Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.05.1977, Qupperneq 11

Dagblaðið - 11.05.1977, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1977. Er aldrei að marka tölur? Snjólaug Bragadóttir athyglisvert. Orðabók háskól- ans er nakkuð sem maður hefur heyrt talað um alla ævi, en skyldi maður lifa það að fletta upp í henni? Annars mun þetta vera eins konar símaorðabók nú þegar, það er hægt að hringja og spyrjast fyrir um orð hjá þessu ágæta fólki í Árna- garði. Nú, næst fengum við að sjá það hvítt á svörtu með töl- um, að lífskjörin eru helmingi lakari hjá okkur en Dönum. Eftir samanburði á vöruverði að dæma, getum við einungis borðað ódýrari mat en þeir, ef við látum okkur nægja þorsk og kartöflur og mjólk með, og þá líklega lambakjöt á sunnudög- um. Hvað ættum við svo sem að vera að háma i okkur nautakjöt og kjúklinga, þegar greinilegt er að við höfum ekki efni á því? En þegar maður er búinn að meðtaka þessa vesöld, koma sérfræðingarnir eins og venju- lega og hagræða tölunum og niðurstaðan er sú, að auðvitað er ekkert að marka þær. Við hljótum að hafa efni á öllum þessum góða mat, fyrst við erum alltaf að borða hann! t fréttunum á laugardagskvöldið fékkst svo önnur staðfesting á þessu. Niðurstöður einhverrar könnunar reyndust sem sagt þær, að við hérna höfum að minnsta kosti allt það af verra taginu, sem þjáir mestu vel- ferðarþjóðfélög heimsins. Lík- lega hefur ekkert verið að marka tölurnar frá kvöldinu áður. Bíómyndin Gestur úr geimnum á föstudagskvöldið var bráðskemmtileg og svo spennandi að ég mátti ekki einu sinni vera að því að fá mér meira kaffi, ef ég skyldi missa af einhverju. Boðskapur hennar er alltaf í fullu gildi: Haldið þið friðinn, elskurnar mínar, annars fer illa fyrir ykkur! Ekki hefur farið framhjá neinum, að íslandsmótið í knattspyrnu hófst um helgina og verður meira um dýrðir þar í sumar, en nokkru sinni áður. Búast má við að íþróttaþætt- irnir snúist um það á næstunni. Þó ég fylgist með úrslitum, finnst mér tímanum betur varið til ails annars en að horfa á knattspyrnu i sjónvarpi og tek mér hér með frí frá íþrótt- unum. Um dansþáttinn fjölyrði ég ekki, finnst gaman að horfa á fólk dansa af innlifun og til- finningu, en hlægilegt þegar það dansar beinstíft eftir ein- hverjum formúlum. Hvoru- tveggja var þarna að sjá. Bíómyndin hefur vafalaust komið út tárunum á mörgum rómantískum sálum, en ég dáist enn að Simone Signoret og leik hennar, eins og helgina áður. Á sunnudaginn sá ég aðeins Cleo Laine og þótti á við heila kvöld- dagskrá. Þó ég sé ekki mikil jassmanneskja, get ég fengið gæsahúð af hrifningu á hlutum eins og Old man river í meðferð hennar. Allsæmileg vika. Hún fer nú að verða svolítið leiðinleg þessi yfirlýsing mín um að ég hafi ekki horft á sjón- varpið á mánudaginn. Þegar ég fer að velta þessu fyrir mér, er hreint eins og enginn mánudag- ur hafi verið í undanförnum vikum. Að minnsta kosti er mér ómögulegt að minnast nokkurs, sem ég hef gert á mánudögum undanfarið. Jæja, en vonum að það lagist. Hins vegar ætlaði ég að horfa á þriðjudaginn og kom mér þægilega fyrir, sennilega of þægilega, því minnstu munaði að ég sofnaði vært út frá umræðuþættinum um fram- haldsskólana. Þurrari og hátíð- legri umræðuþátt hef ég aldrei séð eða heyrt, enda umræðu- efnið þrautfúlt. Colditz- þátturinn hélt athygli minni til enda, með naumindum þó. Það nægir að horfa á þá þætti einu sinni í mánuði. Danska fræðslu- myndin um orsakir kransæða- stíflu var hins vegar alveg prýðilega góð og fræðandi. Þarna voru hlutirnir útskýrðir á svo einfaldan hátt að hvert barn hefur áreiðanlega skilið vel. Ég er ekki viss um að allir hafi vitað fyrir, hvar krans- æðarnar eru nákvæmlega, en gleyma því ekki héðan af. Það þarf fleiri svona myndir. Miðvikudagurinn var nokkuð góður. Fræðslumyndaflokkur- inn Gluggar er aldeilis prýði- legur, en mér finnst Rokkveita ríkisinp hafa sett ofan. Fyrstu þættirhir voru skemmtilegir, en nú hefur dofnað mjög yfir. Væri ekki hugsanlegt að setja þessum hávaðahljómsveitum það litla skilyrði, að syngja að minnsta kosti einn íslenzkan texta? Tálmynd fyrir tieyring er bara spennandi, en mikið gengur alltaf á innra með fólki í þáttum frá þessum tíma. Kannski ekki undarlegt, þegar allt snerist um að hafa yfir- borðið sem fágaðast, til að komast ekki milli tannanna á náunganum. Þátturinn Vaka mun hafa verið sá síðasti að sinni og veitir honum sjálfsagt ekki af hvíldinni, ef hann á að vera hress i haust, því satt að segja var hann orðinn svolítið þreytulegur upp á siðkastið. Stjórnmálin frá stríðslokum eru alltaf jafn fróðleg og ég hlakka mikið til að sjá þann þátt í næstu viku, þegar fjallað verður um Biafra-strfðið. Skyldum við hafa fengið að vita allt í fréttunum á sínum tíma? Þátturinn um auðnir og óbyggðir lofar góðu og kast- ljósið á föstudaginn var einkar ÍRitað Þorgeir Þorgoirsson: UML / Nokkrar smágreinar um dægurmal 1974, 1975, 1976, 1977. I6unn 1977, 128 bls. Þorgeir Þorgeirsson hefur oftlega látið að sér kveða í blöðunum með greinum um ýmisleg viðfangsefni af sviði menningarmála, leiklist og bók- menntir, kvikmyndagerð og sjónvarp, og allavega tilfallandi deilu- og ádeiluefni. Um tíma hélt hann úti prívat-tímariti sínu um sjónvarpið, Sjónvarps- tíðindum, árið 1970. Sjálfsagt ætti Þorgeir úr mörgu efni að moða í ritgerðasafn upp úr blaðaskrifum sínum, og það þótt stærra væri en þessi bók. Veturinn 1974-5 skrifaði Þor- geir að staðaldri, vikulega eða þar um bil, greinar í sunnu- dagsblað Þjóðviljans, og eru þær aðalefni þessarar bókar, dagsettar frá því í október og fram í mars þegar botn datt úr þessum skrifum. Greinum þess- um fylgir hér „opið ljóð og eftirmáli" og nefnist Um þögn- ina, og tvær greinar sem síðan hafa birst. Af einhverjum ástæðum finn ég að eftir lestur bókarinn- ar er mér minnisstæðust eina nýja greinin, og raunar sú lengsta í bókinni, fyrrnefndur eftirmáli um þögnina. Eins og fleira í bókinni er hún nokkuð svo undir rós rituð, og verður kannski eftirtektarverðari en ella einmitt fyrir það. En á meðal annars segir Þorgeir þar frá bernskuminningu úr sveit- inni í gamla daga, frá sumarvist á góðviljuðu framsóknarheim- ili. í stystu máli sagt lenti strákur í þeim háska fyrsta kvöldið sitt á staðnum að undir rds steypast ofan í illa refta safn- gryfju og var hætt kominn þar í forinni. Eftir þetta brá svo við að hann sat sig ekki úr færi að segja gestum á bænum frá ævintýri sínu sem vitanlega varð bæði heimilisfólki og vin- um þess til leiðinda. Ekki var samt þakið styrkt á þrónni. Líður nú og bíður fram á haust að bóndi kemur að máli við strák og biður hann að láta nú af þessu sifellda umli um rot- þróna á bænum, sem ekki hefur neinu góðu komið til leiðar. Og það gerir Þorgeir: „Ég hætti að umla og fer að hlusta á þögnina kringum okkur,“ segir hann í sögulokin. En af hverju er nú þessi saga sögð á þessum stað? Kannski ekki sé vert að ætla henni „víð- tækari merkingu" en efni standa til. En líka má svo sem vera að lesandanum sé ætlað að ráða í einhvers konar likingu með greinaskrifum Þorgeirs og ævintýri hans í sveitinni fyrr- um. Oft munu greinar hans, bæði þessar þjóðviljagreinar og aðrar, hafa vakið gremju, reiði og jafnvel hneykslun, allténd þeirra sem þar þóttust verða fyrir skeytum hverju sinni. Áðrir hafa vísast lesið greinarnar með ánægju og meinfýsiblandinni eftirvænt- ingu að sjá hvar sendingar kæmu nú niður— rétt eins og sveitungar skemmtu sér forðum við sögur stráksins á Grund af ævintýri sínu í kúka- gröfinni. En ekki var gryfjan reft. Og lítt mun þess hafa gætt að ádeilur og umvandanir Þor- geirs í greinaskrifum leiddu lil þarflegra umbóta á einu eða neinu. Þá er kannski hollara og hagkvæmara að hætta umli og fara bara að hlusta á þögnina. Vera má að lesanda þessarar bókar sé ætlað að ráða í ein- hverja slíka eða þvíumlíka skýringu á efni hennar af þess- ari kostulegu litlu sögu. Hann um það. En í eftirmálanum gefur Þorgeir líka skýringu á því hvers vegna hann ræðst í að gefa greinarnar út: „Þegar ég les greinarnar yfir sé ég að þær hanga saman á einhverjum þræði. Þær eru ein- mitt skrifaðar á tímum voldugr- ar hægrisveiflu. Hægrisveifla er sérlega hættuleg þar sem Bók menntir pólitískir flokkar eru orðnir að lygi og ágreiningur þeirra lýð- skrum og fals. Þá vill allt kerfið sveiflast til hægri af því leyni- þræðir bak við tjöldin toga líka í hina sem ættu ef skynsemin réði að sveiflast til vinstri. En öll heil dorían er í einu og sama brókarhafti lyginnar. Og greinarnar í heild eru viðbragð við þessu. Það mætti að visu samræma þær ögn betur og kannski geri ég það einhvern tíma. Jafnvel kemur til álita að gefa þær út í von um að ein- hverstaðar úti f þögninni séu kjánar á borð við mig sjálfan. Kannski gæti lestur þessara greina hjálpað þeim fyrst upp- rifjun þeirra hefur hjálpað mér. Hver veit? Æ, það veit ég svei mér ekki. Það finnst mér einhvern veg- inn ólíklegt að greinar þessar verði eða hafi orðið til að sveifla einum eða neinum les- anda hvort heldur er til hægri eða vinstri. Ef það þá hefur verið ætlunin. Þær eru margar hverjar víslega samdar með venjulegum hagleik höfundar- ins á mál og hugmyndir, hreyfa oftar en ekki viðfangsefnum og sjónarmiðum sem meira varða en tilf allandi dægurmál og deiluefni sem orðið hafa tilefni þeirra. Við lestur bókarinnar rifjast upp fyrir lesandanum ýmisleg umtalsefni frá því í hittifyrra, um tungu og bók- menntir og fjölmiðlun, um skoðanafrelsi og frelsi orðsins, og þó fleira, og sjáuni bara til. þau eru enn í góðu gildi. Aðrar eru að vísu býsna þreytulegar. Það á við skrýtna grein um bindindispostula, skáldið Baudelaire og Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli, sem með einhverjum hætti, virðist hafa orðið til að Þorgeir hætti þessum greinum í Þjóð- viljanum. Er um það allmikið mál og býsna torráðið í marg- nefndum eftirmála. Tvær greinar eru til viðbótar í bókinni frá þvi í vetur og vor sem leið og fjalla báðar um leikhúsmál, sýningu Leik- félagsins í fyrra á Villiöndinni og fyrirhugað borgarleikhús og um Alþýðuleikhúsið á Akur- eyri. Ekki veit ég svo sem hvað er vinstri og hægri í þessum málum. En vanmat held ég sé á gamla Ibsen ef ekki má líta á sannleikspostulann Gregers Werle sem sjúkan mann, sýktan af uppeldi, samfélagi, öllu umhverfi sinu, og leggja leikinn upp samkvæmt þvi. Og með allri respekt fyrir Alþýðu- leikhúsinu held ég að alveg sé það um of að kalla starf þess hingað til „gagnmerkustu nýj- ung ef ekki hreina endur- fæðingu leiklistar í landinu“. Sem breytir ekki því að auðvitað á Alþýðuleikhúsið að njóta opinberra styrkja til jafns við aðra leikhópa, og þó meiri væru, svo vel sem starf þess hefur tekist, fá að starfa í friði fyrir yfirgangi pólitikusa, og af- brýði leikhúsfólks. Eins og Þor- geir segir. \

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.