Dagblaðið - 19.03.1977, Page 4

Dagblaðið - 19.03.1977, Page 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977. Mikla norræna leggur 10 danskar milljónir til jarðstöðvarsmíði Samningur ríkisstjórnar ís- lands og Mikla norræna rit- símafélagsins um byggingu og rekstur jarðstöövar hér á landi var undirritaður I samgöngu- ráðuneytinu i gær. Aætlaður kostnaður viðbygg- ingu jarðstöðvarinnar er um einn milljarður króna á núgild- andi gengi. Af því greiðir Mikla norræna ritsímafélagið 37,5% I samræmi við eignarhluta sinn. Stöðin ætti að vera tilbúin til notkunar 1979. I stuttu ávarpi, sem Halldór E. Sigurðsson samgönguráð- herra flutti er samningurinn hafði verið undirritaður, kvað hann eftirfarandi atriði veiga- mest: 1. Rfkisstjórnin og félagið reisa og reka í samvinnu jarðstöð á Islandi, sem er að meiri- hluta eign Islands og er stefnt að þvl að slíkt sam- band komist á í ársbyrjun 1979, jafnframt verða núver- andi sæstrengir til Evrópu og Ameríku nýttir I þágu fjarskipta við Island til árs- loka 1985. 2. Eignarhluti félagsins verður 10 millj. d.kr., sem er áætlað að nemi 37,5% af heildar- kostnaði. Tekjum er skipt þannig að félagið mun hafa eðlilega nýtingu sæstrengj- anna til 1985 og getur af- skrifað á eðlilegum tíma framlag sitt til stöðvarinnar. Hins vegar er tekjuhluti fé- lagsins bundinn við ákveðið mark, og það sem ofan við það mark er rennur til Is- lands óskipt. 3. Eignaraðild félagsins er miðuð við afskriftartíma stöðvarinnari eða 13 ár, eða til ársloka 1991 og verður stöðin þá að fullu eign Islands án nokkurrar greiðslu til félagsins. Eftir árslok 1965 hefur ríkis- stjórnin hins vegar inn- iausnarrétt á hluta félagsins í jarðstöðinni. 4. Sjónvarps- og dagskrárrásir verða að öllu leyti á vegum Islands. Sjónvarpinu gefst nú kostur á að fá frétta- myndir frá útlöndum sam- dægurs. 5. Til ársloka 1985 eru gjald- skrár samningsmál beggja eignaraðila, en eftir það er ákvörðunin i slíkum málum alfarið í höndum íslendinga. 6. Við opnun jarðstöðvarinnar er gert ráð fyrir að teknar verði í notkun 24 talrásir til Evrópu, en áætlað er að heildarrásafjöldinn verði kominn upp í 148 árið 1986. Stöðinni hefur ekki verið ákveðinn staður, en ljóst er að hún verður reist í nágrenni Reykjavíkur. -ÓV. Aðalskoðun bifreiða íMýra-ogBorgar- fjarðarsýslu, 1977, verður sem hér segir: Borgarnes Borgarnes Borgarnes Borgarnes Borgarnes Borgarnes Borgarnes Borgarnes Borgarnes Borgarnes Borgarnes Borgarnes Logaland Lambhagi Olíustöðin 21. marz kl. 9—12 og 13—16.30 22. marz kl. 9—12 og 13—16.30 23. marz kl. 9—12 og 13—16.30 24. marz kl. 9—12 og 13—16.30 28. marz kl. 9—12 og 13—16.30 29. marz ki. 9—12 og 13—16.30 30. marz kl. 9—12 og 13—16.30 31. marz kl. 9—12 og 13—16.30 12. apríl kl. 9—12 og 13—16.30 13. apríl kl. 9—12 og 13—16.30 14. april kl. 9—12 og 13—16.30 15. april kl. 9—12 og 13—16.30 18. apríl kl. 10—12 og 13—16.00 19. apríl ki. 10—12 og 13—16.00 20. april kl. 10—12 og 13—16.00 Aukaskoðun verður í Borgarnesi 27.—29. apríl, að báðum dögum með- töldum, í Lambhaga og Olíustöðinni 2. maí á sama tíma. Við skoðun ber að framvísa kvittun fyrir greiddum bifreiðagjöldum, stað- festingu á gildri ábyrgðartryggingu og ökuskírteini. Skrifstofu Mýru- og Borgarfjarðarsýslu, 14. marz 1977. Rafmagnsvörurnar vinsælu PÓSTSENDUM S. Sigmannsson & Co. Ingólfsstræti 6. | Sími 24277. VAC-PAC ryksugan Fyrir bílinn, bílskúrinn, verk- stæðið og heimilið. Kraftmikil og sterk. Varð aðeins: 28.250 — 5 gallon 34.460 — 10 gallon 969 mólningarsprautan Fyrlr bílinn. heimilið, úðun garða og margt fleira. Varð aðeins 9.900 með 5 auka- stútum. Baltazar með sýningu á Kjarvalsstöðum „Mér finnst gaman að mála úr þjóðsögum og hér á sýningunni eru myndir úr sögunni Djáknan- um á Myrká,“ sagði Baltazar list- málari, en sýning hans verður opnuð klukkan tvö í dag á Kjar- valsstöðum. Baltazar er spánskur en hefur verið búsettur hér á landi I mörg ár og er landsmönnum að góðu kunnur. A sýningunni eru 50 olíu- málverk sem flest eru til sölu. Baltazar sýnir einnig 40 teikning- ar en þær eru af öllum bændum I Grímsnesinu. Þær eru gerðar á árunum 1965-66. Teikningarnar eru allar í einkaeign.__________ A meðan á sýningunni stendur verða dansaðir spánskir dansar á eftirtöldum dögum: 20/3 kl. 5 — 24/3 kl. 9 — 26/3 kl. 5 — 31/3 kl. 9 — 2/4 kl. 9 — 3/4 kl. 5. Dansarar eru: Guðbjörg Björg- vinsdóttir, Ingibjörg Björnsdótt- ir, Oddrún Þorbjörnsdóttir, Björn Sveinsson, Ólafur Ólafsson og örn Guðmundsson. Undirieik annast Helga Ingólfsdóttir, Mireya Baltazardóttir og Þórir Hrafnsson. Sýningin verður opin til 3. apríl. -KP Styrkið neyðarvamir \i V 1 rr RAUÐA KROSS fSLANDS Baltazar og sonur hans ræða saman um myndina Návistina en hún ________________________________ er úr sogunni um Djáknann á Myrká. DB-mynd Bjarnleifur. 360 börn íellefu kórum halda tónleika Ellefu kórar með um 360 nemendum taka þátt i fyrsta landsmóti íslenzkra barnakóra um helgina. Það er Tón- menntarkennarafélag Islands sem fyrir mótinu stendur. Börnin í kórunum ellefu hitt- ust í morgun til æfinga og í kvöld er ráðgerð hjá þeim kvöldvaka í Vogaskóla en á morgun verður aðalhluti mótsins, opinberir tónleikar í Háskólabíói kl. 13. Þar koma kórarnir fram hver fyrir sig og einnig sameiginlega. M.a. verður frumflutt nýtt lag eftir Jón Asgeirsson tónskáld sem hann samdi sérstaklega af til- efni mótsins við kvæði Tómasar, Garðljóð. Markmið mótsins er að efla tónmennt í skólum og örva kór- söug. Kórstarfsemi á víða erfitt uppdráttar. Hún er háð velvild skólastjóra því ekki er gert ráð fyrir henni í stundaskrá grunn- skóla. Þrátt fyrir það fer áhugi á kórsöng vaxandi. Baráttumál Tónmenntarkennarafélagsins er því að kórstarfinu verði af- markaður starfsgrundvöllur með ákvæðum um lágmarks- kórtímafjölda í stundaskrá grunnskóla. LEIGUMIÐLUNIN VESTURGÖTU 4 — SÍMI 12850 Höfum opnað leigumiðlun, þar sem við sjáum um að leigja íbúðir yðar að kostnaðarlausu # Við sjáum um að finna einmitt það fólk sem þér óskið. # Sjáum um að ganga frá samningum og innheimta húsaleiguna. # Reynið viðskipfin — Við erum ávallt reiðubúnir að liðsinna yður. >ið mán.—föstud. 1—10 e.h. Laugardaga 1—6 e.h. Hvað kosta lífsgæðin? Erindi fréttamanns íNorræna húsinu Per Runeson, fréttamaðúr við sænska sjónvarpið, flytur erindi í Norræna húsinu á morgun, sunnudag, kl. 16. Erindið nefnist „Vad ár priset för válfárd?“ 1 tengslum við erindið er ljósmyndasýning i bókasafni hússins um helgina, sem sýnir dæmi þess hvaða verði mannkynið kaupir lffs- gæði háþróaðs tækniþjóð- félags. Erindi og ljósmyndum er ætlað að leiða í ljós hver áhætta það er þegar dreifbýl- ingar flytja umvörpum í þétt- býlið með þeirri afleiðingu að annars vegar verður eyði- byggð, hins vegar „slömm“ borganna. Nokkrar myndanna á sýningunni eru teknar af Gerði Arnórsdóttur.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.