Dagblaðið - 02.04.1977, Side 1
f
3. ÁRG. — LAUGARDAGUR 2. APRÍL 1977 — 78. TBL.
RÍTSTJÓRN SÍÐUMULA 12, SÍMI 83322. AUGLYSÍNGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2. SlMI 27022
Þörungaverksmiðjan kostar ríkið um milljarð:
Lagt var til að stöðva
leikinn í tæka tíð
— kostar um 20 þiís. kr. á
meðalf jölskyldu um leið og lagt
er til að leggja hana niður
Þrátt fyrir uggvekjandi
niðurstöður athugana Vil-
hjálms Lúðvíkssonar, stjórnar-
formanns Þörungavinnslunnar
að Reykhðium, á þangöflun í
Nova Scotia í Kanada árið 1974,
þegar aðeins var búið að fjár-
festa að hluta í Þörungavinnsl-
unni, tóku stjórnendur þá
ákvörðun að halda áfram bygg-
ingu vinnslunnar.
Vilhjálmur fór á fyrrnefndan
stað síðla árs ’74 en þar höfðu
hliðstæðir þangskurðarpramm-
ar og hér eru notaðir verið
reyndir í nokkur ár við hlið-
stæðar aðstæður og hér.
Reynslan hefur síðan leitt í ljós
að afköst prammanna hér og í
Kanada eru svipuð. Er blaðinu
fullkunnugt um að ábyrgir
aðilar bentu á þetta atriði og
töldu ástæðu til að endurskoða
áætlunina í heild á grundvelli
þess.
Samt sem áður var haldið
áfram fjárfestingum og miðað
við að 11 prammar dygðu til að
afla nægilegs hráefnis, þrátt
fyrir að draga hafi mátt þann
lærdóm af reynslu Kanada-
manna að sá fjöldi dygði ekki
til að afla helmings hráefnis
miðað við að fyrirtækið stæði
undir sér.
Nú er talað um að búið sé að
leggja um 600 milljónir í verk-
smiðjuna og búnað hennar, auk
þess kemur kostnaður við stór-
felldar endurbætur á rafveitu,
sem að vísu kemur fleirum til
góða. Einnig á eftir að bora
eftir heitu vatni og leggja hita-
veitu auk þess að byggja dýra
bryggju, einungis fyrir verk-
smiðjuna. Skv. lauslegum
reikningum, sem blaðið hefur
borið undir aðila, sem skyn-
bragð bera á má áætla kostnað-
inn um milljarð eða um 4.500
kr. á mannsbarn í landinu eða
um 20 þús. á meðalfjölskyldu.
Er þá verulegur hluti fjár-
festingarinnar ekki reiknaður
til núverandi gengis sem mundi
hækka upphæðina enn og um
leið hefur nefnd á vegum ráðu-
neytisins lagt til m.a. að rekstri
verði hætt og að þar með sé
verulegur hluti fjárfestingar-
innar glataður.
-G.S.
Hver f ær
kók í
heilt ár?
Happdrættisvinn-
ingardregnirút
daglega,sá
síðasti á morgun
„Það er nú fullsannað að Is-
lendingar hafa mikinn áhuga á
matvælum, það sannar aðsóknin
að íslenzku matvælakynningunni
í Iðnaðarhúsinu,” sagði Pétur
Sveinbjarnarson framkvæmda-
stjóri Islenzkrar iðnkynningar.
Hann sagði að reyndar væri
aðsóknin allt of mikil, meiri en
húsrúm leyfir.
Fyrstu þrjá dagana hafa 12280
manns komið á kynninguna og á
fimmtudaginn voru gestir 6
þúsund. Þetta er meiri aðsókn en
var að stóru fatasýningunni í
Laugardalshöllinni. Gera þurfti
sérstakar ráðstafanir, t.d. i sam-
bandi við vörzlu og hreingern-
ingar.
Ef fer sem horfir hefur náðst
til um 75 þúsund manns á iðn-
milljóna
húsí
happdrætti
— bls. 4
Reikningarnir
tölulega réttir,
athugasemdir
bíða
aðalfundarins
- Sjá bls. 7
PÁSKAHÁTIÐ
kynningarárinu sem ekki er lokið
enn.
Glæsilegir happdrættisvinn-
ingar eru dregnir út á hverjum
degi og í dag verður dreginn út
vinningur sem eru kjötvörur.
Vinningurinn á sunnudag, síðasta
dag kynningarinnar, er kók í heilt
ár. -KP
Enn deilt um bifreiðatryggingarnar:
Má taka dráttarvexti af
fyrirfram greiddum gjöldum?
Sú innheimtuaðferð bifreiða-
tryggingafélaganna að taka
dráttarvexti af tryggingagjöld-
um þrjá mánuði aftur í tímann,
séu gjöld ekki greidd fyrir 1.
júní, er þegar tekin að valda
deilum. Bifreiðaeigendur telja
slíka innheimtu dráttarvaxta á
fyrirframgreiðslur gjalda afar
hæpna og styður Félag ísl. bif-
reiðaeigenda þá skoðun. Trygg-
ingafélögin telja hins vegar að
vextir af fyrirfram greiddum
tryggingum séu reiknaðir félög-
unum til tekna þá er iðgjöldin
séu ákveðin og verði gjöldin því
að innheimtast á réttum tíma
til að félögin fái sitt.
Sveinn Oddgeirsson fram-
kvstj. FlB tjáði DB að FlB teldi
mjög vafasamt að innheimta
dráttarvexti af fyrirfram
greiddum iðgjöldum. Kvað
hann fulltrúa F’lB hafa rætt
málið við ráðuneytið sem teldi
sig ekki geta úr því skorið hvort
slíkt væri ólöglegt. Sveinn
kvaðst hvergi vita til að slík
innheimta dráttarvaxta þekkt-
ist. Benti hann á bifreiðaskatt-
inn í því sambandi. Á hann
féllu ekki dráttarvextir væri
hann greiddur á yfirstandandi
ári, þó eindagi væri 1. apríl.
Ólafur Bergsson deildarstjóri
hjá Sjóvá kvaðst ’ætla að öll
tryggingafélögin myndu inn-
heimta dráttarvexti af iðgjöld-
um frá 1. marz (gjalddaga)
væru þau ekki greidd fyrir 1.
júní. Tekjur af vöxtum fyrir-
framgreiddra iðgjalda væru
einn af þeim liðum sem afkoma
tryggingafélaganna byggðist á
og ákvarðaði heimild til
iðgjaldahækkunar hverju
sinni. Ljóst væri að félögin
hefðu ekki vaxtatekjur af
ógreiddum gjöldum og þvi yrðu
þau að tryggja þetinan tekjulið
sinn með álagningu dráttar-
vaxta. Ólafur sagði að ósk
tryggingafélaganna um ið-
gjaldahækkun í ár hefði m.a.
verið lækkuð á þeim grundvelli
að félögin hefðu tekjur af fyrir-
framgreiddum iðgjöldum.
„Það á að vera afgerandi
regla að menn greiði gjöld sín á
gjalddaga. Bifreiðatryggingar
eru lögboðin trygging. Lögin
eru ekki sett til verndar bíla-
eigendum heldur einkum til að
vernda hagsmuni þeirra er
verða fyrir tjóni af völdum bif-
reiða," sagði Ölafur.
-ASt.
Krakkarnir í Garðaskóla
héldu páskahátíð með pompi
og prakt í gærkvöldi. Hún var
haldin í leikfimihúsi skólans
sem tekur mörg hundruð
manns. Bornir voru stólar
þangað og þeim raðað í iangar
raðir. Það er alveg nauðsyn-
legt að fá sér sæti eftir að hafa
hamazt eftir alls konar popp-
tónlist.
Salurinn var skreyttur með
alls konar skiltum. Boðskapur-
inn á þeim fór ekki á milli
mála. Þarna átti enginn að
reykja og yfirleitt ails ekki.
Þessar reglur voru að sjálf-
sögðu virtar og nemendur sáu
sjálfir um að hafa eftirlit með
því.
-KP
'
4