Dagblaðið - 15.02.1977, Side 24
Framleiðsla Elliða Norðdahl vakti athygli á sýningu íBoston:
VERDUR ÍSLENZK
AMERÍSK VERKSM01A
REISTI U.S.A.?
Nú er i athugun aö reisa
verksmiðju í New Bedford í
Bandaríkjunum, nánar tiltekið
60 mílur sunnan við Boston
með aðild Elliða Norðdahl
Guðjónssonar. Yrðu þar
væntanlega framleiddar þær
vörur, sem hann framleiðir hér,
en það eru raf- og vökvaknúnar
handfæravindur sem hann
hefur einkaleyfi á í USA og
nokkrar gerðir spila.
1 viðtali við Elliða í gær
sagðist hann hafa tekið þátt í
sjávarútvegssýningu í Boston
sl. haust og hefði honum þá
verið boðið til New Bedford til
að kynna sér hvað heimamenn
hefðu þar upp á að bjóða til að
gera þessa hugmynd að raun-
veruleika. Sagðist hann
væntanlega taka ákvörðun um
þetta af eða á í apríl nk. en ýmis
atriði eru ekki enn fullkönnuð.
Að sögn Elliða er New
Bedford staður sem heldur
hefur dregizt aftur úr og er því
lögð áherzla á að greiða þar
fyrir atvinnuvegum, sem þykja
henta staðnum.
Aðspurður hvort hann
hygðist leggja starfsemi sína
hér niður, kæmi til þess, sagði
hann að það væri síður en svo.
Hér yrði framleiðslu haldið
áfram fyrir innlendan markað,
svo og Evrópumarkað. Hins
vegar væri honum ljóst að hann
væri of fjarlægur Bandaríkja-
og Kanadamarkaði hér
og því væri verksmiðjan í
Bandaríkjunum hugsuð sem
hrein viðbót við framleiðsluna.
Élliði hefur selt framleiðslu
sina út um víða veröld og
þannig var hann að afgreiða
spil til Filippseyja um daginn.
Þá er hann að undirbúa að fá
einkaleyfi á sérstökum glussa
ventlum, sem hann hefur fund-
ið upp, og yrðu þeir væntanlega
framleiddir ytra. Um fram-
leiðslugetuna nú sagði hann að
verkstæðið hér hefði hvergi
nærri undan. í næsta mánuði
mun fyrirtækið væntanlega
flytja í nýtt og stærra húsnæði.
-G.S.
Vegaáætlun til 1980:
27 millj-
arðar til
vegaá
fjórum
árum
5650 milljónum á að verja til
vegagerðar í ár og 7 milljörðum
á ári næstu þrjú árin sam-
kvæmt vegaáætlun fyrir 1977-
1980 sem rikisstjórnin lagði
fram á Alþingi í gær.
Afla skal í ár 1600 milljóna í
lánsfé til áætlunarinnar. 3271
milljón kemur inn sem inn-
flutningsgjald, þungaskattur og
gúmmígjald. 779 milljónir
verða beint framlag frá
ríkissjóði.
Bilar í landinu voru 73.100
um' áramótin, og gert er ráð
fyrir að 4400 verði fluttir inn í
ár, 4900 næsta ár, 5500 árið
1979 og 6100 árið 1980. 2800
bílar munu líklega „leggja upp
laupana" á ári.
Heldur meira á í ár að fara til
nýrra þjóðvega en til viðhalds.
2260 milljónir skulu fara til
nýrra vega og 2064 milljónir til
viðhalds. 361 milljón á að fara í
stjórn og undirbúning, 300
milljónir til brúargerða, 80
milljónir til véla- og áhalda-
kaupa og 44 milljónir til fjall-
vega.
Innifalið í lánsfénu verður
sala happdrættisskuldabréfa tib
fjáröflunar til Norður- og
Austurvegar.
Fastir starfsmenn Vega-
gerðar ríkisins eru 477 og er í
áætluninni stefnt að því að
fjölga aðeins um þrjá á þessu
tímabili. Bókhald stofnunarinn-
ar er gert í tölvu.
-HH
Ekkert heyr-
ist frá Hort
Vlastimil Hort hefur enn
ekki tilkynnt um komudag sinn
til íslands til einvígisins við
Boris Spassky. Ekki er heldur
enn vitað hver verður aðstoðar-
maður Horts.
Helzt ætla menn að Hort hafi
að undanförnu dvalizt i fjalla-
kofa sem hann á í fögru um-
hverfi. Þar stundar hann
göngur, veiðiskap og
skákþjálfun.
-B.S.
Fleira en skíðaíþróttir íHlíðarf jalli:
Svíf ur eins og f ugl
yfir skíðafólkinu
A stóru myndinni svífur Her-
bert hátt yfir skiðahótelið. A
minni myndinni er hann að
lenda nokkru neðan við hótelið.
DB myndir: Jón B.ap. og F. Ax.
Flugin eru nú orðin eitthvað
um 50 en samt tel ég mig byrj-
anda enn, sagði Herbert
Hansen á Akureyri í viðtali við
DB í morgun en hann hefur
vakið á sér talsverða athygli að
undanförnu fyrir svifdrekaflug
sem margir álita ofdirfsku.
Herbert er þó ekki á því,
segir þetta byggt á eðlisfræði-
legum lögmálum og flugþekk-
ingu. Á laugardaginn fékk
hann far með snjótroðara alveg
upp undir topp á Hlíðarfjalli
ofan Akureyrar og sveif svo í
mikilli hæð um tveggja kíló-
metra leið og lenti nokkur
hundruð metrum neðan við
skiðahótelið. Þessa dagana
veltir hann fyrir sér að kaupa
enn fullkomnari dreka.
-G.S.
Alfreð Þorsteinsson fær sölunefndina:
Lögfræðingur og
skrifstofustjóri
fyrirtækisins meðal umsækjenda
Það er ekkert ákveðið í því
sambandi, það getur oltið á svo
mörgu, auk þess sem ég var rétt
að frétta þetta og átti ekkert
frekar von á stöðunni, sagói
Alfreð Þorsteinsson, borgar-
fulltrúi framsóknarmanna, er
DB spurði hanr> í gær hvort
hann hygðist draga sig út úr
pólitíkinni í kjölfar
stöðuveitingar forstjóra
Sölunefndar varnarliðseigna.
Eins og blaðið skýrði frá
fyrir nokkru sóttu yfir 30 menn
um stöðuna og dróst eitthvað á
langinn áð veita stöðuna. Var
fyrrverandi forstjóri m.a.
beðinn að sitja áfram um hríð.
DB skýrði frá því að framsókn-
armaður myndi fá stöðuna,
spurningin var aðeins hver.
Alfreð hefur undanfarin 15 ár
verið blaðamaður við Tímann.
Nöfn annarra umsækjenda
fást ekki gefin upp í Varnar-
máladeild utanríkisráðu-
neytisins, en meðal umsækj-
enda var Stefán Skarphéðins-
son, lögfræðingur og skrifstofu-
stjóri fyrirtækisins. Hann
hefur nú sagt upp að því er
Mbl. hefur eftir honum í
morgun. -G.S.
ÞRIÐJUDAGUR 15. FEB. 1977.
LÁ í BLÓÐI
SÍNU Á
HAFNAR-
FJARÐAR-
VEGI
Þrjátíu og sex ára gamall
maður fannst meðvitundarlaus
og liggjandi i blóði sínu á Hafn-
arfjarðarveginum, rétt sunnan
við Digranesbrúna, um
klukkan tvö i nótt.
Maðurinn var fluttur á slysa-
deild Borgarspítalans og síðan í
gjörgæzludeild. Hafði hann
hlotið höfuðhögg mikið og
blæddi úr sári á höfði.
Lögreglan telur að ekki sé
ósennilegt að maðurinn hafi
dottið en rannsókn málsins er
nú í höndum rannsóknarlög-
reglunnar í Kópavogi.
Maðurinn komst til
meðvitundar í morgun á
gjörgæzludeildinni. Var ekki
talið að hann væri í lífshættu,
en meiðsl hans þó enn ekki
fullkönnuð. -A.Bj.
Loðnaá
Reykja-
neshafnir
— veiði dræm
Tveir loðnubátar eru komnir
til Þorlákshafnar, tveir til
Grindavíkur og einn til Sand-
gerðis skv. upplýsingum loðnu-
nefndar í morgun.
Lítil veiði var í nótt og fengu
sjö bátar samtals 2200 tonn.
Síðasta sólarhring var einnig
lítil veiði, eða 13 bátar með
5100 tonn. Einhverjir
erfiðleikar eru að ná henni
þessa stundina. Guðmundur RE
er nú hæstur og kominn með á
tíunda þús. tonn. -G.S.
Fyrirsögnin
ekki í sam-
ræmi við
fréttina
Ástæða er til að harma að
aðalfyrirsögn á forsíðu Dag-
blaðsins í gær var ekki í
samræmi við efni fréttarinnar
sem fylgdi. Þetta var slys, sem
getur hent þegar höfundar
frétta semja ekki sjálfir
fyrirsagnir þeirra. Til árétting-
ar skal það tekið fram, að ekki
hefur orðið „uppvíst um
smygl á miklu magni af LSD“.
eins og sagði í fyrirsögninni í
gær. Fíkniefnadómstóliinn og
fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík hafa engar
upplýsingar veitt DB um grun
þeirra um smygl á LSD.
Sendiboði
til Nígeríu
Enn er Lagarfoss bundinn
við bryggju í Reykjavík með
skreiðarfarm til Nigeríu og
hefur Eimskip ekki frétt neitt
nýtt í morgun. Fulltrúi
útflytjenda fór í skyndingu til
Nigeríu um helgina til að ganga
frá ábyrgðunum en ekki hafa
borizt fréttir frá honum enn.
-G.S.