í fyrsta sæti — aðeins 4 hundruðustu úr sekúndu á undan skæðum keppinaut í heimsbikarkeppninni — Ernst Winkler. Klammer fékk tímann 1:46.47 en Winkler var skömmu á eftir 1:46.51. Þriðji varð Leonhard Stock á 1:47.06. Klammer hóf keppnistímabilið í Ölpunum af miklum krafti og sigraði í átta fyrstu brunkeppnum vetrarins og voru yfirburðir hans með ólíkindum. Síðan seig á ógæfuhliðina eða öllu heldur hlaut að koma að því að Klammer yrði ekki fyrstur. í tveimur síðustu brunkeppnum hefur hann orðið að sjá af fyrsta sætinu og þar með efsta sætinu í hinni hörðu baráttu um heimsbikarinn — en þar er Svíinn Ingmar Stenmark nú í fararbroddi. Svo virðist sem ný stjarna sé að fæðast i sviginu, en það er Paul Frommelt — bróðir hins fræga Willys. Frommelt sigraði í sviss- neska meistaramótinu — og skaut þar aftur fyrir sig Christian Hemmi — bróður Olympíumeist- arans Heini Hemmi. Tranz Klammer — sigur 1 átta fyrstu brunkeppnum vetrarins en siðan kom afturkippur tvívegis. Klammer varð í gær austurrískur meistari í bruni.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.