Dagblaðið - 19.03.1977, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977.
1
Iðnnemar hafa 600
þús. krónur íárslaun
—og eru verst launaða stétt landsins
„Iðnnemar eru án efa ein
lægst launaða stétt landsins,“
segir í ályktun um kjaramál
sem samþykkt var á kjaramála-
ráðstefnu Iðnnemasambands
íslands á Akureyri um síðustu
helgi. Þar segir ennfremur:
„Stafar það af því, að við
gerð kauptaxta iðnnema er mið-
að við kauptaxta sveina á fyrsta
ári. Staðreyndin er sú, að eng-
inn sveinn vinnur eftir þeim
taxta. Greinilegt er því, að
þessari aðferð er einungis beitt
til þess að halda nemakaupinu
niðri. Til marks um það, hve
iðnnemakaup er lágt má geta
þess, að árstekjur samkvæmt 1.
árs taxta sveina eru nú u.þ.b.
970 þúsund kr„ en árstekjur
fyrsta árs nema 600 þúsund
krónur. Sér hver maður að eng-
inn lifir á slíkum launum.
Ljóst er að útreikningur nema-
kaups miðað við 1. árs taxta
sveina stendur mjög í vegi fyrir
bættum launum iðnnema, og
hvetur því ráðstefnan sveinafé-
lögin til þess að fella niður sinn
fyrsta árs taxta.“
Kjaramálaráðstefnu iðnnema
sóttu um 60 fulltrúar alls staðar
að af landinu. Þar voru flutt
ávörp og einnig erindi um
þróun kjaramála iðnnema og
baráttu iðnnemahreyfingarinn-
ar á því sviði, allt frá síðustu
áramótum.
Ráðstefnan mótaði kröfur
iðnnemahreyfingarinnar sem
settar verða fram í komandi
kjarasamningum.
í ályktuninni um kjaramál
var áréttuð krafan um fullan
verkfallsrétt til iðnnema, sem
talin er forsenda verulegra
kjarabóta, sé honum beitt.
Voru iðnnemafélög á öllu land-
inu hvött til að herða baráttuna
fyrir þessari grundvallarkröfu.
-ASt.
Kjarvals-
myndir í
einkaeign
—sýndará
Rjarvaísstöðum
„Flestir tóku því mjög vél þeg-
ar þess var farið á leit að þeir
lánuðu myndir á sýninguna,“
sagði Alfreð Guðmundsson'í sam-
tali við DB. Myndirnar sem
Alfreð talar um eru verk eftir
meistara Kjarval sem eru í einká-
eign hinna ýmsu aðila. Þau verða
sýnd almenningi á Kjarvalsstöð-
um frá og með næsta sunnudegi.
Sýningin verður opin fram í ágúst
í sumar, um helgar frá klukkan
2-10 og virka daga frá klukkan
4-10, nema mánudaga.
Fæstar þessar myndir hafa áð-
ur verið sýndar opinberlega á
sýningu. Er því mikill fengur að
fá að kynnast þeim. Elzta myndin
er frá árinu 1917 og sú yngsta frá
því rétt áður en listamaðurinn
lézt árið 1968.
-KP
„Krítík" er ein stærsta mynd sem
Kjarval málaði. Hún er i eigu
Reykjavíkurborgar og er 213x402
cm að stærð.
DB-mynd Bjarnleifur.
Fyrirlestur
„Að gera og að vera“ eða
„skyldu stjórnmál hljóta að
vera siðlaus?" nefnist fyrirlest-
ur sem Þorsteinn Gylfason lekt-
or flytur í dag á vegum Félags
áhugamanna um heimspeki.
Siðlaus stjdrnmál?
Erindi Þorsteins snýst um
efni á mörkum heimspekilegr-
ar sálarfræði og siðfræði, segir
í fréttatilkynningu félagsins.
Það er flutt í minningu enska
heimspekirjgsins Gilberts Ryles
sem lézt á síðasta ári og verður
á fundarstað Lögbergs, húss
lagadeildar Háskólans, og hefst
klukkan hálfþrjú. Fyrirlestur-
inn er öllum opinn.
Karpað um eftirvinnu-
laun þjóðgarðsvarða
— Gæzlumenn hafa stofnað félag sem yfirvöld
vilja ekki semja við heldur skammta
„A sl. hausti stofnuðu gæzlu-
menn, sem verið hafa við eftir-
litsstörf á ýmsum stöðum lands-
ins sem Náttúruverndarráð og
Ferðafélag Islands hafa haft
umsjón með, með sér félag. Fé-
lagsmenn eru rétt innan við
tuttugu. Við höfum í hyggju að
setja fram kaupkröfur okkar og
höfum í rauninni gert það,“
sagði Ólafur Guðmundsson sem
verið hefur við gæzlu í þjóð-
garðinum í Skaftafelli i sjö
sumur.
„Okkur finnst að störf okkar
séu einna líkust störfum lög-
regluþjóna við sérstök skilyrði
og vildum því fá sömu laun og
þeir, eða samkvæmt níunda
launaflokki. Þá vill svo undar-
lega til að Náttúruverndarráð
vill ekki samþykkja þennan
launaflokk heldur býður upp á
laun sem eru samkvæmt B-15
sem er töluvert hærra en það
sem við fórum fram á. Þá kem-
ur aftur til að með þeim laun-
um átti ekki að greiða neina
yfirvinnu.
Samkvæmt launaskrá á að
skila fjörutiu vinnustundum á
viku en ef miðað er við að starf-
ið sé leyst samvizkulega af
hendi er mikil aukavinna sam-
fara því. Mér telst svo til að
aukavinnustundir mínar í
Skaftafelli hafi ekki verið færri
en fimmtíu á viku.
Ef við fengjum laun sam-
kvæmt níunda launaflokki, sem
nú eru í efsta þrepi kr. 102.440,
fórum við fram á að fá tvær
eftirvinnustundir á dag og þar
með eru eftir þrjátíu og sex
eftirvinnustundir sem ekki yrði
greitt fyrir.
Nú býður Náttúruverndarráð
hins vegar upp á kr. 124.765 kr.
í mánaðarlaun og auk þess að fá
greiddan fæðiskostnað, 775 kr.
á dag, sem ekki hefur verið
áður, en enga aukavinnu.
Náttúruverndarráð hefur
ekki ætlað sér að semja við fé-
lagið um launakjör heldur hafa
sama háttinn á og áður, að ráða
þá sem vilja vinna við þessi
störf fyrir þau laun sem þeir
hjá ráðinu ákveða sjálfir,"
sagði Ólafur Guðmundsson.
„Finnst mér að með þessum
samningavinnubrögðum um
kaup og kjör sé verið að hverfa
fimmtíu-sextíu ár aftur i tím-
ann, ef á að ráða starfsfólk sem
vill vinna fyrir sem lægst
kaup,“ sagði Ólafur. A.Bj.
JOSTYKIT
NYR
STAÐUR
GRETTISGATA 46
NÝTT
SÍMANÚMER
21366
Nýsendingkomin
Einnig hátalaraKit
SAMEIND HF.
Grettisgata 46.
Sími 21366.
Opið 17.15—19, iaugardaga 9—12
• ••
LAUGAVEGI73 - SÍNII15755
Vorum að fá mikið úrval j
af ferðatöskum •
og innkaupatöskum •
Töskuhúsið, Laugavegi 73 •
JEPPAEIGENDUR
Sparið bensín og minnkið slit með Warn
framdrifslokum. Warn framdrifslokur fóst í
eftirtaldar bifreiðir:
Land Rover Willy’s Wagoneer
Ford Bronco Scout
Willy’sjeppa Biazer
og flestar gerðir af pick-up bifreiðum
með f jórhjóladrifi.
Amerísk bif reiðalökk
Þrjár línur íöllum litum
Mobil
Synthetic Enamel
Mobil OIL CORPORATION FORMULA
Acrylic Lacquer
Mobil OIL CORPORATION FORMULA
Acrylic Enamel
Mobil OIL CORPORATION FORMULA
Einnigöll undirefni,
málningasíur, vatnspappír
Hrafn Jónsson & Co. Brautarholti 22. Simi 22255.