Dagblaðið - 11.05.1977, Side 3

Dagblaðið - 11.05.1977, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MAl 1977. lofið okkur að lifa Hjólhýsafólk vill bætta aðstöðu til ferðalaga. Jóna Vigfúsdóttir skrifar: I sjónvarpinu um daginn voru umræður um ferðamál innan lands og utan og leitað skýringa á því fyrirbæri að það mun vera þriðjungi dýrara að fara kringum landið sitt heldur en að fljúa í sólskinsparadísir suður við Miðjarðarhaf. Talað var við tvo af ferðamálagörpum okkar og ræddar leiðir til að lækka ferðakostnað og eins tekin til meðferðar umgengni fólks á útivistarstöðum. Þar sem við hjónin höfum gert hringferð um landið eða styttri ferðir innanlands að ár- vissri reglu vil ég drepa hér á ýmis atriði sem ég hef hnotið um undangengin ár. Ég vil þá byrja á því sem er tilefni þessarar greinar og það er viðhorf forráðamanna vega- gerðar til þeirra sem ferðast með hjólhýsi. Vegir landsins eru nú orðnir háir og greið- færir og er það vel. En hvergi hefir verið gert ráð fyrir því að hjólhýsafólk kynni að langa til að komast út af veginum ef það sæi fýsilegan stað. Ef lagður er nýr og beinni vegarspotti þá skyldi maður nú ætla að við myndum fá að notfæra okkur gamla veginn svona til að vera nú ekki fyrir neinum og eins fer vel um hjólhýsin á sléttri möl. En — nei, óekki — fyrsta verk þessara dánumanna er að grafa gamla veginn sundur og skilja hann þanriig frá þjóðveg- inum að ómögulegt er að kom- ast út á hann. Það getur svo sem verið að við hjónakornin séum full rög við vegkantinn en litlu hjólhýs- in eru það stutt og há á vegi að ekki þarf neinn rosakant til þess að þau velti. Eitt árið fórum við fyrir Tjörnes og ætluðum að reyna að hafa náttstað frammi i Aðal- dal en það fór eins og svo oft áður, að hvergi var hægt að komast út af veginum þar sem viðunanlegt var. Við urðum að skrönglast alla leið til Akur- eyrar til að geta hallað okkur á eyrað. Þá er þar við annan vanda að fást og það er að geta ekki sofið á hverju semgengur. Við höfum sjaldan verið á opin- berum tjaldstæðum, einkan- lega vegna þess að við erum svo svefnstygg. Ekki hefur þó fólkið verið manni til ama, því umgengni þess er orðin til fyrirmyndar, þótt til séu þar undantekningar. En hina full- komnu kyrrð vantar. Eitt sumarið áttum við ógleymanlega miðsumarnótt í Egilsstaðaskógi en — æ, æ, — næsta sumar voru grafararnir búnir að róta sundur gamla veginum. Einu sinni vorum við í nátthaganum í Skaftafelli — guð varðveiti mig. — I annað skipti eldaði ég okkur kvöldmat í malarfarvegi milli Skaftafells og Svínafells. Þá kom þar eitt- hvert vesælt gamalmenni í íra- fári og setti upp pappaspjald þar sem öll umferð utan vegar var bönnuð. Hæ, hæ og hó, ég hló og át bitann minn í róleg- heitum því Skaftafell á ríkið og ríkið, það er ég. Það er ágætt og sjálfsagt að hafa þjóðgarðsverði en væri nú ekki nær að láta þá rífa húskofana uppi á flötunum og reka rollurnar úr túninu heldur en vera alltaf á hælun- um á fólkinu til að reka það úr einum stað í annan? Það getur verið að útlend- ingar séu vanir þessari pössun og peningamjöltun, en andskota af mér sem við Islendingar kunnum við þetta. Ég vona að ég eigi ekki eftir að lifa það að mega ekki stanza á hverjum þeim stað sem ég verð ekki öðrum til ama og ásteyt- ings. Hvað er að verða af hinni rómuðu íslenzku gestrisni? Flestir ganga hvarvetna vel um garða og það ber að þakka. Af hverju er þagað yfir því? Hvers vegna eru náðhús og vatnskranar sett á jafn guðsvol- aðan berangur og nlelinn sunnan við Kvísker? Þá jörð hefði ríkið þurft að eignast og gera að' þjóðgarði. Og fyrst fólki er úthýst svona rækilega hví þá að hafa kamar þarna á eyði- sandi þar sem við auganu blasir þessi gróðursæla vin? Hvers vegna ekki við ána ofurlítið vestar eða yfirundir Fjallsá? Þar stanza allir en þar er engin snyrtiaðstaða. Við Jökulsá, sem er að líkind- um einn vinsælasti skoðunar- staður sunnanlands, er ekki einu sinni vesæll kamar, hvað þá vatn í krana og svona má lengi telja. Já, lofið okkur að lifa. Við biðjum bara um að fá að sniglast um þjóðvegina og fá að stanza þar sem við erum ekki fyrir neinum. Við kaupum okkur pylsur og kók eins og aðrir í vegasjoppunum og verzl- um í kauptúnunum á leið okkar. Við gefum náttúrlega ekki mikið af okkur íkrónutölu því við erum eins og snigillinn, flytjum hús okkar og þurftir með okkur, en þó svo se, þá lokið okkur ekki úti á ber- angrinum. Gerið okkur kleift að komast út á fallega staði þar sem við getum notið yndis og friðar náttúrunnar. íslenzkan landsliðsþjálfara Knattspyrnuáhugamaður, 1730- 6804, skrifar: Nú er knattspyrnuvertíðin hafin í fullri alvöru og er því hugur margra bundinn við hana þessa dagana. Mig langar fyrst að ræða um þjálfaramál landsliðsins og úrbætur í þeim efnum. Nú hefur KSÍ enn einu sinni ráðið til sín erlendan landsliðsþjálfara. Tony. Knapp. Ég ætla ekki að fara að ræða um gerðir hans hér. Það sem ég ætla að minnast á er það að mér finnst það í meira lagi furðulegt að KSÍ skuli ráða til sín erlendan landsliðsþjálfara, Raddir lesenda Umsjdn: Jónas Haraldsson þegar það er haft i huga hversu góða og vel menntaða þjálfara við eigum. Við eigum að stefna að því að íslenzkur þjálfari þjálfi lands- liðið í framtíðinni, bæði a- landsliðið og unglingalands- liðið. Til eru margir íslenzkir þjálfarar sem hafa hæfileika til þess að þjálfa landsliðið okkar, menn eins og Guðni Kjartans- son, Guðmundur .Tónsson, Jóhannes Atlason og fleiri og fleiri. Þeir eiga skilið að fá tækifæri til þessara hluta. Auk þess eru erlendu þjálfararnir svo dýrir að félögin hafa vart efni á því að hafa þá. Sem dæmi má nefna að Tony Knapp hafði um 500 þús. kr. í laun á mánuði sl. sumar. Geri aðrir betur. KSÍ má ekki vantreysta okkar eigin þjálfurum. Þeir menn sem sæti eiga i stjórn KSl hafa lengi sagt að íslenzkir þjálfarar hafi engan veginn þá reynslu sem þarf til að taka að sér landslið. En hvernig fá menn næga reynslu ef þeir fá ekki einu sinni tækifæri til að sýna hvað i þeim býr? Keppni i fyrstu deild í knattspyrnu er hafin. Myndin sýnir Vest- mannaeyinga skora gegn Fram í fyrstu umferð íslandsmótsins ERFITT AÐ KOMAST í ARBÆJARHVERFIÐ H.T. hringdi og kvartaði yfir því að erfitt væri að komast úr vestur- bænum í Árbæjarhverfið með SVR um helgar. Möguleikar væru á því að nota leiðir 3 og 4 að Hlemmi og leið 6 að Grensás- stöð. Bílarnir fara vestan að á hálftima fresti en í öllum til- fellum er Arbæjarvagninn, leið 10, farinn fyrir u.þ.b. 5 mínút- um. Það er mjög bagalegt fyrir fullorðið fólk að standa og bíða eftir strætisvagni í 20—25 mín- útur. Vonandi geta -forráða- menn SVR hagað ferðum vagn- anna þannig að meira skipulag verði. Ferðir í Breiðholtið eru góðar og ber að þakka það en fólk þarf líka að komast í Arbæ- inn. Spurning dagsins Hvert er uppáhalds blóm þitt? Ingi Gunnarsson starfsmaður Flugieiða: Rósir. Þær eru gamall vani í f jölskyldunni. Ásdís Ágústsdóttir starfsmaður Flugleiða: Rósir eru nú alltaf langfallegastar. Bjarni Þórarinsson sölumaður: Rósir. Þær eru bæði fallegar og líflegar. Sigurður Guðmundsson máiari: Ég veit ekki hvað það heitir. Það er sóleyjartegund. Erla Ólafsdóttir húsmóðir: Rósir, þær eru svo rómantískar. Kósa Þorsteinsdóttir afgreiðslu- stúika í biómabúð: Orkideur, þær eru svo fallegar.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.