Dagblaðið - 11.05.1977, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1977.
9
Krökkunum í Kársnesskóla
leiðast gráir veggir
— og hafa ráðizt í að skreyta þá myndum
Af hverju í ósköpunum þurfa
allir veggir aö vera svona
leiðinlega einlitir? Af hverju
ekki að mála á þá listaverk?
Eitthvað í þessum dúr hafa
krakkarnir í Kársnesskóla lík-
lega hugsað um daginn. Og þau
gerðu meira en að hugsa, þau
framkvæmdu. Þegar við DB
menn áttum leið um Kópavog-
inn I gær blöstu listaverkin,
sum reyndar hálfkláruð, við
okkur og við máttum til með að
festa þau á filmu.
Á staðnum hittum við hluta
hins unga listafólks. Okkur var
sagt að teiknikennari skólans
hefði átt upphaflegu hugmynd-
ina en hún var síðan nánar út-
færð af nemendunum. Þeir
hafa sjálfir séð um nær alla
vinnuna. DS.
m >
Þeir Davíð Davíðsson og
Arnar Guðmundsson hafa
ásamt fleirum séð um að
skreyta veggina. Þessir ungu
listamenn eiga eflaust mikla
framtíð fyrir sér.
Þarna er verið að leggja síðustu
hönd á giraffann.
Er þetta kannski ekki
myndarlegur fíll. Eða
maðurinn.
Skyldu þessi dýr nokkurs
staðar vera til nema í hugar-
heimi barna?
DB-myndir Hörður Vilhjálms-
son.
Heimildarmynd um Eskifjörðfrumsýnd:
Tveir bæjarstjómar-
menn þekktust
þeir voru ekki eins rauðir og flökin í f rystihúsinu
ogallt annað
„Ég varð fyrir sárum
vonbrigðum að sjá nýju
heimildarmyndirnar því allt
var blóðrautt, meira að segja
flökin í Hraðfrystihúsinu. Tvo
menn þekkti ég af öllum þeim
fjölda sem ég sá í myndinni,
Kristmann Jónsson bæjar-
fulltrúa og Jóhann Klausen
bæjarstjóra, sem kvikmyndaðir
voru á bæjarstjórnarfundi og
voru ekki rauðir,“ sagði
Regína Thorarensen frétta-
ritari DB á Eskifirði í gær.
Myndin var sýnd á kvöldvöku
á vegum bæjarstjórnar og
Byggðasafnsnefndar Eski-
fjarðar, sem fór fram í Val-
höll. í upphafi myndarinnar
voru sýndar ljósmyndir frá
1923 teknar af Guðmundi
Jóhannssyni kaupmanni og
Sveini Guðnasyni myndasmið
sem Regína taldi góðar miðað
við aðstæður þá. Síðan tók við
tvegja ára gömul heimildar-
mynd í lit, aðallega rauðum
að sögn hennar.
Kvöldvakan var haldin í
tilefni af 100 ára afmæli blaða-
útgáfu Jóns Ölafssonar á staðn-
um. Einar Bragi talaði fyrir
mi»ni hans og kom þar m.a.
fram að Jón var ömyrkur í máli
í garð Danaveldis sem réði hér
flestum málum og ekki alltaf til
hagsbóta fyrir íslenzku þjóðina,
nema síður væri.
Fyrir sín sönnu skrif var .Jón
tvisvar dæmdur, annars vegar í
háar fjársektir og svo í fangelsi
í Danmörku, sem hann slapp þó
við með að fara til Kanada.
Af þessu tilefni sagði Regína:
„Ég vil spyrja, er það ekki enn
þann dag í dag í okkar litla þjóð.
félagi að enginn má segja
sannleikann í þessu jarðneska
lífi okkar? Það þarf því engan
að undra að Danir dæmu Jón í
háar fjársektir og til fangelsis-
vistar fyrir að segja
sannleikann."
Auk framangreindra atriða á
vökunni hélt bæjarstjóri tölu
og Eskjukórinn söng við mjög
góðar undirtektir. -Regína/G.S.
Harður árekstur við Búrfellsá
Talsvert harður árekstur
varð er tveir bílar rákust á á
blindhæð rétt norðan við brúna
á Búrfellsá, sem er skammt frá
Fornahvammi, um kl. 8.30 á
föstudagskvöld.
Annar bíllinn, sem var af
Keflavikurflugvelli, virðist
hafa hemlað á blindhæðinni og
runnið yfir á rangan vegar-
helming. Hinn bíllinn, sem var
með G-númeri og var á norður-
leið, lenti á Keflavíkurbílnum,
samkvæmt upplýsingum
fulltrúa sýslumanns í Borgar-
nesi.
Tvennt var í Keflavíkur-
bíln um en maður og kona i
G-bílnum. Slasaðist fólkið all-
nokkuð og var flutt á sjúkra-
húsið á Akranesi þar sem gert
var að meiðslum þess.
-A.Bj.
ÞAÐ ER RÉTT!
að allir vilja helzt fá Formica í eldhús-
innréttinguna, á baðið, á sólbekki og
víðar, en halda gjarnan að það sé svo
dýrt. Þetta er hins vegar ekki rétt.
Formica er lítið dýrara en annað
harðplast, en það er auðvitað það lang-
bezta.
Spyrjið smiðinn, hann þekkir Formica
vel.
Mikið úrval lita, einnig marmara- og
viðarmynstur.
G. Þorsteinsson og Johnson h/f.
Ármúla 1 — sími 85533.