Dagblaðið - 02.04.1977, Side 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. APRÍL 1977.
Lóðarleiga tólffölduð í einum
áfanga
og það í miðri verðstöðvun
‘ Þrátt fyrir veröstöövun
dynja hækkanir á hækkanir
ofan frá því opinbera og í til-
kynningalestri útvarps og sjön-
varps er lýðfrjálsu fólki á
íslandi hótaö hörðu ef það
greiöi ekki meiri og meiri pen-
inga, með kveðju frá því opin-
bera. Svo er hinn auralausi
látinn borga fyrir tilkynning-
una.
Ékki veit ég hvort hinn hlut-
lausi fjölmiðill, útvarp — sjón-
varp, mundi birta tilkynningu
frá almennum þegn þessa lands
til stjórnvalda á sama h'átt.
Ekki v'eit ég heldur hvort hinn
auralausi landsmaður fengi að
borga þá tilkynningu með pen-
ingum sínum, úr sama sjóði,
rikissjóði.
Margsinnis hafa stjórnmála-
leiðtogar hvatt til hófsemi og
gætni í fjármálum, vegna sér-
stakra aðstæðna og óvissu, en
einhverra hluta vegna virðist
sú aðvörun hafa farið fram hjá
því opinbera að miklu leyti.
Nú þegar dregur að kjara-
samningum er ekki nema eðli-
legt að því sé gefinn gaumur
hvað ráðamenn landsins hafast
að og hvort það sé í samræmi
við það sem þeir tala og-skrifa.
Ekki verður annað séð en
fólkið í landinu hafi staðið við
það sem af því var ætlazt varð-
andi verðbólguaðgerðir. En ein-
mitt þess vegna hefur berlega
komið í ljós hverjir það eru sem
kynda verðbólgubálið og grafa
undan efnahagslegu sjálfstæði
íslands. Það er sorglegt að
þurfa að segja að fégræðgi
opinberra stofnana er orðin svo
mikil í garð vinnandi fólks að
lítið vantar á að likja megi við
ánauð þjóðarinnar. Þessi yfir-
gangsskapur getur ekki gengið,
þetta verður að breytast.
Sem háseti á þjóðarskútunni
verð ég að segja að mér finnst
stjórn hennar einkennast um of
af stjórnleysi og ofstjórn,
óheppileg blanda það, og í hróp-
andi mótsögn við breiðfirzka
hákarlaskipstjórann á Fönix
sem náði ekki heimahöfn vegna
veðurs en sagði þegar karlarnir
tóku að mögla: „Þegar ég stend
uppi á þóftu og gái til veðurs og
segi, við förum, förum við, en
ef ég segi, við förum ekki,
förum við ekki fetið, karl
rninn." Nei, yfirmenn þjóðar-
skútunnar eru of mikið í koj-
unni og láta um of stjórn
hennar í hendur Péturs og
Páls, á ég þar við starfsmenn
ríkisins, nefndir og ráð, menn
sem enginn hefur kosið en
virðast fara sínu fram þó það
gangi í berhögg við óskir stjórn-
málaleiðtoganna til þjóðarinn-
Svo er hér að endingu sýnis-
horn af verðhækkun sem sam-
göngumálaraðuneytið hefur
lagt blessun sína yfir, eða að
minnsta kosti starfsmenn þess.
en það er hækkun lóðarleigu af
landi Landshafnar, Keflavík —
Njarðvík. Hækkunin er að vísu
sú mesta sem ég hef frétt af í
einum áfanga, eða tólffölduð
lóðarleiga, og í miðri verðstöðv-
un. Hvað skyldi það verða
næst? Þetta getur ekki gengið
lengur, mælirinn er fullur, og
meira en það.
Bréf sem ég sendi samgöngu-
málaráðuneytinu varðandi
þetta mál sendi ég með, svo og
svar.
BENEDIKT BIÐST
AFSÖKUNAR
— leiðrétting vegna misskilnings íkjallaragrein
Undirritaður vill koma
áríðandi leiðréttingu á fram-
færi í Dagblaðið vegna mis-
skilnings í kjallaragrein B.V.
sem birtist mánudaginn 21.
marz sl. Þar sagði: ,,Nú er búið
að skipa nýjan framkvæmda-
stjóra í Tónabæ og því fylgdu
þær breytingar að tveim dyra-
vörðum var sagt upp. Einhver
hefur verið ástæðan."
Pjetur Maack framkvæmda-
stj. Tónabæjar hringdi til und-
irritaðs 29. marz og kvaðst hafa
frétt að B.V. hefði sagt í um-
ræddri grein, sem bar yfir-
skriftina „Æskan og Breið-
holt“, að tveir dyraverðir hefðu
verið „reknir“ en sjálfur
sagðist hann ekki hafa lesið
umrædda grein. Pjetur sagði að
sér þætti miður að þetta skyldi
birtast vegna þess að hann væri
mjög ánægður með starfsfólk
sitt. Reyndar hættu tveir dyra-
verðir en þeim var ekki sagt
upp heldur fóru þeir af eigin
Úrræðamenn á Al-
þingi A.D. 1977
Kák og tap og teprulegir menn
tóra hér á landi enn,
hálir á velli og linir í lund,
landið þeir flýja á raunastund.
Lúpus loricatus.
hvötum, vegna anna í prófum.
B.V. þykir ekki ástæða til að
reng’ja orð Pjeturs og biðst af-
sökunar á þessari mistúlkun á
brottför dyravarðanna.
Að lokum ber að þakka
Ómari Ragnarssyni fyrir
greinargóðan þátt í Kastljósi
ekki alls fyrir löngu þar sem
fjallað var um unga fólkið.
Þar var litið inn i Tónabæ og
ekki var annað að sjá en það
skemmti sér vel, þ.e.a.s. unga
fólkið, og ekki var að sjá að þar
væri neitt svall á ferðinni.
Undirritaður biðst afsökunar
á þessum leiðinda misskilningi,
sem hann taldi pottþétta stað-
reynd, annars hefði þessi
klausa aldrei birzt.
Einnig er skylt að bera fram
afsökun til umræddra dyra-
varða og vonar undirritaður að
þetta mál sé úr sögunni og eng-
inn erfi þennan leiðinlega mis-
skilning.
Benedikt Viggósson.
Verzlunarhúsnæði
Óska eftir verzlunarplássi sem fyrst
miðsvæðis í „gamla bænum“ — helzt
við Laugaveg. Sími 14197 og 24983.
BÍLASALA
Renault
Renault
Renault
Renault
Renault
Renault
Renault
Renault
Renault
Renault
Renault
Renault
4 TL 74
12 TL 72
12 TL 73
12 TL 74
12 TL 74
12 TL 74
12 station 75
12 station 75
16 TL 74
4 sendibíll 74
4 sendibíll 75
4 sendibíll 76
Opið fró kl. 1-7 laugardag.
Kristinn Guðnason hf,
SUÐURLANDSBRAUT 2« — SÍMI 8(i(i:i.'!
Mest seldi bíllinn í Evrópu 1976.
RENAULT
dagsins
Hafið þér gengizt
undir skurðaðgerð?
Grettir Lárusson bilaviðgerðar-
maður: Já, vegna botnlangans.
Það var nú ekki alvarlegra og ég
skil ekki aumingjaskapinn í hon-
um Spassky að þurfa viku frí
vegna slíkrar smáaðgerðar.
Páll Hannesson tollvörður: Fyrir
15 árum var ég skorinn upp vegna
magans. Síðan ekki á spítala
komið.
Daníel Jóhannesson starfsmaður
í Skóverzlun Þðrðar Péturssonar:
Ég hef aldrei lagzt á spítala og
vona að svo verði aldrei.
Lárus Lúðvfksson prjónlesfram-
leiðandi: Sem 8 ára polli var ég
tekinn og úr mér skorinn botn-
langinn. Það var kvalalaust þó til
allrar hamingju.
Birgir Þór Gunnarsson sendibil-
stjóri: Botnlanginn fauk fyrir 2
árum eins og í fleirum. Annað
ekki.
Rannveig Tryggvadóttir: Aldrei,
nema það sé talið með að fæða
börn. Þau hef ég alið fimm.