Dagblaðið - 28.04.1977, Qupperneq 1
í
i
i
i
i
i
i
í
i
i
t
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
3. ARG. — FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1977. — 95. TBL.
RITSTJÓRN SHÍUMÚLA 12. SÍMI 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI2, SÍMI 27022.
NÝTT HRAUN 50x200
METRAR RANNINOTT
i dögun í morgun virtist
hraungos sem hófst í nýjum gíg
2—3 km noróur af Leirhnjúk
skömmu eflir miðnætti hafa
stöðvazt. Hafði þá mnnið
hraun úr gígnum sem að fiaiar-
máli var talið vera 200x50
metrar að stærð. Hraungígur-
inn var fimmti gígurinn sem
opnaðist á sprungunni þar sem
gos hðfst í gær. Hinir fjórir,
sem eru nær Kísiliðjunni og
byggðinni, voru allir virkir en
gjósa að mestu eingöngu gufu.
Dagblaðið hafði samband við
Helga .Jónsson sem var á vakt í
stjörnstöð Almannavarna i
morgun og kvað hann nú allt
rólegra á svæðinu, og svo virtist
sem allt væri í rénum. Helgi
sagði að hraungosið hefði orðið
dálítið norðar en gosið 1975.
Hið nýja hraun gæti ekki
kallazt annað en sletta Hinir
gígarnir fjórir, sem sunnar og
nær byggðinni opnuðust á
sömu sprungu, spýja gufu en þó
var á tímabili eldur í þeim
nyrzta af þessum fjórum. Rann-
sóknarmenn höfðu allir farið á
vettvang í morgun og fréttir frá
þeirh voru ókomnar þá er DB
talaði við Helga.
Helgi sagði að miklir jarð-
skjálftar hefðu staðið allan dag-
inn í gær og þeir hefðu valdið
spjöllum á nokkrum stöðum.
Mest varð tjónið við Kísiliðj-
una. Þar brast ein af efnisþróm
verksmiðjunnar og flæddi úr
henni mikill vatnsflaumur.
Þrær þessar geyma vikur og
vatn sem dælt er upp úr Mý-
vatni. Ekki vissi Helgi hversu
mikið vatn hclði verið í þrónm
en þær taka fullar mikið magn.
Vatnsflaumurinn skemmdi
hitaveituna til Reykjahlíðar og
olli fleira tjóni. Hitaveitan er
enn biluð enda skemmdist hún
víðar en við verksmiðjuna af
vatnsflaumum. Jarðskjálftarn-
ir ollu allmikilli gliðnun jarð-
sprungna og fór hitaveitan í
en virðist allt í rénun
sundur á nokkrum stöðum. Við-
gerð hitaveitunnar var hafin í
morgun.
Þá komu slæmar sprungur í
veginn upp í Bjarnarflag. á
nokkrum stöðum, en þegar í
morgun var búið að gera við
þær til bráðabirgða svo fært
var uppeftir.
Þá ollu skjálftarnir skemmd-
um á einu húsi Kísiliðjunnar.
Það hús stendur á sprungu og
hefur áður skemmzt í skjálft-
um. -A.St.
Hin dýrmætu bílastæði
miðborgarinnar:
KR0N girðiraf
lóð sína þegar
borgin neitarað
hækka leiguna
- bls. 5
Að eiga ná
býli við einn
nábýlis
manna
Bakkusar
— bls. 8
Það er ekkert grín að vera án lesningar í marga daga. Þetta
þurftu Akureyringar þó að sætta sig við, vegna þess að þangað var
ekki flogið i þrjá daga vegna óveðurs nyrðra. Blöðin voru því
gripin fegins hendi í blaðavagninum og það var enginn leikur að
koma fyrir blaðabunkunum, en blöðin voru þrisvar sinnum fleiri
en venjulega. Bunkinn rauk út og Akureyringar fengu blaðið sitt,
eftir þriggja daga bið.
DB-mynd AB/-KP.
„Nú getur
maður
andað”
Guðmundarmálið komið á svipað stig og í f y rra:
Játningar þvingaðar fram
— segja sakborningar fyrir réttinum
INTERP0L hefur fundið hinn eftirlýsta ímálinu
Rannsókn Guðmundar-
málsins er nú aftur komin á
svipað stig og á sama tíma í
fyrra. Gæti rannsóknin staðið
allt fram á haust, að sögn
heimildarmanna DB.
Réttarrannsóknin beinist nú
að taisverðu leyti að lögreglu-
og dómsrannsókn málsins
fram að þeim tima að ákæra
var gefin út áhendur meintum
banamönnum Guðmundar
Einarssonar. k]innig eru rann-
sakaðar starfsaðferðir fanga-
varða í Síðumúlafangelsinu.
Að minnsta kosti einn fyrrver-
andi fangavörður þar hefur
borið vitni gegn tilteknum
starfsmönnum fangelsisins,
enda lét hann af störfum m.a.
vegna þess, að hann gat ekki
sætt sig við starfsaðferðir sem
þar voru tíðkaðar, svc sem
yfirheyrslur á vegum ein-
stakra fangavarða.
Sakborningarnir í málinu
hafa fyrir réttinum sumir
haldið því fram, að játningar
þeirra í máiinu hafi verið
þvingaðar fram og að fyrir þá
hafi verið lagðar sögur, sem
þeim var síðan ætlað að sam-
þykkja. Mun þetta einnig eiga
við Geirfinnsmálið, sem þing-
fest var kl. 10 í morgun. Hafa
því tveir þeirra, Sævar Ciesiel-
ski og Tryggvi Rúnar Leifsson,
dregið játningar sínar í Guð-
mundarmálinu til baka.
Nýjasta vitnið í málinu, sem
leitað hefur verið af Interpol í
Evrópu að undanförnu. hefur
nú fundizt og verður flutt til
Islands í fylgd tveggja ís-
lenzkra rannsóknarlögreglu-
manna fyrir helgina, að því að
talið er. Er það 21 árs gamall
maður sem fannst loks á Spáni
i vikunni.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem DB hefur aflað sér, er
rannsóknin, sem ákæran var
byggð á, nú á undanhaldi og
hefur ýmislegt nýtt komið í
Ijós i réttarhöldunum.
OV
— Loftleiðamenn
sniía baki við
sígarettunni
- bls. 9
Brezhnev
gerður að
blaðamanni
— sjá erl fréttir
bls.6-7