Dagblaðið - 25.04.1977, Side 28
f ......—...............
Reuter um fundinnsem Geir Hallgrímsson sat um helgina:
Bundnir þagnarheiti — um-
kríngdir vopnuðum vörðum
„Faldir bak við lokaðar dyr“,
þannig lýsir Reuter-
fréttastofan fundi Bilderberg-
samtakanna, sem Geir Hall-
grímsson forsætisráðherra sat
um helgina. „Fínasti klúbbur á
Vesturlöndum,“ segir frétta-
stofan.
Á þessum leynifundi, 25.
Bilderbergráðstefnunni, kom
þessi klúbbur saman í enska
baðstrandarbænum Torquay,
aðeins tveimur vikum áður en
toppfundur vestrænna ríkja
verður haldinn í London, segir
Reuter.
Ekki orð af niðurstþðum ráð-
stefnunnar verður birt opinber-
lega.
Hver þátttakandi hefur
heitið að gefa ekki upplýsingar
um það sem gerist á fundinum.
Þarna voru voldugustu menn
Vesturlanda, bankastjórar, hag-
fræðingar, stjórnmálamenn og
helztu embættismenn. Þeir
munu hafa talað frjálslega um,
hvernig varðveita mætti vest-
ræna lífshætti, segir Reuter.
Við græna borðið í Imperial
hótelinu, varðir vel vopnuðum
öryggisvörðum, voru meðal
annarra Helmut Schmidt kansl-
ari Vestur-Þýzkalands,
Kissinger fyrrum utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna og David
Rockefeller stjórnarformaður
Chase Manhattan bankans.
Þátttakendur eru valdir af sér-
stakri stjórnarnefnd samtak-
anna og kostnaður við þátttöku
þeirra greiddur úr einkasjóð-
um.
Sumir brezkir þingmenn
kalla þetta „mafíulegan fund“
auðmanna, og þingmaðurinn
Canavan úr Verkamanna-
flokknum krefst opinberrar
rannsóknar á samtökum þess-
um. Samtökin upphófust á tíma
kalda stríðsins, og eru þau
kennd . við Bilderberg í
Hollandi, þar sem fyrsti fund-
urinn var haldinn.
Home lávarður, forseti ráð-
stefnunnar, sagði, að hún
mundi verða að gagni. Hug-
myndir þaðan mundu birtast
víða á næstunni.
-HH
Vængjadeil-
unni lokið
Langvarandi deilum í flug-
félaginu Vængjum hf. er nú
lokið með þvi að Guðjóni Styrk-
árssyni, hrl., formanni stjórnar
félagsins, hefur verið seldur
mikill meirihluti hlutabréfa í
fyrirtækinu. Fleiri samherjar
Guðjóns hafa einnig keypt hluti
í félaginu, þeirra á meðal fisk-
vinnslufyrirtækið Hjálmur hf.
á Flateyri og Jónas Guðmunds-
son stýrimaður. Jónas var kjör-
inn í stjórn félagsins á aðal-
fundi þess, sem haldinn var á
föstudaginn.
Aðalfundurinn stóð aðeins 1
tæpan hálftíma. Voru þar
lagðir fram endurskoðaðir
reikningar félagsins og skýrt
frá hinni nýju stöðu, sem upp
er komin í félaginu.
Fyrrverandi hluthafar, sem
undanfarna mánuði hafa átt í
miklum deilum við stjórn
félagsins, seldu flestir öll sin
hlutabréf á einu og hálfu nafn-
verði og hafa þar með losað sig
út úr félaginu og frá öllum
skuldbindingum þess. Fóru
þessi viðskipti fram skömmu
fyrir páska.
Þar sem hinir óánægðu hlut-
hafar voru farnir úr félaginu
varð ekki úr að kjörnir endur-
skoðendur félagsins gerðu aðal-
fundinum grein fyrir ýmsum
athugasemdum sínum um með-
ferð hlutabréfa og fjármuna
félagsins.
-ÓV
FYRIRLESTUR
DnRIS SPASSKY
mjié skáksálfræði íTjarnarbæ
Sovézki stórmeistarinn Boris Spassky heldur fyrirlestur í Tjarnar-
bæ, gamla Tjarnarbíói, í kvöld kl. 8. Fjallar fyrrv. heimsmeistari
um efni, sem nefna mætti skáksálfræði í einvígjum og öðrum meiri
háttar keppnum.
Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Skáksambands tslands og öllum
opinn. Aðgangseyrir er kr. 250.00.
Myndin er af Spassky og frú. DB-mynd Sv. Þorm.
Drepa í síðustu sígarettunni
í sjónvarpssal í kvöld
„Ég er búinn að hugsa um
þetta 1 langan tíma, en hef
aldrei gert neitt til þess að
hætta. Ég hef ekkert minnkað
reykingar, eða notað síu til að
minnka nikótínið,“ sagði Stefán
Jökulsson í morgun, þegar við
spurðum hann hvernig gengi að
undirbúa sig undir kvöldið.
Stefán sagðist ekkert kvíða
fyrir, hann settist bara þarna
niður og dræpi í síðustu sígar-
ettunni og væri þar með hættur
að reykja.
„Ætli Sigrún, stjórnandi
þáttarins, hafi ekki frétt að ég
hef verið með síu á sígarettun-
um undanfarna mánuði til að
minnka nikótínið,“ sagði
Jóhanna Kristjónsdóttir i sam-
tali við DB í morgun. Hún er
ein af þeim sem sitja með
Jóhanna Kristjónsdóttir: Hef
notað síu á sigaretturnar und-
anfarna mánuði.
Sighvatur Björgvinsson: Eg hef
ekkert undirbúið mig sérstak-
lega.
flestir taki þátt í þessu með
okkur,“ sagði Elsa Þorsteins-
dóttir í morgun. Hún sagði að
hún hefði ekki búið sig sérstak-
lega undir þáttinn. Hún hefði
að vísu reynt að hætta að
reykja einu sinni áður, en það
hefði aðeins verið í nokkra
daga. Elsa sagði að hún hefði
heyrt á mörgum að þeir ætluðu
að fara að dæmi þátttakenda í
sjónvarpssal, „svona þættir
hefðu átt að koma fyrir löngu,“
sagði Elsa.
Það hefur varla farið fram-
hjá neinum að í kvöld hefst í
sjónvarpinu námskeið fyrir þá
sem vilja hætta að reykja. Það
hefst að loknum fréttum og er
fyrsti þátturinn 1 tuttugu mín-
útur, en hinir verða í fimmtán
mínútur. Sigrún Stefánsdóttir
stjórnar þáttunum, en þeir eru
sendir beint út.
I hvern þátt koma ýmsir
kunnáttumenn til að gefa góð
ráð því fólki sem tekst þessi
þraut á hendur. Læknir,
sálfræðingur og matvæla-
fræðingur leiðbeina fólkinu í
gegn um þá erfiðleika sem
mæta því fyrst í stað.
Námskeiðið er haldið með
það fyrir augum, að
sjónvarþsáhorfendursem vilja
hætta að reykja noti þetta
tækifæri og myndi hópa, t.d. á
heimilum eða á vinnustöðum,
og fari að dæmi þáttakendanna
í sjónvarpssal.
Þátturinn, eða námskeiðið,
verður þessa viku, því lýkur á
laugardagskvöld.
-KP.
Stefán Jökulsson: Ég er búinn
að hugsa mikið um að hætta.
Sigrúnu Stefánsdóttur frétta-
manni í sjónvarpinu í kvöld og
hefja þátttöku í námskeiði til
að hætta að reykja. Jóhanna
sagðist ekki hafa undirbúið sig
að öðru leyti en því, að hún
hefði notað síur á sígarettur.
Hún sagðist ekki hafa trú á að
fólk gæti bara hætt, án þess að
hafa einhvern undirbúning og
aðdraganda að því.
Elsa Þorsteinsdóttir: Vona að
sem flestir taki þátt i þessu
með okkur.
Sighvatur Björgvinsson al-
þingismaður sagði í morgun að
hann væri ekkert búinn að
undirbúa sig sérstaklega undir
þáttinn. Hann ætlar að hætta að
reykja í kvöld og vonar að það
takist með hjálp góðra manna
sem koma í heimsókn í þáttinn í
sjónvarpssal.
„Ég ætla bara að vona að sem
Srjálst, nháð dagblað
MANUDAGUR 25. APRlL 1977.
Samningarnir:
Beðið eft-
ir atvinnu-
rekendum
Beðið er eftir svari atvinnu-
rekenda um vísitölumálið. Þess
vegna var enginn samninga-
fundur í gær, en örstuttur
fur.dur var á laugardaginn.
„Kaupmáttartrygging er ekk-
ert einfalt mál, sem verði af-
greitt á einum fundi,“ sagði
Davíð Scheving Thorsteinsson,
formaður Félags íslenzkra iðn-
rekenda, í morgun. „Það verður
að reikna, hvað hinir ýmsu
möguleikar þýða fyrir þjóðar-
búið, hvað þjóðfélagið þolir
hátt kaupmáttarstig. Ef það er
sett á vitlausan stað, skellur
holskeflan yfir.
Það er ekkert á móti þvi að
skoða allar hugmyndir, og
þannig var svar vinnuveitenda
á laugardaginn,“ sagði Davíð.
„Við erum sjálfir að reikna það
dæmi.“
Samningafundur verður
klukkan tvö í dag. -HH'
Tveir duttu
af hestbaki
Stefán frá Möðrudal datt
af hestbaki sl. laugardag og
slasaðist nokkuð. Hann var
fluttur í Sjúkrahús.
Ung stúlka datt einnig af
hesti hjá Fákshúsunum í
Viðidal og slasaðist á höfði.
-J.H.
BÁTISTOLIÐ
Fyrir helgina var báti
stolið frá sumarbústað við
Hafravatn. Báturinn, sem er
11 fet, var ófundinn í m»rg-
un.
-JH.
Slys við
Áburðar-
verksmiðj-
una
Maður datt af vörubíls-
palli hjá Áburðarverk-
smiðjunni síðdegis á
föstudag. Bíllinn var á ferð
og steyptist maðurinn af
honum. Hann slasaðist á
höfði og fótum.
-JH.
Brotizt inn
Brotizt var inn í sumar-
bústað að Grafarholtsbletti 6
sl. föstudag. Stolið var
hljómplötum og einhverju
af peningum.
-J.þH.
Stolið úr Landa-
kotskirkju
Brotizt var inn i Landa-
kotskirkju aðfaranótt
sunnudags og þaðan stolið
hljómflutningstækjum.
Einnig var brotizt inn í
Sundlaug Vesturbæjar og
þaðan stolið hátölurum.
Málið er i rannsókn hjá lög-
reglunni. « Ri