Dagblaðið - 19.03.1977, Page 13
R
AGRI Aftlí)
i Aiip a nnAniiDifli
Monica Zetterlund er mjög
virt söngkona í sínu heima-
landi. Þá eru undirleikarar
hennar einnig i fremstu röð
hljóðfæraleikara í Svíþjóð. —
Meðfylgjandi mynd er af söng-
konunni.
-AT-
SITT LÍTIÐ
AFHVURJU
Guð minn góður, hljómsveit-
in Monkees er að byrja að spila
aftur! í viðtali við ITV sjón-
varpið sagði Mickey Dolenz að
hann hefði talað við hina með-
limina og þeir hefðu fast-
ákveðið að koma saman í apríl
næstkomandi og taka upp eina
plötu. — Bara að það verði nú
ekki gerðir sjónvarpsþættir
með grúppunni líka.
★
Tónlistartegund þeirri, sem
Hljómsveit Þorsteins Guð-
mundssonar flytur á plötu
sinni Grásleppu-Gvendur,
hefur verið gefið nafn. „Grá-
sleppurokk“ skal tegundin
heita. Þar með hefur tríóinu
Poppblaðið kemur
ekki oftar út
„ Útgáfan borgaði sig ekki," segir ritstjórinn
Fólk getur nú hætt að bíða
eftir næsta Poppblaði því að
það kemur ekki út. Gunnar
Salvarsson ritstjóri og útgef-
andi blaðsins sagði í samtali við
Dagblaðið á fimmtudag að hann
hefði einfaldlega ekki efni á
því að halda blaðinu úti.
Gunnar kvað tvær ástæður
vera fyrir þvi að hann gæti ekki
gefið blaðið út. Önnur væri sú
að hann hefði vonazt til að fá
söluskatt felldan niður af verð-
inu. Sú von hefði algjörlega
brugðizt.
„Hin ástæðan er sú,“ sagði
Gunnar, „að það er ekki mark-
aður fyrir sérrit um popp á
íslandi. Poppsíður dagblaðanna
virðast fullnægja þörfum hins
almenna lesanda. Sá hópur,
sem les allt poppefni sem
kemur á markaðinn, er hins
vegar svo þröngur að ekki
myndi borga sig að gefa út
blað fyrir hann — nema ef til
vill fjölritaðan bleðil.“
Gunnar Salvarsson sagði að
Poppblaðið hefði fengið mun
betri viðtökur úti á landi en í
Reykjavík. Til dæmis hefði bor-
izt fjöldi bréfa þaðan með
óskum um efni og öðru. —
Gunnar hefur um langt skeið
séð um Nú-Tímann í Tímanum.
Hann lætur nú af þeim störfum
innan skamms og reyndar
blaðamennsku og hyggst snúa
sér að kennslu.
AT' ^
vonandi tekizt endanlega að
tryggja nafn sitt í íslenzkri
tónlistarsögu.
★
Ríó vinnur nú að gerð
nýrrar plötu og hefur kvisazt,
að platan eigi að heita Fólk.
Verður þar fjallað um marga
nafnkunna menn en eins og-
menn muna gerðu þeir félagar
lag mikið um Óla Jó vinsælt og
hlutu að launum biltúr með
átrúnaðargoði sínu. Bíltúr
þeim var síðan sjónvarpað.
Margir hafa verið að velta
því fyrir sér hvað þeim félög-
um og dómsmálaráðherranum
hafi farið á milli, eins bros-
mildir og þeir voru. Hefur
blaðið eftir áreiðanlegum
heimildum að þeir hafi meðal
annars rætt um það, meira í
gamni þó, að réttast væri að
dómsmálaráðherrann fengi
prósentur af plötunni og eins
mun hann hafa lýst því yfir að
ekki væri ljóðið dýrt kveðið en
meiningin væri góð!
Hananú! Þarna kemur Sniffi, frœgasti þefarinn
í bœnum og só veit nú af því!
Það sem skiptir hvolp mestu
móli er að hafa gott
lyktarskyn!
^ Þetta nef hefur ýmsa
fleiri eiainleika, sé
ég, Sniffi!
^ Mitt stórkostlega nef finnur
ótrúlegustu ilmi og þefi!
I
i
i
i
i