Dagblaðið - 19.03.1977, Side 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977.
x
Jónu Jóns fannst hún alveg
vera að verða eitt heimilistækið
i eldhúsinu svo það lá beint við
að drífa sig í öldungadeildina.
,,Nei, það er sko ekkert erfitt.
Þar byrjum við á byrjuninni.
Við lesum fyrst Gagn og gam-
an,“ sagði hún og fræddi gesti á
þvi að lögð væri áherzla á essið
á meðan zetan lægi í doða. Eins
og til dæmis Sísí segir sss/, ss
segir Sísí/ Sísí segir so, so, so,/
so so segir Sísí.
Vitanlega hafði hún valfag.
Það var heimspekin. Frúin
hafði tekið sér fyrir hendur að
skrifa ritgerð um Litlu gulu
hænuna. Hún var nefnilega á
þvi að fólk gerði sér ekki grein
fyrir hversu mikil heimspeki er
fólgin í þessu litla frækorni
sem hænan fann.
Svo sem allir vita er „Siðasti
vagninn í Sogamýri“ leið sex.
Strætóbílstjórann vantar auð-
vitað ekki. Allir vegfarendur
sem blaðamaður spurði, nema
Sara, komu út úr sexunni.
Leiktjöld gerði maður
Sigríðar, Ottó Pétursson, þótt
ekki þyrði hann að mæta á sýn-
inguna, þó var þar einn karl-
mann að finna fyrir utan
kirkjuvörðinn og Hörð ljós-
myndara. Begga er hér ekki
lengur blaðastelpa, hún hefur
brugðið sér i gervi bílstjórans.
Hún heitir Asta Sigurðardóttir.
Aðrir léikendur: Sara: Asa
Pálsdóttir, Skrúbba: Oddrún
Pálsdóttir, Jósefína: Sigríður
Axelsdóttir, Gilla: Ellen
Stefánsdóttir, Hildibrandur:
Sesselja Ásgeirsdóttir, Jóna:
Jóhanna Þorgeirsdóttir.
Eins og þið sjáið syngja
Sexurnar hér fullum hálsi.
Vitanlega hefur þær alltaf
dreymt um að komast i kirkju-
kórinn þótt enn hafi enginn
komið auga á hæfiieika þeirra.
Það má sjá að leikritið gerði
lukku og í lokin var hrópað
húrra fyrir leikendum og höf-
undi.
Ég er sko hann Hilli frá Ströndum og það er ekki nokkur hætta á
því að ég verði ekki hreppstjóri i minni sveit ef ég næ mér í góóan
kvenkost.
Jenny Jónsdóttir spiiaði undir fjöldasöng.
Dagmar Gunniaugsdóttir sagði
að kvenfélagskonur fyndu upp
á ýmsu sér til skemmtunar og
fróðleiks, svo sem enskunám-
skeiðum, föndurnámskeiðum
og mælskulist. Það hefur iíka
komið sér vel hjá leikendum.
Magdalena Sigurþórsdóttir
flutti frumort Ijóð ásamt ljóð-
um eftir aðrar konur. Fyrir
ofan hana er spjald með kjör-
orði félagsins.