Dagblaðið - 02.04.1977, Side 12
12
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. APRÍL 1977.
Tízkuhornið
Svona föt eru aðeins til á
pappírnum enn sem komið er
Viö rækjum líklega upp stór
augu ef við mættum reykvísk-
um meyjum í svona múnder-
ingu. Svona föt eru ekki til
nema sem hugmyndir á papp-
írnum, enn sem komið er. Það
eru nemendur í dönskum nytja-
listaskóla sem eiga þessar hug-
myndir. í slíkum skólum skjóta
gömul efni gjarnan upp kollin-
um á nýjan leik og þar fæðast
margar frumlegar hugmyndir.
Það vantar svo sem ekki að
klæðnaðurinn til vinstri sé hlý-
legur. Sláið gæti sem bezt verið
úr islenzku Álafossteppi. Takið
eftir sokkunum sem eru með
breiðu stroffi sem brett er ofan
á stígvélin.
Klæðnaðurinn til vinstri er
öllu óvenjulegri, ber mikinn
keim af indíánafötum. Sokk-
arnir eða legghlífarnar eru
„rýjaðir" og næsta óvenjulegir.
Við beltisstað hangir skrautleg
skjóða með kögri. Beltið er með
dúskum.
Samfestingurinn er líkari
venjulegum klæðnaði. Hann er
úr koksgráu flanneli, vestið er
tvílitt, koksgrátt og blátt.
Skálmarnar eru teknar saman
að neðan með hnýttum bönd-
um.
Blússa
með
lausum
vasa
Á þeim anorökum sem
hingaðtil hafa verið framleiddir
hafa vasarnir verið annaðhvort
innan á eða saumaðir utan á.
Hvort sem þeir hafa verið hafa
þeir að minnsta kosti alltaf
verið saumaðir fastir á fram-
hliðina.
Á myndinni má sjá anorak
með lausum vasa, hann hangir í
tveimur böndum sem fest eru i
axlarsauminn. Axlarstykkið og
vasinn eru úr öðruvísi efni en
blússan sjálf sem er úr
stungnu, vatteruðu popplini.
Hugmyndina að þessari
skemmtilegú flík átti Eva
Bangsbo, danskur tízkuhönnuð-
ur.
Rúllukraginn sem kemur
upp úr hálsmálinu tilheyrir
ekki sjálfri blússunni heldur
peysu sem notuð er innanundir.
HK HIC HXC Hl£
HIC HIIC WXLHuc
HIC m HIC HIC
wtút HK
©HlC
HnTmt
H1t\tol
HltHH