Dagblaðið - 02.04.1977, Page 23

Dagblaðið - 02.04.1977, Page 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. APRÍL 1977. 24 Útvarp Sjónvarp annað kvöld kl. 22.15: Frá Listahátíð Söng sig beint í hjörtu áheyrenda Annað kvöld kl. 22.15 er enn á dagskrá sjónvarpsins efni frá listahátíðinni sem haldin var á sl. sumri. Að þessu sinni fáum við að heyra bandaríska óperusöngvar- ann William Walker syngja nokk- ur vinsæl lög úr bandarískum söngleikjum. Joan Dornemann annast undirleik og upptökunni stjórnaði Tage Ammendrup. Jón Kristinn Cortes sagði m.a. um tónleika Walkers í DB 8. júní sl.: „William Walker er einn af þeim sem hefur lagt upp í leitina miklu. Hann hefur átt gott for- skot á ýmsa aðra því að upplagi er rödd hans mikil og fögur. Hann hlýtur að vera nálægt hinum eina sanna tóni, hver svo sem hann er, þvi með rödd sinni sterkri, hljóm- mikilli og hárri barítonrödd, sem heillar áheyrendur, hefur honum tekizt að komast inn á gafl hjá Metropolitan óperunni og þar stiga einungis inn afburða söngv- arar.“ -A.Bj. m ■> Baritonsöngvarinn William Walker syngur hjá Met ropolitan í New York. Útvarp á morgun kl. 15.15: Lífið er saltfiskur Páll Heiðar í róðri með Grindavíkurbáti „Þetta verður fyrsti þátturinn í röð þátta um salt- fiskinn og þótti rökrétt að fylgjast með því þegar verið er að veiða fiskinn," sagði Páll Heiðar Jónsson í samtali við DB. Hann stjórnar þættinum Lífið er saltfiskur sem er á dag- skrá útvarpsins á morgun kl. 15.15. „Reynt verður að bregða upp í þættinum mynd af venju- legum netaróðri. Ég fór ásamt tæknimanni, Þorbirni Sigurðs- syni, með mótorbátnum Jóhannesi Gunnari GK 268 úr Grindavík í vikunni. Þetta var mikið og skemmtilegt ferðalag bæði gott veður og líka gott fiskirí," sagði Pálll. — Já, voruð þið ekki hálfgerðar fiskifælur þegar þið voruð við gerð þáttanna með rannsóknar- skipinu Bjarna Sæmundssyni? „Ja, ég skal nú ekki segja um það en í öllu falli fannst engin loðna þegar við vorum með um borð.“ „Maður er orðinn svo sjóaður og svo er einnig mjög spennandi að sjá hvað hægt er að komast langt í því að reyna að bregða upp mynd af því hvernig hlutirnir ganga fyrir sig án myndavélar,“ sagði Páll Heiðar. — Hvert verður svo framhaldið á saltfiskþáttunum? „Það verður væntanlega að fylgjast með saltfiskverkuninni heima, — síðan með útskipun- inni og loks að taka á móti farminum þegar hann kemur til Portúgal. Það væri fróðlegt að vita hvað Portúgalarnir gera við fiskinn. Ég reikna með að þetta verði vorverkefnið mitt og þættirnir endist fram I mai,“ sagði Páll Heiðar. Páll Heiðar sá um sex þætti um sjávarútvegsmál, þar sem tveir þættir fóru i kynningu á deildum Hafrannsóknastofnun- arinnar og fjórir þættir voru lýsing á starfinu um borð í Bjarna Sæmundssyni. -A.Bj. Laugardagur 2. apríl 7.00 Morgunútvarp. Vcrturfrt‘j>nir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 8.50. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (ug forustugr. dagbl.J, 9 og 10. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.00 Sigrún Björnsdóttir heldur áfram að lesa söguna „Strák á kúskinnsskóm" eftir Gest Hannsson (2) Tilkynningar kl. 9.30. Létt iög milli atriða. Óskalög sjúklinga kl. 9.15 Kristín Sveinbjörns- döttir kynnir. Bókahornið kl. 11.15: Barnatimi i umsjá Hildu Torfa- dóttur og Hauks Ágústssonar. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Á snyði. Einar örn Stefánsson stjórnar þættinum. 15.00 i tónsmiöjunni. Atli Heimir Sv. inss-jn sér um þáttinn. 16.15 Veðurfregnir. islenrkt mál. Ásgeir Blöndal Magnússon cand. mag. talar. 16.35 l^tt tónlist. 17.30 Útvarpsleikrit barna og unglinga- „Rauöa höllin” eftir Odd Björnsson. Leikstjóri Þórhallur Sigurðsson. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Ekki beinlínis. Böðvar Guðmunds- son rabbar við tvo leikara, Aðalstein Bergdal og Gest Einar Jónasson um heima og geima. Hljóðritun frá Akureyri. 20.15 Einleikur á pianó: Jenia Kren _ leikur. 20.35 Fomar minjar og saga Vestri-byggAar á Grænlandi. Gfsli Kristjánsson flytur ásamt Eddu Gísladóttur þýðingu sina og endursögn á bókarköflum eftir Jens Rosing. — Þriðji þáttur. 21.00 Hljómskálamúsik frá útvarpinu í Köin. Guðmundur Gilsson kynnir. 21.35 „ÞaA gerist eitthvaA". smásaga eftir Heinrich Böll. Hrefna Beckmann þýddi. Sigmundur örn Arngrímsson lcikari les. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir Dansiög. 23 35 Frctlir. Dagskrárlnk. Sunnudagur 3. apríl PálmasunnudaKur 8.00 Morgunandakt. Il«*rra Siglirlijiim Einarsson biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Út- dráttur úr forustugreinum dagbl. 8.30 Lótt morgunlög. 9.00 F’réttir. Hver er í simanum? Árni Gunnarsson og Einar Karl Haraldsson stjórna spjall- og spurningaþætti I beinu sambandi við hlustendur á Blönduósi. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Morguntónleikar. 11.00 Messa í Hafnarfjarðarkirkju (HljóAr. á sunnud. var). Prestur Séra Garðar Þorsteinsson prófastur. Organleikari: Páll Kr. Pálsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.15 Hugleiðingar um, hvers vegna Jón Sigurðsson var ekki á þjóðhátíðinni 1874. Lúðvík Kristjánsson rithöf- undur flytur hádegiserindi. 14.00 MiAdegistónleikar: Frá landsmóti is- lenrkra bamakóra. Ellefu barnakórar syngja á tónleikum í Háskólabíói 20. marz. Kynnir: Guðmundur Gilsson. 15.15 „Lífiö er saltfiskur *. Fyrsti þáttur Netaróður með m/b Jóhannesi Gunnari GK268. Umsjónarmaður: Páll Heiðar Jónsson. Tæknimaður Þorbjörn Sigurðsson. 16.15 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 StaldraA viA á Snæfellsnesj. Jónas Jónasson ræðir við Grundfirðinga; annar þáttur. 17.30 Útvarpssaga barnanna: „Systumar í SunnuhiíA" eftir Jóhönnu Guðmunds- dóttur. Ingunn Jensdóttir leikkona lýkur lestrinum (10). 17.50 MiAaftanstónleikar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 „MaAurinn, sem borinn var til kon- ungs", leikritaflokkur um ævi Jesú Krists eftir Dorothy L. Sayers. Þýð- andi: Torfey Steinsdóttir. Leikstjóri: Benedikt Árnason. 20.15 Sinfóníuhljómsveit Islands leikur í útvarpssal. Hljómsveitarstjóri Karsten Andersen. Einleikari ávíólu: Ingvar Jónasson. Konsert fyrir víólu og hljómsveit eftir Grazynu Bacevicz. 20.35 Feneyjar. Friðrik Páll Jónsson tók saman dagskrána, sem fjallar um sögu borgarinnr og legu. Rætt er við tvo málsmetandi Feneyinga um nútlma- viðhorf. Flutt tónlist eftir Vivaldi. svo og bátssöngvar. Meðflytjandi Friðriks cr Pétur Björnsson. 21.15 Píanósvita eftir Herbert H. Ágústs- son. Ragnar Björnsson leikur. 21.30 Ritmennt islendinga fyrir kristni. Einar Pálsson lcs kafla úr bók sinni „Timanum og cldinum” i tilcfni af nýlcgum fornlcifafundi á Grænlandi. 22.00 Fréltir. 22.15 Vcðurfrcgnir. Danslög. Sigvaldi Þorgilsson danskennari vclur lögin og kynnir. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok ^ Sjónvarp í Laugardagur 2. aprfl 16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.35 Christensens-fjölskyldan (L). Danskur myndaflokkur. 2. þáttur. Jóhann verAur líka aA vinna. Jóhann byrjar nú I skóla, en hann þarf að vinna í verksmiðju eftir skólatíma. því að faðir hans er drykkfelldur og heldur eftir af kaupi sínu fyrir vín- föngum. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. Sögumaður Ingi Karl Jóhann- esson. (Nordvision — Danska sjón- varpið). 19.00 Iþróttir (Laðhl.). Hlé. 20.00 Fréttir og veAur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Lasknir á ferA og flugi (L). Gamlir kunningjar bregða á leik I nýjum, breskum gamanmyndaflokki í 13 þátt- um. Þýðandi Stefán Jökulsson. 20.55 Úr einu i annaA. 21.55 Slys. (Áccident). Bresk blómynd frá árinu 1967. Handrit Harold Pinter. Leikstjóri Joseph Losey. Aðalhlutverk Dirk Bogarde, Stanley Baker og Jacqueline Sassard. Myndin gerist 1 háskólabænum Oxford og hefst með því, að ungur maður bíður bana í bílslysi fyrir utan heimili kennara síns, en unnusta hans kemst lífs af. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 23.40 Dagskráríok. Sunnudagur 3. apríl 1977 18.00 Stundin okkar. 19.00 Enska knattspyrnan. Kynnir Bjarni Felixson. Hlé. 20.00 Fréttir og veAur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Kvikmyndaþáttur. Fjallað er lítil- lcga um kvikmyndagcrð. sagt frá is- lcnskri tcxtun bíómynda, og minnst á nokkrar páskamyndir kvikmyndahús- 1 msjónarmenn Érlcndur Svcinsson og Sigurður Svcrrir Páls- son. 21.25 Húsbændur og hjú (L). Bnskur myndaflokkur. Biikur a lofti. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 22 15 Fró ListahatiA 1976. Bandariski ópmusöngvarinn William Walkcr syngur vinsjcl lög úr amcrískum söng- lcikjum. Við hljóðfænð J«»an Dornc*- maiin. 22.35 AA kvöldi dags. Árni Sigurjónsson flytur hugvckju. -2.45 Dagskrárlok. Sjönvarp íkvöld kl.21.55: Hjónaband próf ess- orsins kemur ekki í veg fyrir að hann eigi vingott við nemanda sinn! Frábær brezk mynd á skjánum Dirk Bogarde er frábær i hlutverki pröfessorsins, þarna er hann ásamt Jacqueline Sassard. Biómyndin sem er á dagskrá sjónvarpsins í kvöld kl. 21.55 heitir Slys, Accident. Myndin er brezk frá árinu 1967. I kvik- myndahandbókinni okkar fær þessi mynd þrjár og hálfa stjörnu. Þar segir að þetta sé frábærlega vel gerð mynd og ein af perlunum sem Joseph Losey hefur stjórnað. Handritið er eftir Harold Pinter og aðalhlutverkið er leikið af Dirk Bogarde. Það voru einmitt þeir sem gerðu myndina Þjóninn sem er ógleymanleg þeim sem hana sáu. Myndin hefst á því að einn af nemendum háskóla í Oxford ferst í bílslysi beint fyrir utan heimili eins af prófessorunum. Unnusta nemandans, sem verið hafði með honum í bílnum, kemst lífs af. Þótt prófessorinn sé harðkvæntur maður, kemur það ekki i veg fyrir að hann stofnar til mjög náinna kynna við einn af kvennemendum sínum. Þetta virðist í fljótu bragði einföld saga, en er það alls ekki þegar betur er að gáð. í kvikmyndahandbókinni er lokið miklu lofsorði á myndina og leik þeirra sem þar fara með hlutverk. Auk Dirk Bogarde leika Stan- ley Baker og Jacqueline Sassard í myndinni. Sýningartími er ein klukku- stund og fimmtíu og fimm mínútur. Þýðandi er Kristmann Eiðsson. -A.Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.