Dagblaðið - 19.03.1977, Page 14

Dagblaðið - 19.03.1977, Page 14
14 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977. Kvenf élag Bústaðasóknar skemmtir sér Síöasti vagn f Sogamýrí” „Kona gleypti gerilinn! Hann hljóp á hana! Dagblaöiö' Dagblaðið!“ æpti ung blaðsölustelpa hástöfum á Lækjartorgi á dögunum. Raunar var stelpan ekki í alvöru ung og þetta varheldur ekki á Lækjartorgi heldur var veri'' að leika „Sfðasta stræ^ð í Sogamýri“ á hátíðarfundi hjá Kvenfélagi Bústaðasóknai í safnaðarheimilinu. Þaðan heyrðust hláturrokurnar lengst út á götu. Leikurinn gekk út á það að blaðamaðurDagblaðsins var að taka spurningu dagsins niður á Lsekjartorgi og var hún margslungin, — eða svona: Finnst ykkur þjóðfélagið bjóða upp á nóg skemmtana-, athafna- eða félagslíf? Það bar ekki á öðru en þeim sem urðu fyrir svörum nægði ekki einu sinni sólarhringurinn til að sinna öllu. Blaðakonan (Sigríður ilannesdóttir) var potturinn og pannan í samningu leiksins, en konurnar, sem ekki teljast nein unglömb lengur, allar yfir fertugt, höfðu sitt að segja og léku af lífi og sál.. Allar eru þær vitanlega í kvenfélaginu. ^ Við fengum að vita að boðið væri upp á slíkar leiksýningar árlega. Fyrst er leikið fyrir kvenfélagskonur sem bjóða með sér mæðrum og tengdamæðrum og fullorðnu fólki úr sókninni, síðan leika þær líka fyrir Bræðrafélag Bústaðasóknar. 224 eru í kvenfélaginu og sagði formaðurinn, Dagmar Gunnlaugs- dóttir, að fundir væru yfirleitt vel sóttir. 50-60 konur mættu á fundina sem væru einu sinni í mánuði. „Það er ýmislegt gert sér til gamans," sagði hún. „Og einnig er safnað peningum til styrktar kirkjunni.“ A laugardaginn verður flóamarkaður og kökubasar í safnaðar- heimilinu kl. 2. Alls konar föndurnámskeið eru haldin og þar að auki hafa verið enskunámskeið og konur hafa spreytt sig á mælskulist. En það var ekki aðeins leikrit sem fólk skemmti sér við að hlusta á. Líka var fjöldasöngur og spilaði ein kvenfélagskonan, Jenny Jónsdóttir, undir á píanó. Þá flutti Magdalena Sigurþórsdóttir, sem hefur mikið kennt kvenfélagskonunum föndur, bæði frumort ljóð og ljóð eftir aðrar konur. Hún fékk í fyrra fálkaorðuna fyrir félags-og kennslustörf. Að síðustu var svo vitanlega drukkið hátíðarkaffi og það væri synd að segja að borðin svignuðu ekki undan kræsingunum. -EVI. „Þær eru flestar búnar með 7-8-9 púða en ég skellti mér bara á einn stóran. Eg er aðelns búin með innra byrðið. Ég er nefnilega svo upptekin við að passa barnabarn," sagði Sara (nafnið beint úr Biblíunni). „Æ, æ, blessaður unginn er ailtaf að leita að brjóstinu,“ bætti hún við um leið og hún hampaði reifabarni að myndarlegu vinstra brjósti. Blaðamaður: Ferðu alltaf með barnið á námskeiðin? Sara: „Já, maður verður að gera það því að foreldrarnir eru báðir útivinnandi og eru að safna sér fyrir litsjónvarpi. Annars er hann innritaður i AB-deild en hún í CD-deild. Mér skilst að þau sleppi við skattana svoleiðis. Nei, nel, þetta er ekki hattur, þetta er skermurinn sem ég er að klára.“ Það er líka synd að segja að frúin sé ekki með allar græjur með sér þvi að skærin og málbandið er hún með um háisinn. Næst verður fyrir biaðamanni þvottakona hjá því opinbera. Hún var ekki beinlinis þvottakonuleg, siðklædd á silfurskóm: „Maður verður að vera huggulega til fara hjá því opinbera því þar eru ráðherrar og fulitrúar. Nei, nei, þetta er ekkert vel borgað, en hlunnindin, fritt far í lyftuna í Bláfjöllum og Sexuna á gamlárs- kvöld og föstudaginn langa. Jú, auðvitað notar maður fríðindin og rúntar í strætó þegar það er frítt.“ Og hún kveðst heita Skrúbba Skaftfells. Hún er raunar alveg hætt að skúra, biæs bara á rykið. En skrúbbinn og fötuna verður hún að hafa með út af skúringarsam- tökunum. Vitanlega lærir hún fagið í Námsflokkunum því allir verða að hafa skfrteini upp á vasann í dag. Begga Jóns kvað nóg gert fyrir krakkana. Hún væri búin að sjá Dýrin í Hálsaskógi og svo fer hún i bíó. Hún er líka að safna fyrir hjóli. Tegundina var hún ekki búin að ákveða en hafði miklar áhyggjur ef mömmu hennar dytti nú allt í einu í hug að fara í hjólreiða- túra. „Hún er nefnilega svo agalega feit, drekkur alltaf fullt af gosi yfir sjónvarpinu á kvöldin.Það getur kannski sprungið á hjól- inu ef hún fær það lánað og pabbi er latur að bæta,“ segir Begga. Og Begga er soldið óþekk á kvöldin því henni þykir svo agalega gaman að sjónvarpinu. En hún er bara rekin upp i rúm með harðri hendi eins og öll börn þegar glæpamyndir eru sýndar. „Að gera? Jú, það er sko aldeilis nóg. Eg er núna að fara niður í sjónvarp. Eg er sýningardama," segir Jósefina Páis og hristir guilna lokka. Blaðamaður: Hafði daman svona failegt hár áður en hún fór út í auglýsingarnar? „Nei, ég er nú hrædd um ekki, þetta er gerillinn maður, og ekki nóg með það, hann Carter, hundurinn minn, komst í hann iíka og byrjaði að stækka. Annars er hann af dvergakyni, beint úr Hvíta húsinu.“ Frúin snýr sér i hring og sýnir nýju Bermuda-tízkuna sem eins og sést eru stuttbuxur og vfð mussa. En það koma samt vandkvæði í ljós með auglýsingar hjá sjónvarpinu hér þar sem hundahald er bannað á Islandi. Það kemur þó ekki að sök þvi að tilboðin streyma að frá London, París og New York. Næstur á torgið var Hildi- brandur Jónsson frá Horn- ströndum. Hann átti stefnumót klukkan 4. Hann var heldur betur í uppnámi því að hringt hafði verið til hans út af aug- lýsingu sem kom í dálkinum Trúnaðarmál í Dagblaðinu. Þar stóð: „Myndarlegur maður frá Hornströndum óskar eftir ráðs- konu með hjónaband fyrir aug- um.“ Auðvitað lét kvenþjóðin ekki á sér standa og birtist í allri sinni „litadýrð“, í grænum skóm, rauðröndóttum kjól, fjólubláum hönzkum og svört- um blúnduundirkjól sem sveitamanninn varð heldur betur starsýnt á. Það fór vel á með þeim. Hildibrandurtaldi að þegar hann væri búinn að næla sér í slíkan kvenkost sem Gilla Glansen var (Gilla varð til TEXTI: ERNA V. INGÓLFSDÓTTIR • MYNDIR: HÖRÐUR VILHJÁLMSSON vegna þess að dugga strandaði hérna á árunum þar sem lítið pláss var en nóg hjartarúm) yrði hann fljótlega kosinn hreppstjóri.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.