Dagblaðið - 02.04.1977, Side 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977.__
Könnun á högum Sóknarkvenna:
Lengstur vinnutími
hjá yngstu konunum
Nærri 60% Sóknarkvenna búa íeigin húsnæði
Nú liggur fyrir niöurstaða af
könnun á lífskjörum og högum
Söknarkvenna sem gerð var af
Auði Styrkársdóttur, nema í
þjððfélagsfræðum. Valdar voru
tvö hundruð konur af þeim tvö
þúsund sem til greina komu í
úrtak, en það voru þær konur
sem voru í vinnu þegar
könnunin var gerð i október-
nóvember 1976. Alls bárust
svör frá eitt hundrað og nítján
konum sem er 59,5% inn-
heimta.
Félagskonur Söknar eru
flestar á aldrinum fimmtíu og
eins til sextíu ára eða 23,0%. Sá
hópur var einnig fjölmennastur
í úrtakinu eða 22,8%. 43,1%
félagskvenna eru fimmtíu ára
og eldri.
Kannað var hve lengi
konurnar höfðu unnið á Sókn-
arsvæðinu og kom í ljós að
64,7%þeirra höfðu unnið skem-
ur en fimm ár. Ef hluti þeirra
kvenna sem eru á aldrinum
sextán til tuttugu ára, sem eru
14,1% félagskvenna, er
dreginn frá kemur i ljós að
52,l%félagskvennahefur unnið
skemur en fimm ár á svæðinu.
Sjötíu konur í úrtakinu
höfðu hlotið einhverja skóla-
göngu umfram skyldunám, en
engrar sérstakrar menntunar
eða þjálfunar er krafizt af kon-
um sem vinna þau störf, er
Sókn tekur til.
Langflestar, eða tuttugu og
fimm, höfðu verið í húsmæðra-
skóla, tuttugu voru með gagn-
fræðapróf, níu höfðu verið í
kvöldskóla eða námsflokkum,
átta voru með miðskólapróf og
sjö höfðu gengið í Kvenna-
skólann. Landspróf höfðu þrjár
konur. Síðan hafði ein kona
stundað nám í Fósturskóla,
garðyrkjuskóla, nám í
pedagogik, hárgreiðslu,
ljósmæðraskóla, þroska-
þjálfanám, eitt og hálft ár i
menntaskóla og eitt ár í lýðhá-
skóla. Sumar kvennanna höfðu
hlotið fleiri en eina tegund
menntunar, t.d. bæði tekið
gagnfræðapróf og einnig verið í
húsmæðraskóla.
Hjúskaparstaða Sóknar-
kvenna var á þann veg að
sextíu og sjö voru giftar og
fimmtíu og tvær einhleypar,
ógiftar, ekkjur og fráskildar.
Af giftu konunum voru flestar,
eða átján talsins, á aldrinum
fjörutiu og eins til fimmtíu ára
og fimmtán á aldrinum fimmtíu
og eins til sextlu ára. Af þeim
einhleypu voru þær flestar í
sömu aldursflokkum, eða tólf í
hvorum.
Makar Sóknarkvenna eru
langflestir verkamenn, eða
tuttugu, og fimmtán eru giftar
iðnaðarmönnum.
Sjötíu og ein Sóknarkona bjó
í eigin húsnæði eða 59,7% og
þrjátiu og tvær konur í leigu-
húsnæði eða 26,9%. Hjá for-
eldrum eða ættingjum bjuggu
sextán konur.
Meðalleiga fyrir 2,5 her-
bergja íbúð reyndist vera
17.800 á mánuði.
í úrtakinu áttu átján konur
börn á aldrinum 0-6 ára samtals
tuttugu og eitt barn. Sóknar-
konur fá ekki inni á barna-
heimilum sjúkrahúsanna fyrir
börn sín og kom í ljós að fimm
konur keyptugæzluí heimahús-
um en aðeins fjórar af
konunum höfðu aðgng að
barnaheimilum með börn sín
og þar af unnu þrjár þeirra
sjálfar á barnaheimilinu. Engin
kvennanna hafði barn sitt á
leiksköla.
Meðalvinnutími einhleypra
Sóknarkvenna var 73,4 klukku-
stundir á viku til jafnaðar en
meðalvinnutími giftu
kvennanna var 31,9 klst.—
Þær konur sem höfðu lengst-
an vinnutíma voru á aldrinum
sextán til tuttugu ára, en
skemmstur var vinnutími hjá
aldurshópnum þrjátíu og eins
til fjörutíu ára.
í niðurstöðu könnunarinnar
er gert ráð fyrir þvi að á þeim
aldri séu, konur hvað
uppteknastar af barnauppeldi
og heimilisstörfum og vinni þá
færri stundir utan heimilisins.
Meðalvinnutími maka Sókn-
arkvenna reyndist vera 46,6
klukkustundir á viku. Allar
nauðsynlegar upplýsingar voru
til um fjörutíu og sjö hjön, þar
sem bæði unnu úti og vinnu-
dagafjöldinn var gefinn greini-
lega til kynna. í ljós kom að
hver einstaklingur af þeim
vann 38,6 klst. á viku. Á 70%
heimila giftra kvenna í úrtak-
inu unnu bæði hjónin nærri því
fullan vinnudag.
Makar Sóknarkvenna eru
upp til hópa láglaunamenn.
Fjörutíu og tvær konur og
makar þeirra fullnægðu þeim
skilyrðum sem nauðsynleg voru
til þess að reikna út nákvæmar
meðaltekjur: Hver ein-
staklingur hafði í meðaltekjur
kr. 74.165 kr. á mánuði eða
samtals 148.330 kr.
38,7% kvennanna höfðu sótt
fundi hjá félaginu og kom í ljós
að margar höfðu aðeins sótt sér-
fundi sem haldnir eru á vinnu-
stöðunum sjálfum, eða tólf
konur (af fjörutíu og fimm sem
höfðu sótt fundina). Þá kom í
ljós að það eru einkum hinar
eldri sem sækja félagsfundi.
Sextán konur á aldrinum
fimmtíu og eins til sextíu sóttu
fundi og ellefu á aldrinum
fjörutíu og eins til fimmtíu.
Aðeins ein kona á aldrinum
sextán til tuttugu ára sótti
fund.
Tuttugu og tvær konur
nefndu áhugaleysi sem helztu
ástæðu fyrir þvi að þær hefðu
ekki sótt fundi, átta komust
ekki frá börnum og sex
tilgreindu tímaskort. Ein kona
taldi sig ónýta að rata um
bæinn og ein bar við heyrnar-
leysi. Annars voru tilgreindar
nítján ástæður fyrir því að
fundir voru ekki sóttir.
Mikill meirihluti kvennanna,
eða 68,6%, kvaðst ekki vilja
hætta vinnu utan heimilis.
31,4% þeirra sem svöruðu
kváðust vilja hætta að vinna úti
ef þær ættu þess kost. -A.Bj..
Hið íslenzka prentarafélag 80 ára
Sameinast bókagerðarfélögin innan tveggja ára?
„Samstarfsnefnd hefur unnið
að því undanfarið að sameina
bókargerðarmenn i eitt og sama
félagið. Ég vona að sameining
bókargerðarfélaganna, Hins ís-
lenzka prentarafélags, Bókbind-
arafélags Islands og Grafíska
sveinafélagsins verði innan
tveggja ára,“ sagði Ólafur Emils-
son formaður Hins islenzka prent-
arafélags á fundi með blaða-
mönnum. Tilefni fundarins var að
minna á 80 ára afmæli félagsins
sem er 4. apríl nk.
Að sögn Ölafs hefur nokkuð
borið á því að félagsmenn hafi
farið til útlanda i atvinnuleit.
Fimm fóru á síðasta ári og þrír
eru farnir á þessu ári. Þeir fara
flestir til Svíþjóðar. Félagsmenn
flytja vegna óánægju með kaup
sem er miklu lægra hér en á
Norðurlöndunum.
Félagsmenn eru um 400 talsins
og þar af um 70 manns ófaglært
fólk. Það hefur full félagsréttindi
eins og faglærðir félagsmenn.
Fyrsta stéttarfélag
iðnaðarmanna
Prentarar mynduðu með sér
skemmti- og fræðslufélag árið
1886 sem þeir kölluðu Kvöld-
vökuna. Það varð fyrsti vísirinn
að stéttarfélagi iðnaðarmanna á
Islandi. Árið eftir var stofnað
félag er kallað var Prentarafélag-
ið. Félagið gaf út blað, sem var
nefnt Prentarinn og var i fyrstu
handskrifað. Prentarinn kemur
út enn þann dag i dag. Vegna
ýmissa félagslegra örðugleika
lagðist félagið niður. Prentarar
stofnuðu annað félag árið 1897 og
nefndu Hið íslenzka prentara-
félag. Það stofnuðu 12 prentarar
úr ísafoldarprentsmiðju og
Félagsprentsmiðjunni. Fyrsti for-
seti félagsins var .kjörinn Þor-
varður Þorvarðsson.
Sjúkrasamlag
og leikfélag
Það sem ef til vill vekur mesta
athygli, þegar málefni þessa
nýstofnaða félags eru skoðuð er
hve starfsemin var á breiðum
grundvelli. Forseti félagsins
lagði fram tillögu um sjúkrasam-
lag á fundi sem var samþykkt og
var það fyrsta sinnar tegundar á
landinu. Það tók formlega til
starfa í ágúst 1897.
Félagslífið var mjög blómlegt
innan félagsins. Starfandi voru
söngfélag og leikfélag. Virkustu
kraftarnir innan félaganna
stofnuðu Leikfélag Reykjavíkur.
Fyrsta verkfallið
Prentarar gerðu fyrstir allra
stétta verkfall. Það var árið 1899.
Það stóð í einn dag. Gekk prent-
smiðjueigandinn að öllum kröfum
sem fram voru settar.
Þrátt fyrir velheppnað
verkfall, tók það félagið sjö ár að
öðlast viðurkenningu prent-
smiðjueigenda sem samningsaðili
fyrir prentara á landinu.
Árið 1920 semur Hið íslenzka
prentarafélag um átta stunda
vinnudag, fyrst verkalýðsfélaga.
Þremur árum síðar semur félagið
um vísitölubætur á laun prentara.
Það var í fyrsta sinn sem það var
gert.
Eftir langt verkfall árið 1974
semur félagið um launajafnrétti
ófaglærðs fólks innan prent-
iðnaðarins. Þá fengu konur og
kalar sama kaup fyrir sömu
vinnu. Áður hafði verið munur
þar á.
I stjórn Hins islenzka prentara-
félags eru: Ólafur Emilsson for-
maður, Hermann Aðalsteinsson,
Pétur Ágústsson, Guðmundur A.
Grétarsson, Ölafur Björnsson, Sæ-
mundur Árnason og Hafsteinn
Hjaltason. -KP.
JEPPAEIGENDUR
Sparið bensín og minnkið slit með Warn
framdrifslokum. Warn framdrifslokur fóst í
eftirtaldar bifreiðir:
Land Rover Willy’s Wagoneer
Ford Bronco Scout
Willy’sjeppa Biazer
og flestar gerðir af pick-up bifreiðum
með f jórhjóladrifi.
Amerísk bif reiðalökk
Þrjár línur íöllum litum
Mobil
Synthetic Enamel
Mobil OIL CORPORATION FORMULA
Acrylic Lacquer
Mobil OIL CORPORATION FORMULA
Acrylic Enamel
Mobil OIL CORPORATION FORMULA
Einnigöll undirefni,
málningasíur, vatnspappír
Hrafn Jonsson & Co. Brautarholti 22. Sími 22255.
Tilsöluísmíðum —
Vesturbær —
Bræðraborgarstígur
Tvær 100 fermetra 3ja-4ra herb.
íbúðir á fyrstu og annarri hæð ásamt
risíbúð, 90 fermetra 3ja herb.
skemmtileg íbúð, lítið undir súð.
íbúöirnar seljast tilbúnar undir tré-
verk og málningu. Sameign fullfrá-
gengin.
Sérhiti fyrir hverja íbúð, tvennar
svalir, sérstigapallur.
Fast verð: Seljandi bíður eftir
húsnæðisstjórnarláni kr. 2.7 milljónir,
og lánar 1 milljón og fimm hundruð
þús. til tveggja ára.
Ibúðirnar afhendast í nóv.-des. 1977.
Húsið verður fokhelt í júní 1977.
Allar nánari upplýsingar gefnar í
sírna 21473 millí kl. 13 og 15 í dag og
næstu daga.
K.J. Steingrímsson sf.
^WMBIABIB-------------
vantar umboðsmann
íVogum
Upplýsingar hjá Svanhildi Ragnars-
dóttur Heiðargerði 6 — sími 92-6515
og hjá afgreiðslunni í Reykjavík —