Dagblaðið - 19.03.1977, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977.
5
„Ekkert til að tjá..
Um Endatafl eftir Samuel Beckett í Þjóðleikhúskjallaranum
Samuel Beckett er af mörgum
talinn helsti boðberi örvæntingar
og vonleysis í leikbókmenntum
vorra tíma og má jafnvel segja að
örvænting hans hafi hlotið lög-
gildingu með Nóbelsverðlaunun-
um árið 1969. Beðið eftir Godot
var önnur tilraun hans til að
skrifa leikrit eftir nokkrar sögur
og vakti verulega athygli á Beck-
ett og lífsskoðun hans: Lífið er
aðeins óþolandi bið eftir ein-
hverju sem aldrei kemur, — og
dauðanum.
Maður lifir aðeins af
gamalli venju, berst við leiðindi
og sálarkvalir allt lífið, talar til að
drepa tímann, hlustar ekki á
þögnina og gætir þess að vona
ekki. Beckett er því varla hald-
reipi þjökuðum sálum, enda er
hann einn af þeim sem Ölafur
Jóhann Sigurðsson tók í karphús-
ið í varnarskjali sínu fyrir mann-
úðarstefnu, Hreiðrinu. Endatafl
frá 1956 var næsta meiriháttar
leikverk þessa írska furðufugls og
var enn frekari einföldun á öllum
framsögumáta. Godot vísaði til
ákveðinnar leikhúshefðar, ytri
viðmiðunar, en Endatafl var hins
vegar mun huglægara verk, —
herra og á hans valdi eru einnig
foreldrar hans i tunnunum, gaml-
ir og aumir, sem reyna að drepa
tímann með því að minnast fyrri
unaðsst nda eða segja brandara
sem þeir hafa sagt hundrað sinn-
um áður. Og eins óg þeir Hamm
og Clov gefa í sffellu í skyn að
þeir séu þátttakendur í leik, enda-
taflinu, þá meta þau Nell og Nagg
stöðugt sína eigin frammistöðu,
— „ég sagði þessa sögu miklu
betur áður“ o.s.frv. Þar sem þátt-
takendur í Godot þjáðust stöðugt
af minnisleysi, þá minnast þau
Hamm, Clov, Nell og Nagg fortíð-
ar allt í gegnum leikritið og það er
spennan milli hoi.innar og betri
fortíðar og hinna hörmulegu
kringumstæðna nútíðarinnar sem
gefur Endatafli sérstaka og ljóð-
ræna merkingu og gerir verkið að
reglulegum harmleik, pátt fyrir
farsakennd innskot.
Hringrás
tilgangsleysis?
Umheimurinn er auðn, en þrátt
fyrir það krefst Hamm þess aftur
og aftur að Clov lfti út til að
athuga hvort eitthvað hafi skeð.
Lengi vel er ekkert að sjá, en svo
er eins og einhverja glætu sé að
finna f lok leikritsins. Clov sér
dreng sitja í fjarska og Hamm
krefst þess að Clov fari út til að
gera út um hann. En hann skiptir
um skoðun, því að drepa hann er
eins tilgangslaust og að drepa
hann ekki. Hér er aftur ýjað að
minningunni um drenginn sem
eitt sinn kom inn á heimilið, lík-
lega Clov sjálfan. Er þá hringrás-
in að hefjast aftur, annar Clov
kominn til að sjá um annan
Hamm? — og svo framvegis? Við
vitum það ekki. I lokin er Nell
dauð í sinni tunnu og Nagg hul-
inn og kjökrandi, Hamm býr sig
undir endalokin og Clov býst til
brottfarar, — eins og sálin? t leik-
ritinu er oftsinnis minnst á her-
bergið sem skýli, jafnvel felustað,
og öskuhaugurinn úti fyrir gefur
til kynna eyðingu og geislavirkni.
I uppsetningu Endatafls í Þjóð-
leikhússkjallaranum hefur leik-
stjórinn, Hrafn Gunnlaugsson,
tekið þá staðreynd sem útgangs-
punkt. „Varúð. Geislavirkni"
stendur á spjöldum við dyr, kjall-
arinn er myrkvaður eins og loft-
varnarbyrgi og í lokin blikka
Gömlu hjónin, Nagg og Nell (Arni Tryggvason og Guðbjörg Þorbjarnardóttir).
Hamm (Helgi Skúlason) og Ciov (Gunnar Eyjólfsson).
ljósin eins og aðvörunarmerki
vegna loftárásar, — en að öðru
leyti hefur Hrafn fylgt hinni
nákvæmu forskrift höfundar þar
sem allar hreyfingar eru vand-
lega kortlagðar.
Á kostum
Samspil þeirra Hamms og Clovs
er þungamiðja verksins og þar
fara þeir Gunnar Eyjólfsson og
Helgi Skúlason á kostum. Hlut-
verk Helga býður ekki upp á
margar hreyfingar, en þeim mun
mikilvægari er öll raddbeiting og
„timing“, sem Helgi leysir af
hendi með miklum sóma. Hlut-
verk Clovs er umskipting fyrir
Gunnar, sem manna best hefur
túlkað miklar ástríður. Hér
verður hann að fara sér hægt og
spila upp á margskonar blæbrigði
í rödd og man ég vart eftir eins
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
hnitmiðuðum leik frá hans hendi.
Arni Tryggvason var sem ham-
hleypa í hlutverki Naggs, meira
að segja virtist rödd hans hafa
breyst til muna og fór hann lauk-
rétta leið milli farsa og volæðis í
túlkun sinni í tunnunni. Hlutverk
Nells er kannski hið erfiðasta í
leiknum, því þótt hún segi ekki
margt verður leikari hennar að:
undirgangast mikla förðun og
húka í tunnu hátt áannan tima og
á Guðbjörg Þorbjarnardóttir lof
skilið fyrir frammistöðuna. Beck-
ett hefur sagt að vandi lista-
mannsins væri sá að hann hefði
„ekkert til að tjá, ekkert til að tjá
sig með, ekkert afl til að tjá sig
með, enga löngun til að tjá sig, —
en vera nauðbeygður til að tjá
sig“. Sjaldan hefur sú nauðsyn
verið vaki áhrifameiri túlkunar
heldur en einmitt í Endatafli.
Leiklist
segja mætti að það gerðist bók-
staflega í huga einhvers.
Hlutverk þagnarinnar
Ritstíll Becketts breyttist einn-
ig. 1 stað þess að tjá lífsleiða og
vonleysi í athöfn stöðugra spurn-
inga og svara þar sem gleymskan
er mikilvægt atriði, þá er Beckett.
orðinn mun næmari á þunga og
keim orðanna sjálfra og þagnanna
milli orða. Godot gerðist á vegar-
spotta uppi í sveit en Endatafl
gerist í einu herbergi. Þátttak-
endur eru fjórir og aðeins einn
þeirra, Clov, getur gengið en þó
með harmkvælum. Clov er eins-
konar þjónn og húsbóndi hans,
Hamm, er blindur og lamaður í
hjólastól. I herberginu eru einnig
foreldrar Hamms, Nagg og Nell,
fótalaus og sitjandi í öskutunn-
um. Leikritið gengur síðar út á
stöðuga togstreitu milli húsbónda
og þjóns, með stöku innskoti frá
foreldrunum, og má líta á hana
sem einskonar endatafl, enda
hefja þeir Clov og Hamm mál sitt
stundum með: „Minn leikur". En
eins og vænta má frá hendi Beck-
etts er hér ekki um að ræða tafl
sem nokkur getur unnið, það er
eins tilgangslaust og lífið sjálft.
Ekki er hægt að treysta á komu
neins Godots. Þeir Hamm og Clov
skiptast á sundurslitnum setning-
um, um liðan sína og ástandið úti
fyrir, rífast og sættast og af þeim
samræðum má ráða að Clov hafi
komið inn á heimili Hamms sem
barn og hafi síðar gerst þjónn
hans og að umheimurinn sé nú
auðn og öskuhaugur.
Ásthatur
Clov gerir sig líklegan til að
yfirgefa húsbónda sinn oftar en
einu sinni en Hamm hefur á hon-
um dularfulll tangarhald, — þeir
hata hvor annan en geta ekki án
hvor annars verið, fyrr en síðast.
Hamm er grimmlyndur einræðis-
BORGHAMAR
OPNAR í DAG NÝJA
HÚSGAGNA-
BYGGINGAVÖRUVERZLUN
AUSTURMÖRK 4
HÆÐ HVERAGERÐI
VERIÐ VELKOMIN AÐ LÍTAINN
DADPUAHIAD Austurmörk4
DUIfUliAIVIAK Sími 994330