Dagblaðið - 19.03.1977, Side 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977.
Mikla norræna leggur
10 danskar milljónir
til jarðstöðvarsmíði
Samningur ríkisstjórnar ís-
lands og Mikla norræna rit-
símafélagsins um byggingu og
rekstur jarðstöövar hér á landi
var undirritaður I samgöngu-
ráðuneytinu i gær.
Aætlaður kostnaður viðbygg-
ingu jarðstöðvarinnar er um
einn milljarður króna á núgild-
andi gengi. Af því greiðir Mikla
norræna ritsímafélagið 37,5% I
samræmi við eignarhluta sinn.
Stöðin ætti að vera tilbúin til
notkunar 1979.
I stuttu ávarpi, sem Halldór
E. Sigurðsson samgönguráð-
herra flutti er samningurinn
hafði verið undirritaður, kvað
hann eftirfarandi atriði veiga-
mest:
1. Rfkisstjórnin og félagið reisa
og reka í samvinnu jarðstöð
á Islandi, sem er að meiri-
hluta eign Islands og er
stefnt að þvl að slíkt sam-
band komist á í ársbyrjun
1979, jafnframt verða núver-
andi sæstrengir til Evrópu
og Ameríku nýttir I þágu
fjarskipta við Island til árs-
loka 1985.
2. Eignarhluti félagsins verður
10 millj. d.kr., sem er áætlað
að nemi 37,5% af heildar-
kostnaði. Tekjum er skipt
þannig að félagið mun hafa
eðlilega nýtingu sæstrengj-
anna til 1985 og getur af-
skrifað á eðlilegum tíma
framlag sitt til stöðvarinnar.
Hins vegar er tekjuhluti fé-
lagsins bundinn við ákveðið
mark, og það sem ofan við
það mark er rennur til Is-
lands óskipt.
3. Eignaraðild félagsins er
miðuð við afskriftartíma
stöðvarinnari eða 13 ár, eða
til ársloka 1991 og verður
stöðin þá að fullu eign
Islands án nokkurrar
greiðslu til félagsins. Eftir
árslok 1965 hefur ríkis-
stjórnin hins vegar inn-
iausnarrétt á hluta félagsins
í jarðstöðinni.
4. Sjónvarps- og dagskrárrásir
verða að öllu leyti á vegum
Islands. Sjónvarpinu gefst
nú kostur á að fá frétta-
myndir frá útlöndum sam-
dægurs.
5. Til ársloka 1985 eru gjald-
skrár samningsmál beggja
eignaraðila, en eftir það er
ákvörðunin i slíkum málum
alfarið í höndum íslendinga.
6. Við opnun jarðstöðvarinnar
er gert ráð fyrir að teknar
verði í notkun 24 talrásir til
Evrópu, en áætlað er að
heildarrásafjöldinn verði
kominn upp í 148 árið 1986.
Stöðinni hefur ekki verið
ákveðinn staður, en ljóst er að
hún verður reist í nágrenni
Reykjavíkur.
-ÓV.
Aðalskoðun bifreiða
íMýra-ogBorgar-
fjarðarsýslu, 1977,
verður sem hér segir:
Borgarnes
Borgarnes
Borgarnes
Borgarnes
Borgarnes
Borgarnes
Borgarnes
Borgarnes
Borgarnes
Borgarnes
Borgarnes
Borgarnes
Logaland
Lambhagi
Olíustöðin
21. marz kl. 9—12 og 13—16.30
22. marz kl. 9—12 og 13—16.30
23. marz kl. 9—12 og 13—16.30
24. marz kl. 9—12 og 13—16.30
28. marz kl. 9—12 og 13—16.30
29. marz ki. 9—12 og 13—16.30
30. marz kl. 9—12 og 13—16.30
31. marz kl. 9—12 og 13—16.30
12. apríl kl. 9—12 og 13—16.30
13. apríl kl. 9—12 og 13—16.30
14. april kl. 9—12 og 13—16.30
15. april kl. 9—12 og 13—16.30
18. apríl kl. 10—12 og 13—16.00
19. apríl ki. 10—12 og 13—16.00
20. april kl. 10—12 og 13—16.00
Aukaskoðun verður í Borgarnesi
27.—29. apríl, að báðum dögum með-
töldum, í Lambhaga og Olíustöðinni 2.
maí á sama tíma.
Við skoðun ber að framvísa kvittun
fyrir greiddum bifreiðagjöldum, stað-
festingu á gildri ábyrgðartryggingu
og ökuskírteini.
Skrifstofu Mýru- og Borgarfjarðarsýslu,
14. marz 1977.
Rafmagnsvörurnar
vinsælu
PÓSTSENDUM
S. Sigmannsson & Co.
Ingólfsstræti 6.
| Sími 24277.
VAC-PAC ryksugan
Fyrir bílinn, bílskúrinn, verk-
stæðið og heimilið. Kraftmikil
og sterk.
Varð aðeins:
28.250 — 5 gallon
34.460 — 10 gallon
969 mólningarsprautan
Fyrlr bílinn. heimilið, úðun
garða og margt fleira.
Varð aðeins 9.900 með 5 auka-
stútum.
Baltazar
með sýningu á Kjarvalsstöðum
„Mér finnst gaman að mála úr
þjóðsögum og hér á sýningunni
eru myndir úr sögunni Djáknan-
um á Myrká,“ sagði Baltazar list-
málari, en sýning hans verður
opnuð klukkan tvö í dag á Kjar-
valsstöðum.
Baltazar er spánskur en hefur
verið búsettur hér á landi I mörg
ár og er landsmönnum að góðu
kunnur. A sýningunni eru 50 olíu-
málverk sem flest eru til sölu.
Baltazar sýnir einnig 40 teikning-
ar en þær eru af öllum bændum I
Grímsnesinu. Þær eru gerðar á
árunum 1965-66. Teikningarnar
eru allar í einkaeign.__________
A meðan á sýningunni stendur
verða dansaðir spánskir dansar á
eftirtöldum dögum: 20/3 kl. 5 —
24/3 kl. 9 — 26/3 kl. 5 — 31/3 kl.
9 — 2/4 kl. 9 — 3/4 kl. 5.
Dansarar eru: Guðbjörg Björg-
vinsdóttir, Ingibjörg Björnsdótt-
ir, Oddrún Þorbjörnsdóttir, Björn
Sveinsson, Ólafur Ólafsson og
örn Guðmundsson. Undirieik
annast Helga Ingólfsdóttir,
Mireya Baltazardóttir og Þórir
Hrafnsson.
Sýningin verður opin til 3.
apríl.
-KP
Styrkið
neyðarvamir
\i V 1
rr
RAUÐA KROSS fSLANDS Baltazar og sonur hans ræða saman um myndina Návistina en hún
________________________________ er úr sogunni um Djáknann á Myrká. DB-mynd Bjarnleifur.
360 börn íellefu kórum halda tónleika
Ellefu kórar með um 360
nemendum taka þátt i fyrsta
landsmóti íslenzkra barnakóra
um helgina. Það er Tón-
menntarkennarafélag Islands
sem fyrir mótinu stendur.
Börnin í kórunum ellefu hitt-
ust í morgun til æfinga og í
kvöld er ráðgerð hjá þeim
kvöldvaka í Vogaskóla en á
morgun verður aðalhluti
mótsins, opinberir tónleikar í
Háskólabíói kl. 13. Þar koma
kórarnir fram hver fyrir sig og
einnig sameiginlega. M.a.
verður frumflutt nýtt lag eftir
Jón Asgeirsson tónskáld sem
hann samdi sérstaklega af til-
efni mótsins við kvæði
Tómasar, Garðljóð.
Markmið mótsins er að efla
tónmennt í skólum og örva kór-
söug. Kórstarfsemi á víða erfitt
uppdráttar. Hún er háð velvild
skólastjóra því ekki er gert ráð
fyrir henni í stundaskrá grunn-
skóla. Þrátt fyrir það fer áhugi
á kórsöng vaxandi. Baráttumál
Tónmenntarkennarafélagsins
er því að kórstarfinu verði af-
markaður starfsgrundvöllur
með ákvæðum um lágmarks-
kórtímafjölda í stundaskrá
grunnskóla.
LEIGUMIÐLUNIN
VESTURGÖTU 4 — SÍMI 12850
Höfum opnað leigumiðlun,
þar sem við sjáum um að leigja
íbúðir yðar að kostnaðarlausu
# Við sjáum um að finna einmitt það fólk
sem þér óskið.
# Sjáum um að ganga frá samningum og
innheimta húsaleiguna.
# Reynið viðskipfin — Við erum ávallt
reiðubúnir að liðsinna yður.
>ið mán.—föstud. 1—10 e.h.
Laugardaga 1—6 e.h.
Hvað kosta
lífsgæðin?
Erindi fréttamanns
íNorræna húsinu
Per Runeson, fréttamaðúr
við sænska sjónvarpið, flytur
erindi í Norræna húsinu
á morgun, sunnudag, kl. 16.
Erindið nefnist „Vad ár priset
för válfárd?“ 1 tengslum við
erindið er ljósmyndasýning i
bókasafni hússins um helgina,
sem sýnir dæmi þess hvaða
verði mannkynið kaupir lffs-
gæði háþróaðs tækniþjóð-
félags.
Erindi og ljósmyndum er
ætlað að leiða í ljós hver
áhætta það er þegar dreifbýl-
ingar flytja umvörpum í þétt-
býlið með þeirri afleiðingu að
annars vegar verður eyði-
byggð, hins vegar „slömm“
borganna. Nokkrar myndanna
á sýningunni eru teknar af
Gerði Arnórsdóttur.