Dagblaðið - 25.04.1977, Side 2
n,\<;m.Af>m. manuda(;uk25. akríu 1977.
2
Ó, þessi klassík
Þorsteinn Hannesson tónlistar-
stjóri.
7167-5B88 skrifar:
Ég vildi óska útvarpinu til
hamingju meö páskadagskrána.
Þaö hlýtur aö hafa verið alveg
gífurlega erfitt að safna saman
öllu þessu drasli, sem boöið var
upp á. Annan eins hrylling hef
ég bókstaflega aldrei heyrt.
Allan daginn .út og inn
glamraði klassíska tónlistin á
fullu svo aö manni varö illt. Ég
bara spyr, hvaö varð af
poppinu? Eru einhverjar
reglur til um þaö að ekki megi
heyrast popp um páskana?
Alveg er ég handviss um aö svo
sé ekki. Heldur er þetta bara
enn eitt dæmið um einka-
hyggju tónlistarstjóra og Co.
Hefur heiðursmönnunum á tón-
listardeildinni aldrei dottiö í
hug að til eru hrífandi popp-
verk sem mundu sóma sér vel á
föstudaginn langa? Ekkert
botna ég heldur í því aö hafa
eingöngu klassíska tónlist h
laugardagskvöldið fyrir páska
og á páskadag.
Þó maöur tali nú
ekki um annan í páskum. Var
nú virkilega nauösynlegt að
sleppa mánudagspoppinu? Það
er greinilegt að tónlistarstjóri
og Co. nota öll tækifæri sem
bjóöast til að þjarma að
popptónlistinni. Er ekki
kominn tími til að þeir láti af
þessum fordómum gagnvart
poppi?
Eg verö nú samt að
viðurkenna að öll þessi klassík
um páskana hefur þó leitt eitt
gott af sér, en það er að mér er
fátt mpira til ama en klassísk
tónlist (og það er ykkur að
þakka, Þorsteinn og Co.).
ÉG VIL GJARNA KOMAST í
NÝTT ÚTVARPSRÁÐ
Páll Daníelsson, Melgerði 21,
Kópavogi skrifar:
Útvarp-Reykjavík, hefur
löngum. meðal ungs fólks verið
talin „uppþornuð" stofnun. Það
kemur til af þvi að eldra fólkið
ræður þar lögum og lofum.
Samt er þessi stofnun kostuð af
almennafé sem er sem kunnugt
er peningar þeir sem við borg-
um til hins opinbera, þ.e. frá 16
ára aldri og upp úr.
Einhvers staðar las ég að
helmingur þjóðarinnar væri
fæddur eftir 1944. Eldra fólkið
er því örugglega ekki í hrein-
um meirihluta og ætti þar af
leiðandi ekki að eiga meirihlut-
ann af dagskránni eins og nú
er. Yfirgnæfandi meirihluti
dagskrár útvarpsins miðast við
smekk þeirra, sem eldri eru en
fimmtugt. Því er jafnan svarað
til að hlustendur ríkisút-
varpsins séu flestir á þeim
aldri. Þetta er í sjálfu sér rétt,
en hvers vegna hlustar eldra
fólk meira á útvarpið en ungt?
Einfaldlega vegna þess að það
er rótgróin hefð að miða efni
þess við smekk þeirra sem eldri
eru. Þ.e. allt frá stofndeginum
1930.
Útvarpið gekkst fyrir mikilli
hlustendakönnun, eigi alls
fyrir löngu. „Þeirri umfangs-
mestu sem gerð hefur verið,“
tilkynnti einn útvarpsfor-
kólfurinn rogginn. Hvað kom
út úr þeirri könnun? Var það
einhver „óþægileg" útkoma?
Það væri fróðlegt að fá svar við
þessum spurningum, á þessum
vettvangi.
Nei, góðir hálsar. Þetta getur
ekki gengið svona mikið
lengur. Það er óforsvaranlegt
að ungu fólki sé þrýst til að
hlusta alltaf á „kanann“.
Útvarp-Reykjavík Rás 2 er það
sem á að koma. Því fyrr þvi
betra.
Reynir Hugason, verk-
fræðingur, sá stórsnjalli penni,
sýndi fram á það í kjallaragrein
f Dagblaðinu, að kostnaður við
slíka framkvæmd er óveru-
legur þó svo að um stereó-
útvarp væri að ræða. Það
hlýtur því að vera sanngjörn
krafa að nýtt (annað) útvarps-
ráð verði sett á laggirnar. Út-
varpsráð skipað ungu fólki.
Verði menn í vandræðum að fá
starfskrafta, þá er ég til í
tuskið.
Er Útvarp Reykjavík uppþornuð stofnun? Ekki virðist svo vera, ef
dæma má eftir þessari mynd, sem tekin var við upptöku áramóta-
skaupsins.
Það verður líka að hugsa um barnssálina. Börnin þurfa tilbreytingu
ekki síður en fullorðnir.
Er naudsynlegt að
barnaheimilin loki
í heilan mánuð á
sumrin?
Halldóra Ásmundsdóttir skrif-
ar:
Mig langar til að biðja
Sumargjöf eða einhverja þá
aðila sem með barnaheimili
hafa að gera að svara
spurningum um það hvaða
ástæður liggi fyrir því að loka
barnaheimilum í heilan mánuð
á sumrin. Eins og er komast
eingöngu börn námsmanna og
einstæðra foreldra á dagheimili
og það fólk hefur sannarlega
fæst efni á að taka sér frí, fyrir
utan það, að ekki eru allir
vinnuveitendur til viðtals um
frí einmitt á þeim tíma sem
barnaheimilin loka. Lokunin
kemur sér þv.í mjög illa fyrir
flesta og skapar hreint vand-
ræðaástand fyrir þá. Hvernig
stendur á því að föstrur geta
ekki skipzt á um að taka frí eins
og annað fólk. Fóstrunemar
Hann sagði að þetta væri
eilífðarvandamál. Það vantaði
yfir 20 fóstrur til þess að full-
manna barnaheimilin, auk þess
þurfa forstöðukonur frí. Hins
vegar reyndi Sumargjöf að
leysa nauð þeirra, sem verst
væru settir, með því að færa
börnin á milli heimila. Þeir sem
verst eru settir eru einkum
námsmenn. Fóstrur telja þó
nauðsynlegt að þrýsta á fólk að
taka sér frí með börnum sínum
ef mögulegt er. Börn sem eru
alltaf á stofnunum þurfa einnig
frf og þá helzt að vera með
foreldrum sínum. Fram-
kvæmdastjóri Sumargjafar
taldi þá tiltölulega fáa, sem
ekki geta leyst þetta vanda-
mál. Flestir eru viðbúnir þessu
og taka sér frí á sama tíma. Það
eru því ekki miklar líkur á að
breytingar verði á þessum mál-
um á næstunni og barnaheimil-
in munu loka á sumrin.
streyma út á vinnumarkaðinn á
sumrin og þeir hljóta að geta
leyst af eitthvað af fóstrum.
Það hlýtur að vera hægt að
leysa þetta vandamál á ein-
hvern hátt, öllum til hagsbóta.
DB hafði samband við fram-
kvæmdastjóra Sumargjafar og
spurði hann um þetta atriði.
Hringið ísíma
83322
kl. 13-15
eða skrifið
laugardag
80
m
laugavegi 69 simi 16860
Miðbaejarmarkaði — simi 19494
5980
5980
£
m*.
Leðursólar
fjölmargir
istir 6650.-
Hrágúmmísólar
*5980.-«!:
P0STSENDUM
6650
. ■