Dagblaðið - 15.02.1977, Síða 22
22
I
TÓNABÍÓ
I
Enginn er fullkominn
(Some like it hot)
,,ouuie iiKe ít hot" er ein Oezia
gamanmynd sem Tónabíó hefur
haft til sýninga. Myndin hefur
verið endursýnd víða erlendis við
miklaaðsókn.
Leikstjóri: Billy Wilder.
Aðalhlulverk: Marilvn Monroe,
Jack Lemmon, Tony Curtis.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30.
I
NÝJA BIO
I
French Connection 2
íslenzkur texti
Æsispennandi og mjög vel gerð
ný bandarísk kvikmynd, sem alls
staðar hefur verið sýnd við met-
aðsókn.
Mynd þessi hefur fengið frábæra
dóma og af mörgum gagnrýnend-
um talin betri en French Connect-
ion I,
Aðalhlutverk:
Gene Hackman
Fernando Ray.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30.
Hækkað verð
STJÖRNUBÍO
8
Arnarsveitin
(Eagles over London)
tslenzkur texti.
Hörkuspennandi ný ensk-amerísk
stríðskvikmynd í litum og Cinema
Scope. Sannsöguleg mynd um
átökin um Dunkirk og njósnir
Þjbðverja ,i Englandi.
Aðalhlutverk: Frederick Staff-
ord, Francisco Rabal, Van John-
son.
Ath. breyttan sýningartíma.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Bönnuð innan 14 ára.
HÁSKÓLABÍÓ
I
Árósin á Entebbe-
flugvöllinn
Þessa m.vnd þarf naumast að aug-
lýsa svo fræg er hún og at-
burðirnir sem hún lýsir vöktu
heimsuthygli á sinum tíma þegar
ísraeismenn björguðu gíslum á
Entebbeflugvelli i Uganda.
Myndin er í litum með islenzkum
texta.
Aðalhlutverk:
Charles Bronson
l’eter Finch
Yaphet Kottó.
Bönnuð börnum innan 12 áru.
Sý id kl. 5. 7.10 og 9.30.
Hækkað verð.
Síðasta sinn.
LAUGARASBÍO
II
Carambola
Hörkuspennandi nýr ítalskur
vestri með „tvíburabræðrum"
Trinity-bræðra.
Aðalhlutverk: Paul Smith og
Michael Coby.
Sýnd kl. 5. 7 og 9.
ísl. tgxti.
Hœg eru heimatökin
Ný spennandi bandarísk saka-
málamýnd með Henry Fonda o.fl.
Sýnd kl. 11.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
1
GAMLA BÍÓ
8
Sólskinsdrengirnir
Víðfræg bandarisk gamanmynd
frá MGM; samin af Neil Simon og
afburðavel leikin af Waiter
Matthau og Gcorge Burns.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
D
Litli risinn
Hin spennandi og vinsæla Pana-
vision litmynd með Dustin Hoff-
man og Faye Dunawa.v.
íslenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 8.30 og 11.15.
Samfelld sýning kl. 1.30 til 8.20
Hrœdda brúðurin
Ný bandarísk litmynd
og
Sheba baby
með Pam Grier endursýnd.
Bönnuð innan 16 ára.
Samfelld sýning kl. 1.30 til 8.20.
AUSTURBÆJARBÍÓ
8
ÍSLENZKUR TEXTI
Árás í dögun
(Eagies Attack at Dawn)
Hörkuspennandi og mjög
viðburðarík, ný kvikmynd í litum,
er fjallar um ísraelskan herflokk,
sem frelsar félaga sína úr arab-
ísku fangelsi á ævintýralegan
hátt.
Aðalhlutverk: Rich Jason, Peter
Brown.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
1
BÆJARBIO
8
Bruggarastríðið
Ný hörkuspennandi litmynd um
bruggara og leynivínsala á árun-
um kringum 1930.
ísl. texti.
Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum.
BIAÐIÐ
Umboðsmann vantará
Blönduós.
Upplýsingar hjá Sœvari Snorrasyni,
Hlíðurbraut 1 Blönduósi, sími 95-4122 og
afgreiðslunni í Reykjavík, sími 22078.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15, FEBRJjAR 1977
Utvarp
Sjónvarp
8
Útvarpið íkvöld kl. 20.50:
Að skoða og skilgreina
Þegar fyrsti áhuginn
á hinu kyninu vaknar
„Þessi þáttur verður um sam-
skipti kynjanna og þó sérstak-
lega þegar fyrsti áhuginn
vaknar hjá unglingum á hinu
kyninu. Þá koma upp ýmis
hegðunarmynstur, feimnis-
vandamál og hlutverkaskipti,"
sagði Kristján Guðmundsson
sem stjórnar þættinum Að
skoða og skilgreina ásamt
Erlendi S. Baldurssyni.
Fyrst reifa þeir félagar málið
og taka síðan 15 ára gömul bréf
úr Vikunni og bera þau saman
við nýleg bréf. Hver er munur
vandamálanna, eru þau alveg
þau sömu eða ólík? Þá koma
fram fjórir 17 ára unglingar úr
Menntaskólanum við Tjörnina,
2 stelpur og 2 strákar, og ræða
um þetta efni. Einnig ræða þau
um þá breytingu sem þeim
finnst að hafi orðið á þessum 15
árum. Ef talað er um aðeins
eina breytingu, þá sitja stúlkur
ekki lengur við borð og bíða
eftir að piltarnir komi og bjóði
þeim upp í dans. Þær fara nú á
stúfana og velja sér þann sem
þeim lízt bezt á.
Að lokum verða svo umræður
um kynferðisfræðslu í skólum,
hvort hún eigi að færast meira
þangað eða hvort hún sé næg á
heimilunum.
EVI
Vmiss konar vandamál koma upp á þeim tíma þegar unglingarnir
verða fullorðnir. Sennilega eru þau samt ekki svo ólík og þau voru
fyrir 15 árum, en með því að glugga í Póstinn hjá Vikunni fyrr og
nú kemur ýmislegt áhugavert í ljós.