Dagblaðið - 24.05.1977, Side 12

Dagblaðið - 24.05.1977, Side 12
12 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. MAl 1977. Það var hart barizt í Eyjum í gærkvöld. Eyjamenn sækja að Valsmönnum. Varnarniennirnir sterku, Magnús Bergs, Dýri Guðmundsson og Hörður Hilmarsson Val eiga i baráttu við Snorra Rútsson og Svein Sveinsson IBV. DB-mynd Ragnar Sigurjónsson. Siggi Dags aftur í marki Vals — og varði vítaspyrnu — íslandsmeistarar Vals sigruðu ÍBV1-0 í 1. deild íslandsmótsins ígærkvöld íslandsmeistarar Vals eru nú komnir á skrið í 1. deild íslands- mótsins i knattspyrnu. Meistarar Vals ferðuðust til Eyja í gærkvöld og mættu nýliðum ÍBV. Valur sigraði með eina markinu í lcikn- um skorað af Guðmundi Þor- björnssyni en leikurinn tiiheyrði landsiiðsmanninum Sigurði Dags- syni. Sigurður sneri aftur í markið hjá Val og honum geta Valsmenn þakkað bæði stigin — Sigurður varði vítaspyrnu frá Ólafi Sigurvinssyni og var öryggið uppmálað í marki Vals — já, Valur er kominn á skrið. Leikurinn í Eyjum í gærkvöld var ákaflega opinn og skemmti- legur fjölmörgum áhorfendum. Valsmenn komu með lið stuðn- ingsmanna, sem settu mjög skemmtilegan svip á leikinn — og ýttu undir áhangendur IBV, sem hvöttu lið sitt mjög vel — sannar- lega stemmning í Eyjum. Valsmenn áttu fyrsta tækifæri leiksins — Ingi Björn átti gott Knattspyrnuféiög á Austur- landi eru nú þegar farin að huga að sumrinu — liðin hafa æft mjög vel undanfarið. Þróttur frá Nes- kaupstað hefur þegar hafið keppni i 2. deild en nú um hvita- sunnuna fer fram Austfjarðamót- ið í knattsp.vrnu — og verður það leikið á tveimur dögum. Dregið verður í riðla og leikið 2xS5 mínútur. (Ml liðin af Austurlandi taka þátt í mótinu. ÖII félögin hafa þegar ráðið þjálfara fvrir keppnistímabilið. Magnús Jónatansson verður áfram með Þrótt, Neskaupstað, skot úr vítateignum, rétt yfir en Valur lék gegn austanstrekkings- kalda í fyrri hálfleik. Eyjamenn sköpuðu sér einnig tækifæri með þá Karl Sveinsson og Tómas Páls- son sem skæðustu sóknarmenn. Á 22. mínútu skall hurð nærri hælum í vítateig Valsmanna þegar Atli Eðvaldsson brá Snorra Rútssyni inni í vítateig Vals — við markteig. 1 stað þess að dæma víti var óbein aukaspyrna dæmd en Valsmenn náðu að bægja hætt- unni frá. Staðan í leikhléi var 0-0 — og þegar IBV lék gegn vindinum áttu þeir sízt minna í leiknum og Eyjamenn sköpuðu sér góð mark- tækifæri. En þrátt fyrir það tóku Valsmenn forustu — á 30. mínútu. Valsmenn fengu dæmda hornspyrnu — knötturinn gefinn laglega fyrir og þar var íyrir Guð- mundur Þorbjörnsson er skallaði laglega í netið. Överjandi fyrir annars ágætan markvörð Eyja- manna — Pál Pálmason, 0-1. sem ávann sér rétt til þátttöku í 2. deild. Víkingurinn Adolf Guðmundsson mun þjálfa Huginn, Seyðisfirði. Á Vopna- firði verður Sigurður Þorsteins- son, Stjörnunni, með Einherja. Handknattleiksmaðurinn kunni, Hirgir Finnbogason, þjáifar Ilrafnkel Freysgoða á Breiðdals- vík. Leifur Helgason úr FH mun þjálfa Austra, Eskifirði. Á Fáskrúðsfirði þjálfar Einar Árna- son KR-ingur Leikni og á Horna- firði þjálfar Albcrt Eymundsson Sindra. Albert þjálfaði áður FH — og bauðst honum að þjálfa FH i sumar. SG. Við markið drógu Valsmenn sig aftar — og sókn IBV þyngdist að sama skapi. Á 33. mínútu fór knötturinn greinilega inn fyrir marklínu eftir skemmtilega sóknarlotu IBV. Karl Sveinsson sendi knöttinn laglega fyrir — Tómas kom á fullri ferð og skaut viðstöðulaust efst i markhornið. Sigurður náði knettinum — greinilega fyrir innan marklínu en dómari leiksins, Arnþór Óskarsson veifaði áfram. Á 35. minútu var Karli Sveinssyni brugðið i vítateig af Inga Birni — Ólafur Sigurvinsson tók víta- spyrnuna — en Sigurður Dagsson varði sérlega vel. Valsvörnin var sterk fyrir með Dýra Guðmundsson, sterkan mið- Sigurður Dagsson lék sinn 250. meistaraflokksleik í gærkvöld — og fékk blómvönd. DB-mynd RS. vörð. I lokin áttu Eyjamenn enn vítaspyrnu — þegar einn varnar- manna Vals handlék knöttinn greinilega innan vítateigs — en enn veifaði Arnþór áfram. Valur slapp með skrekkinn — tvö dýr- mæt stig úr Eyjum. Það var sárt fyrir Eyjamenn að missa stig úr leiknum — sann- gjörn úrslit hefðu verið jafntefli. Eyjamenn voru mjög frískir — ógnandi í sókninni með Tómas og Karl. Vörnin var sterk og að baki henni stóð Páll Pálmason sig mjög vel í markinu. Islandsmeistarar Vals eru greinilega komnir á skrið — og munar ekki litlu fyrir Val að hafa endurheimt Sigurð Dagsson í markið. Ingi Björn Albertsson var mjög ógnandi — en liðið var sterkt sem heild og vörnin traust. Leikinn dæmdi Arnþór Óskars- son — heldur fannst mér hann hliðhollur Val þó auðvitað verði hann alls ekki sakaður um hlut- drægni. Atletico Madrid tapaði óvænt fyrir Valencia í Madrid í 1. deiid spánsku knattspyrnunnar. Þá var ieikin síðasta umferðin á Spáni — og Atletico Madrid tapaði fyrir Valencia. En ósigur kom ekki að sök — Madrid-liðið hafði þegar tryggt sér sigur í deildinni. Úrslitin á Spáni um helgina urðu: Malaga-Real Madrid 2-1 Salamanca-Racing 0-1 Atletico Bilbao-Las Palmas 2-1 Barcelona-Reai Betis 3-1 Hcrcules-Elche 1-1 Burgos-Real Sociedad 2-0 Staðan íl.deild Staðan i 1. deild eftir 1-0 sigur íslandsmeistara Vals í Eyjum: Akranes 3 3 0 0 5-0 6 Fram 3 2 0 1 6-3 4 ÍBK 3 2 0 1 6-4 4 Valur 4 2 0 2 6-7 4 Vikingur 3 0 3 0 2-2 3 Breiðablik 3 1114-5 3 FH 3 1113-43 ÍBV 4 112 2-3 3 Þór 3 0 1 2 4-7 1 KR 3 0 1 2 0-3 1 Annað kvöid fer fram einn leikur í 1. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Þá mætast Víkingur og Fram — væntanlega á gras- vellinum í Laugardal. Real Zaragoza-Celta 1-0 Atletico Madrid-Valencia 2-3 Sevilla-Espanol 0-0 Lokastaða efstu liða varð því Atletico Madrid 34 46 Barcelona 34 45 Atletico Bilbao 34 38 Las Palmas 34 36 Real Betis 34 36 Espanol 34 36 Í fyrsta sinn frá þvi Evrópu- keppni var hieypt af stokkunum á sjötta áratugnum hefur Real Madrid ekki áunnið sér rétt til að leika i Evrópukeppni. Kunnir þjálfarar á Austurlandi RS Tap Atletico M. en titillinn í höfn

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.