Dagblaðið - 11.05.1977, Side 24
Raf kapalsbilanirnar við Vestmannaeyjar:
Skaðabótakröfur verða
gerðar á hendur Land-
helgisgæzlunni
— Síðari tvær bilanirnar
einnigraktartilTýs
Að ósk bæjarráðs Vest-
mannaeyja vinnur stjórn Raf-
veitu Vestmannaeyja nú að því
að taka saman tjón og auka-
kostnað vegna rafmagnsbilana
þar í kjölfar slyssins þegar
varðskipið Týr skaddaði kapal-
inn milli lands og Eyja í
febrúar sl. Rafmagnsveitur
ríkisins vinna jafnframt að
slíkri samantekt.
Tilgangurinn með þessu er
að fara fram á skaðabætur
vegna þessa og verður Land-
helgisgæzlan krafin um þær.
Hún tryggir sig svo aftur fyrir
slysum á borð við þetta svo
bótagreiðslur koma væntanlega
í hlut tryggingafélagsins.
Síðan gert var við fyrstu
bilunina hefur tvisvar bilað aft-
ur með þeim afleiðingum að
keyra hefur þurft dísilvélar
með miklum kostnaði auk þess
sem ekki hefur verið næg
raforka í bænum.
Páll Zophoníusson, bæjar-
stjóri, sagði í viðtali við DB í
gær, að nú væri komið í ljós,
eða mjög sterkar líkur bentu
nú til, að síðari bilanirnar
tvær mætti rekja til þess er Týr
skaddaði kapalinn í upphafi.
Kann því svo að fara að
krafizt verði bóta fyrir allar
bilanirnar þrjár og er þá um
verulegar fjárhæðir að ræða.
Samantekt lýkur innan
skamms en að svo komnu vildi
Páll ekki gizka á neinar
upphæðir.
G.S.
Tvö tonn af
brennivíni
fyrir
lokadaginn
Tvö tonn af áfengi voru meðal þess, sem lestað var í Fokker-
Friendship flugvél FÍ á Reykjavikurflugvelli í gær. Þessi farmur fór
ásamt öðrum vörum til Vestmannaeyja.
Herjðlfur er nú i lamasessi og tii stórviðgerða eins og skýrt hefur
verið frá í fréttum DB. Sú er aðalástæðan fyrir gífurlega vaxandi
flugfragt milli lands og Eyja þessa dagana, enda þótt hún fari
stórvaxandi um heim allan, hvað sem Herjólfi liður.
Áfengismagn þetta er trúlega eitthvað í meira lagi, því iokadagur-
inn er i dag, og þá er vandi þeirra sem við vertiðina hafa starfað að
draga tappa úr flösku. Líklega verður það víða gert, enda þótt ekki sé
beint hátiðleg stemmning yfir slakri vertíð að þessu sinni. —
Fjailvegir á Austurlandi eru nú i þann mund að opnast, en á þeim iandshiuta er hvað mest um vegi
sem liggja yfir f jallgarða og eru því snjóþungir.
Á þessari mynd sést jarðýta vera að ryðja sér braut í Oddsskarði. DB-mynd Skúli Hjaltason.
Þó flestir séu líklega á þeirri
skoðun, að vorið sé komið hér'
sunnanlands, er þó veðurfar
ekki alls staðar annars staðar á
landinu þannig að það gefi
tilefni til slíkra hugleiðinga.
Austanlands er víða allt á kafi í
snjó og fjallvegir víða ófærir.
Þar hafa snjóruðningsmenn
nóg að gera.
Við höfðum sambnd við Egil
Jónsson vegaverkstjóra á
Reyðarfirði og spurðum hann
um færðina. Hann sagði að
flestir fjallvegir austanlands
væru i þann veginn að opnast.
Oddsskarð, Fjarðarheiði.
Breiðadalsheiði og Jökuldals-
heiði hefðu verið verstar
viðfangs. I Oddsskarði væru
snjógöngin til dæmis 9 metra
djúp þar sem þau væru dýpst
og allt ofan í 1-2 metra þar sem
þau væru grynnst. Þau væru
alls eitthvað á milli 10 og 15
kílómetra löng og lægi því i
augum uppi að það hefði ekki
veri neinn barnaleikur að
vinna þau.
Egill sagðiaðþeir þarna fyrir
austan væru ekkert farnir að
vonast eftir vorinu. Enn væri
töluvert frost á nóttinni, sér-
staklega upp til heiða. Komi
snögg þíða má búast við mikl-
um vatnsaga á þessu svæði, svo
mikil er mjöllin. -DS.
ALLT AÐ NÍU METRA DJÚP
SNJÓGÖNG í ODDSSKARÐI
fijálst, óháðdagblað
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1977.
200 manns
til sjötugs
áEsju
Um 200 manns þrömmuðu
upp á Esju um síðustu helgi,
en þá var fyrsta gönguferð
Ferðafélags Islands af 10 af-
mælisgöngum á fjallið í
sumar í tilefni af 50 ára af-
mæli félagsins. Yngstu
göngumennirnir voru 8 ára
en þeir elztu um sjötugt. Bar
mikið á ungu fólki í göng-
unni, bæði í fylgd foreldra
og á eigin vegum.
Ráðgert hafði verið að
leggja upp frá Mógilsá en á
síðustu stundu var göngu-
leið breytt vegna mikilla
snjóalaga í klettabeltinu og
gengið upp fyrir ofan Esju-
berg. Reyndist það svo góð
gönguleið að ákveðið er að
fara allar afmælisgöngurnar
10 þessa sömu leið. Allir
þátttakendur eru skráðir i
upphafi göngu og fá sérstök
skjöl að göngu lokinni. Að 10
göngum loknum verða þrjú
nöfn dregin úr og hver
hinna heppnu fær frímiða í
eina helgarferð F.I.
Vonast forráðamenn Eí.
eftir mikilli þátttöku í næstu
afmælisgöngum og telur að
þannig megi bezt minnast
þeirra manna, sem lagt hafa
félaginu lið á sl. 50 árum og
haldið á lofti merki þess og
hugsjónum.
-ASt.
Stofnun
samtaka
fyrrverandi
sjúklinga í
undirbúningi
Víða erlendis hafa verið
stofnuð samtök þeirra sem
gengizt hafa undir erfiðar
læknisaðgerðir eða feng-
ið sjúkdómsgreininguna
krabbamein. Mörgum þeirra
hefur reynzt erfitt að hefja
störf á nýjan leik eða að
sætta sig við sjúkdóms-
greininguna.
Nú hefur verið ákveðið að
koma slíkum félagsskap á
fót hér á landi til þess að
efla samstöðu og samhjálp.
Fjöldi þeirra sem lent
hafa í erfiðum sjúkdómum
hefur komizt yfir þá bæði
andlega og líkamlega. Er
ætlunin að þeir miðli öðrum
af reynslu sinni og skapa
með því aukna tiltrú manna
á lækningu og breyta af-
stöðu fólks þannig að rætt
verði opinskátt um slíka
reynslu.
Talið er að með sameigin-
legu átaki þeirra sem bezt
þekkja til, sé hægt að ná
fram ýmsum baráttumálum,
sem stuðla að bættri aðstöðu
til lækninga, eftirmeðferðar
eg félagslegra vandamála er
varði tryggingar og útvegun
hjálpargagna.
-A. Bj