Dagblaðið - 15.02.1977, Síða 4

Dagblaðið - 15.02.1977, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1977. Hitaorkuverið við Svartsengi sprettur upp: Engin tæríngarhætta þar sem fersku vatni verður veitt á kerfin Hermann Guðjónsson, verk- fræðingur hjá Fjarhitun. Braj>i Kyjólfsson vélstjóri. Hitaveita fyrir öll Suðurnes fyrir áramót Bráðabirgðabúnaðurinn sem veitt hefur dýrmæta reynslu. Hluti hans mun verða notaður áfram, svo sem steypti hljóðdeyfirinn lengst til vinstri, en hann er uppbyggður svipað og hljóðdeyfar í bíium. — DB m.vndir Hörður Vilhjálmsson. Um fimm þúsund rúmmetra hús hefur sprottiö upp á nokkr- um diigum við Svartsengi, ná- lægt Grindavík. en það er utan um búnað fyrsta áfanga varma- orkuversins þar. Reyndar fær um hálf Grindavík þegar heitt vatn frá staðnum en það er i gegnum bráðabirgðaútbúnað síðan i haust. Blaðið ræddi í gær við Braga E.vjólfsson vélstjóra og Her- mann Guðjónsson verkfræðing hjá Fjarhitun h/f og sögðu þeir að re.vnslan af bráðabirgðastöð- inni hefði verið mjög gagnleg. Væru m.a. nokkrar bre.vtingar á upphaflegri hönnun aðalvers- ins raktar til reynslunnar. í tilraunastöðinni eða bráða- birgðastöðinni er vatn tekið úr 1700 metra djúpri holu en^salt og önnur óheppileg efni eru í vatninu og þvi mikil hætta á tæringu í leiðslum. Þvi eru vatnið og gufan skilin að. vatn- ið látið renna úl í lón. þar sem það er ekki notað frekar, en gufunni blandað inn í kalt ferskvatn sem hitnar við það. Að sögn Braga og Hermanns er þó enn lítilsháttar hætta á tæringunni vegna efna í guf- unni sem ekki er hægt að skilja frá. Þvi verður aðalverið hann- að þannig að frá því mun aðeins renna kælt ferskvatn. óblandað heitu vatni úr iðrum jarðar og gufu. Þannig verður engin tær- ingarhætta. Onnur hola. álíka djúp og öfl- ug. er til staðar auk tveggja tilraunahola sem verða virkjað- Hluti vinnubúðanna og mötuneytið. Magnús Stephensen fulltrúi Istaks á staðnum. ar. Þarf þá ekki að bora frekar eftir vatni fyrir fyrsta áfang- ann en varmaorka allra þessara hola samsvarar 40 til 50 mega- vöttum. í nýja húsinu verða m.a. tvær túrbínur til raforkuframleiðslu sem eiga að geta framleitt 2 megavött en það er nægilegt rafmagn fyrir verið sjálft. Raf- magnsþörf þess er nokkuð mikil þar sem knýja þarf mik- inn dælubUnað. Mikið fersk- vatn þarf til versins en að sögn Braga og Hermanns mun nægi- legt vatn líklegast tr.vggt. Er það lagt að nokkurra kílómetra leið. í ár stendur til að vinna við verið fyrir um 1800 milljón- ir króna en eftir er nU að koma tækjabUnaði fyrir í nýja hUs- inu. b.vggja skiljuturna. þjón- ustumiðstöð. þar sem stjórnstöð verður í. og leggja leiðslur til Keflavíkur en vinna við það verk er að hefjast þessa dag- ana. -G.S. Þetta hús var reist á nokkrum dögum. Undirstöðusúlur þaksins steypti Istak h/f austur í Þorlákshöfn en Byggingariðjan h/f steypti einingarnar á milli, sem komu alveg tilbúnar á staðinn, með gleri í gluggum hvað þá annað. Þegar þessi áfangi verður kominn í gagnið, væntanlega seint á þessu ári, fá öll Suður- nesin heitt vatn frá verinu nema b.vggðin á Keflavíkur- flugvelli. Sem kunnugt er eru uppi hugm.vndir um að selja þangað heitt vatn og er áætluð þörf þar álíka mikil og fyrir öll Suðurnesin. Til þess að svo megi verða þarf að bora meira en ekkert er talið þvi til fyrir- stöðu að fá megi verulegt vatns- niagn til viðbótar einnig þyrfti þá að b.vggja annan áfanga, álíka sLóran þeim fyrsta, og yrði / framleiðslugeta versins þá um 90 megavött.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.