Dagblaðið - 11.05.1977, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MAl 1977.
ÖRYGGISJÓMANNA Á VINNUSTAÐ
MINNA EN ALLRA ANNARRA STÉnA
— Ungur Akureyringur hvarf af báti sínum um nótt og leit ekki hafin fyrr
en mörgum dögum seinna
liklÆ
IUARHOT
LÆKJARGATA 32 • PÓSTH.53 HAFNARFIRÐI • SÍMI 50449
Seljum:
Málningu — málningarvörur
járnfittings — rör
Danfoss — stillitœki
Allt til hitaveitutenginga.
Opið í hádeginu og laugardaga 9-12, nœg
bílastœði.
Rúmlega tvítugur maður frá
Akureyri, Pétur Söebeck Bene-
diktsson, hvarf af báti sem hann
var á 19. marz sl. þegar báturinn
lá í Sandgerðishöfn. Til piltsins
hefur síðan ekkert spurzt.
Athygli á þessu máli var vakin
við blaðið í bréfkorni frá Hilmari
Jónssyni í Keflavik. Telur hann
að engin stétt manna búi við eins
lítið öryggi á vinnustað og
sjðmannastéttin.
I bréfinu segir að ungi
maðurinn hafi farið frá borði báts
sins um miðja nótt og sagt
félögum slnum að hann ætlaði að
fara um borð I næsta bát ein-
hverra erinda.
Hilmar segir að þremur dögum
siðar hafi skipstjðri tilkynnt
hvarfið til útgerðarinnar og
tveimur dögum þar á eftir hafi
lögreglan verið beðin að hirða dót
mannsins. Hilmar telur aðgerðir
lögreglu hafa verið endasleppar I
þessu máli og þær minni á annað
mál svipað eðlis þá er stúdent
hvarf I Höfnunum.
í bréfinu segir að sagt sé að æ
tíðara gerist að sjðmenn fari af
bátum sinum, án þess að kveðja
kóng eða prest. Samt finnst bréf-
ritara framkoma skipstjóra og út-
gerðarmanns ekki afsökunarhæf I
þessu tilfelli. Á þessum tlma var
sanddæluskip að verki I höfninni.
„Hafi pilturinn drukknað, sem
mestar llkur eru til, þá skipti
höfuðmáli að leita liksins sem
fyrst,“ segir bréfritari. t lokin
bendir hann á, að engir stigar séu
við bryggjur I Sandgerði og sá
sem fellur þar I sjóinn verði því
að synda góðan spöl innan um
báta og upp I f jöru. Telur hann að
slíkar aðstæður kalli á aðgerðir
slysavarnafólks, sem óneitanlega
eigi mestan heiður af því að bæta
öryggi sjómanna.
Dagblaðið hafði samband við
John Hill rannsóknarlögreglu-
mann I Keflavlk vegna bréfsins.
Hann kvað það rétt að útgerðar-
maður hafi haft samband við
lögregluna og beðið um, að ef
hinn horfni sjómaður sæist ein-
hvers staðar, væri hann beðinn að
sækja dót sitt.
John Hill kvað lögregluna
þegar hafa hringt til Akureyrar-
lögreglunnar, beðið hana að hafa
samband við aðstandendur hins
horfna manns og grennslast fyrir
um hann.
Á sama tíma var I rannsókn
annað lögreglumál hjá rann-
sóknarlögreglunni I Keflavík,
sem vinur hins horfna var aðili
að. Upplýsti hann að hinn horfni
hafi farið frá borði eftir að hafa
verið á dansleik og neytt áfengis.
Aðstandendur hins látna óskuðu
sjálfir eftir að auglýsa eftir hin-
um horfna áður en lögreglan
gerði það, en síðan gerði
lögreglan hið sama. Jafnframt lét
hún slæða höfnina, kafa þar og
leita fjörur frá Garðskaga út
undir Hvalsnes. Leit bar engan
árangur og ekkert er vitað um
ferðir hins horfna síðan 19. marz.
John Hill kvað rétt að sand-
dæluskipið Hákur hefði verið
við dælingu í Sandgerðishöfn þá
er slysið varð og dagana á eftir.
Gæti það haft sín áhrif á að
maðurinn hafi ekki fundizt I
höfninni I Sandgerði, þrátt fyrir
mikla leit. ASt.
Sjúkrahótsi RauAa krossins
aru á Akurayri
og i Raykjavík.
RAUDI KROSS fSLANOS
12 BREZKIR LISTMÁLARAR
SÝNA AÐ KJARVALSSTÖÐUM
UIDSKIPTHSKRHin
sem komið hefur út í hartnær 40 ár,
veitir ýtarlegri og greinarbetri upp-
lýsingar um viðskipta- og athafnalíf
landsins, stjórn þess, félög og stofn-
anir, en nokkur önnur íslenzk bók.
Verk eins Bretanna, Kerry Kennedy. Teikning númer 82, frá 1976.
Listaráð Kjarvalsstaða og Arl
Concil frá Bretlandi efna til
sýningar dagana 14. maí til 5. júni
á verkum listamanna frá Bret-
landi undir nafninu Tólf brezkir
listmálarar. Þetta er að öllum
likindum stærsta sýning á brezkri
nútimalist sem hér hefur verið
haldin eða alls eitt hundrað verk i
öllum stærðum og gerðum.
Listamennirnir voru ekki
valdir sem dæmigerðir fyrir
brezka myndlist almennt heldur
miklu frekar aðeins þann hluta
hennar sem byggist á notkun
málningar. Þessi tegund er hluti
af amerískri arfleifð og enskri
náttúrutúlkun með snert af
geómetríu, eins og það er orðað á
fagmáli.
Meðan sýningin stendur verður
fluttur fyrirlestur um brezka
málaralist af einum þeirra sem
verk eiga á sýningunni, Colin
Collins, og Kór Menntaskólans við
Hamrahlið syngur.
-DS.
Fjöldi ungra íslendinga
vestra lærir nú íslenzku
Þjóðræknisfélag íslendinga
hélt nýlega aðalfund sinn og
var hann fjölsóttur. Lögð var
fram skýrsla stjórnar og kom
fram í henni að hagur félagsins
á síðasta ári var góður. Mikill
áhugi fyrir starfsemi félagsins
og tengslum við Island er meðal
Vestur-Islendinga og virðist
hann fara vaxandi meðal unga
fólksins. Þeim sem leggja stund
á islenzkunám sem aukagrein I
Manitobaháskóla fjölgar
stöðugt og ferðir til tslands
verða fleiri með hverju árinu.
Stjórn þjóðræknisfélagsins
skipa þau séra Bragi Friðriks-
son, Hafliði Jónsson, Þórey
Sveinbergsdóttir, Gfsli Guð-
mundsson og séra Ölafur Skúla-
son.
DS.
Það er allra hagur, fyrirtækja jafnt
sem einstaklinga, sem reka viðskipti,
að láta skrá sig og auglýsa í
VIÐSKIPTASKRÁNNI.
Skrifið eða hringið og vér munum
koma yður i samband við næsta
umboðsmann.
UIÐSKIPTnSKRRin
Pósthólf 495, Reykjavík, sími 43728.
I______________________________________