Dagblaðið - 28.04.1977, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1977.
7
Til vinstri. Oryggisventill sem einnig gengur undir nafninu „jólatréð". Hann er settur efst á olíurörið til að hindra að olían renni
óhindruð út. Er óhappið á Bravo varð hafði „jólatréð“ verið tekið burtu vegna eftirlits, en framlenging sett á í staðinn. Áformað var að
segja nýjan öryggisventil á hið bráðasta, en olíugusan varð á undan. Til hægri. Mynd af Bravo olíuborpallinum, tekin á sunnudag.
Björgunarmenn á Ekofisk-olíuleitarsvædinu
Þurftusex klukkustundir
til að loka borholunni
líkur bentu til þess að Ijúka mætti verkinu upp úr hádegi
ídag
Björgunarmenn á Ekofisk
olíuleitarsvæðinu á Norðursjó
eru bjartsýnir á, að takast megi
að beizla borholuna, sem nú er
búin að spúa út meira en 20.000
tonnum af jarðolíu síðan á
síðasta föstudag. Sex manna lið
sérþjálfaðra bandarískra
björgunarmanna fór upp á
Bravo-borpallinn í dögun í
morgun. Þeir töldu sig þurfa að
minnsta kosti sex klukku-
stundir til að ljúka verkinu.
Það eina sem getur hrindrað
að olíulekinn verði stöðvaður er
eldsvoði eða ef veður versnar.
Veðurspá er mjög hagstæð og
líkur á eldsvoða fara sífellt
minnkandi.
Bandarísku björgunarsér-
fræðingarnir og sjálfboðaliðar
frá Phillips olíufélaginu, sem
rekur Bravo-borpallinn, unnu í
átta klukkustundir í gær við að
reyna að koma þungum málm-
hettum yfir olíugosið og hefta
það þannig. Það tókst ekki, þvi
að þeir voru orðnir örmagna af
þreytu. Vinnuskilyrðin eru sér-
lega erfið. Hávaðinn frá olíu-
gosinu er eins og úr þotuhreyfli
og erfitt er að fóta sig, þar eða
Bravo er úsmurður í jarðolíu.
Asgar ,,Boots“ Hansen björgun-
arsveitarforingi og menn hans
hvíldust i nótt um borð í
björgunarbát sem liggur við
akkeri skammt frá borpallin-
um.
Þegar tekizt hefur að beizla
olíugosið er það hlutverk
áhafnar björgunarbátsins að
dæla leðju niður í pípur borsins
til að jafna þrýstinginn í
holunni, fyrir ofan og neðan
sjávarmál. — Olíubrákin sem
myndazt hefur síðan á föstudag
þekur nú orðið um 1.500 fer-
kílómetra sjávarflatarins kring
um olíuvinnslusvæðið. Enn
hefur olían ekki náð upp að
neinni strönd í námunda við
svæðið. Talsvert af olíunni er
nú sokkið.
Bandaríkin stööva
vopnasendingu
til Eþíópíu
Bandaríkjastjórn hefur stöðvað
vopnasendingu til Eþíópíu að
verðmæti um 100 milljónir
dollara. Ástæðan er sú að stjórnin
í Addis Ababa hefur látið loka
flestum bandarískum fyrirtækj-
um i landinu.
Eþíópíustjórn hafði pantað tals-
vert mikið af vopnum, — af-
hending þeirra allra hefur verið
afturkölluð. Meðal annars voru í
pöntuninni F-5 orrustuflugvélar,
M-60 skriðdrekar og mikið af skot-
færum.
Sovétstjórn samþykkti í desem-
ber síðastliðnum að sjá byltingar-
stjórninni í Eþíópíu fyrir vopn-
um. Fram til þess tíma höfðu
Bandaríkin eingöngu selt stjórn-
inni þar vopn. Sambandið milli
landanna hefur farið síversnandi
allt frá því að herinn steypti Haile
Selassie keisara af stóli og kom á
byltingarstjórn í staðinn fyrir
þremur árum.
Alls voru það um 325 manns,
sem urðu fyrir verulegum áhrif-
um vegna ákvörðunar stjórn-
arinnar í Eþiópíu að loka fimm
bandarískum fyrirtækjum í
landinu.
Bandaríkin:
LÉLEGRA HERÓÍN
Á HÆRRA VERÐI
Heróínneytendur í Banda-
ríkjunum þurfa í ár að greiða
hærra verð fyrir lélegra heróín
en í fyrra. Þetta kom fram í
skýrslu, sem Peter Bensinger
yfirmaður eiturlyfjaeftirlitsins
i Bandaríkjunum tjáði undir-
nefnd þingsins í Washington.
Bensinger sagði, að venjulegt
verð á götum úti væri nú 1.53
dollarar fyrir milligrammið. í
fyrra hefði það verið 1.26 doll-
arar. Þá hafa gæði efnisins
einnig minnkað verulega. Í
marz síðastliðnum var 5.8% af
hreinu heróíni í hverjum
skammti, — 6.6% á sama tíma í
fyrra. Árið 1973 voru gæði
heróinsins minnst eða 5.2%.
Ástæðan var sú, að þá voru hert
viðurlög við ópíumsölu í Tyrk-
landi.
HvaöaAdolf?
Auðvitað hljóta skóla-
krakkar í Þýzkalandi að vita
allt um Adolf Hitler og
gerðir hans. Kennari einn í
Flensburg var þó ekki alveg
viss. Hann gekkst fyrir sinni
eigin skoðanakönnun meðal
skólabarna víðs vegar um V-
Þýzkaland. 2070 börn svör-
uðu og niðurstaðan varð:
Þau vissu ákaflega lítið.
„Hitler var gamli leiðtog-
inn okkar,“ sagði 14 ára
piltur. „Hann leyfði ungu
fólki ekki að hafa sitt hár.“
Annar nemandi kvað Hitler
hafa fæðzt á árunum 1920-25
og hefði hann verið hvað at-
kvæðamestur við endurreisn
V-Þýzkalands eftir heims-
styrjöldina síðari.
Nokkra aðdáendur virtist
gamli leiðtoginn eiga meðal
þýzkrar skólaæsku. Til
dæmis sagði einn 16 ára:
„Hitler var hernaðarsnill-
ingur sem hafði nærri því
lagt heiminn undir sig."
Annar kvað hann hafa byggt
fyrstu hraðbrautina í Þýzka-
landi.
Erlendar
fréttir
Félagi
Brezhnev
blada-
maður
Sovézka blaðamanna-
félagið gerði Leonid Rrezh-
nev aðalritara kommúnista-:
flokksins að blaðamanni
númer tvö í Sovétríkjunum í
gær. — Það er sjálfur Lenin,
sem er blaðamaður númer
eitt í landinu. Það var for-
maður félagsins, sem af-
henti Brezhnev skírteinið.
Sá er jafnframt aðalrilstjói"
Pravda.
Bfla-og biívélasalan
Arnbergi við Selfoss
Sími 99-1888
Sýnishorn úr söiuskrá:
Chevrolet Nova blár og hvítur
74.
Chevrolet Vega rauður 73.
Comet Custom brúnn með
vinyl 74.
Citroen 1220 Club brún sanser-
aður 76.
Citroén station DS brúnn 74.
Chevrolet Blazer K5 Custom
svartur 74.
Fiat 125, pólskur, blár 75.
Fiat 128 grænn 74.
Mazda 616 rauður 74.
Moskvitch hvítur 73.
Moskvitch rauður 70.
Moskvitch station orange 71.
Skoda 100S rauður 71.
Skoda Pardusgulur 73
Saab 96 blár 72.
Toyota Crown grár 72.
Taunus station 20M gulsanser-
aður 70.
Taunus grár 71.
Volga rauður 73.
Wagoneer gulur 73.
VW Fastback rauður 70.
Plymouth Barracuda grænn
’69.
Pontiac Firebird grænsanser-
aður ’68.
Mótorhjól
Kawasaki 750 cc. H2 blátt 72.
Triumph 500 cc rautt og hvítt
74.
Honda SS 50 cc gult 74.
Höfum einnig nokkra Willys
jeppa og vörubíia, búvinnu-
vélar og tæki.
Opið alla daqa frá kl.
14—22.
Bíla-ogbúvélasalan
Arnbergi við Selfoss
Simi 99-1888
VING
SANA
töflurnar kontnar
aftur
Litur: Hvftur
Stærðir: 4—7H
Verð kr. 5.875/-
Litir: Brúnar, rauðar og blá-
ar.
Stærðir: 4—714
Verð kr. 6240/-
Litur: Rauður
Stærðir: 314—7
Verð kr. 6.240/-
Allar úr ekta skinni með
þægiiegt skinnkiætt kork-
innlegg.
Domui Me4ú* FfiUflUii 3
Sfmi: 18519.