Dagblaðið - 24.05.1977, Síða 13

Dagblaðið - 24.05.1977, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. MAl 1977. 1«. I Iþróttir Iþróttir Iþróttb* Iþróttir Ósigur gegn Belgíu ísland í þriðja sæti — Belgar sigruðu íslendinga 2-0 á Evrópumóti unglinga í knattspyrnu í gærkvöld — Við réðum einfaldlega ekki við Belgana. Eins og aðstæðum háttar nú er of mikið að búast við tveimur stórleikjum i röð frá íslenzku unglingaiandsliði. En strákarnir hörðust vel — en náðu aldrei upp sama leik og gegn Englandi. sagði Lárus Loftsson, þjálfari unglingalandsliðsins, eftir 0-2 ósigur Islands gegn Belgíu. Með sigri sínum gegn íslandi komst Belgía í undan- úrslit — þar sem Englendingar gerðu jafntefli við Grikki, 1-1. — Það var mikill hiti hér í Belgíu í gær og Belgar náðu þegar frumkvæ'ði í leiknum, hélt Lárus áfram. Eftir aðeins 9. mínútna leik náðu Belgar forustu — tekin var aukaspyrna. Belgar sendu knöttinn inn í vítateig íslands. Vörnin var ekki nógu vel á verði og Belgar náðu að skalla knöttinn í netið, 1-0. Belgar höfðu undirtökin í leiknum en ísland náði hættuleg- um sóknarlotum á milli. Þannig lék Einar Ólafsson laglega á varnarmenn Belga í lok síðari hálfleiks og komst í gott færi — en varnarmenn Belga náðu að hreinsa á síðustu stundu. Staðan i leikhléi var 1-0 — og á 32. mínútu síðari hálfleiks juku Belgar forskot sitt. Enn var send- ing fyrir — markvörður íslands átti misheppnað úthlaup og Belgar náðu að senda knöttinn i netið, 2-0. Þratt fyrir að Belgar hefðu náð öruggri forustu héldu islenzku piltarnir baráttu sinni áfram. — og á síðustu mínútu leiksins lék Arsæll Kristjánsson laglega á tvo varnarmenn Belga — stóð einn fyrir opnu marki en skot hans geigaði — hitti knöttinn illa. Belgía sigraði því 2-0 og þrátt fyrir ósigurgegn Englandi 0-1 eru Belgar sigurvegarar í riðlinum. — En íslenzka liðið hefur vakið mikla athygli hér í Belgíu — og talsvert skrifað um liðið í belgísku blöðin. Þar segja blöðin að tsland leiki mjög taktískan leik og að mikil hugsun sé að baki leik íslenzku piltanna. Hins vegar vanti íslenzka liðið tekník og hraða, hélt Lárus áfram. Við höfum ávallt spilað við stórþjóð- irnar hér á jafnréttisgrundvelli — það er leikið opinn fótbolta, sóknarknattspyrnu. Við vorum ákveðnir í því áður en við héldum utan, hvað svo sem gerðist, og það hefur sannazt hér að Island hefur mjög frambærilegu liði á að skipa. íslenzka liðið hér hefur vakið mikla athygli — og belgisku blöðin eru mjög hrifin af Guðmundi Kjartanssyni sér i lagi — og þá einnig Rafni Rafnssyni, og Ulfari Hróarssyni, sagði Lárus að lokum. tslenzka liðið var þannig skipað i gærkvöld: Rúnar Sverrisson, Þrótti, Ottó Hreinsson, Þrótti, Úlfar Hróarsson, Val, Sverrir Einarsson, Þrótti, Guðmundur Kjartansson, Val, Einar Ólafsson, ÍBK, Sigurður Björgvinsson, tBK, Rafn Rafnsson, Fram. Magnús Jónsson KR, Jón Einarsson Val og Jón Orri Guðmundsson, Breiða- blik. Börkur Ingvarsson, KR, kom inná fyrir Ottó — og Ársæll Kristjánsson.Þrótti.kom inn fyrir Jón Orra Guðmundsson Breiða- ibliki. — Úrslitin í gærkvöld voru sanngjörn. Strákarnir börðust vel en voru greinilega þreyttir, og við getum verið ánægðir með útkom- una, sagði Helgi Daníelsson farar- stjóri islenzka unglingalands- liðsins. Lokastaðan í a-riðli varð: Belgia 3 2 0 1 9-2 4 England 3 1 2 0 2-1 4 ísland 3 0 2 1 1-3 2 Grikkland 3 0 2 1 3-9 2 Englendingar sóttu látlaust gegn Grikkjum — en alveg gegn gangi leiksins skoruðu Grikkir í fyrri hálfletk. Englendingar jöfn- uðu í síðari hálfleik — og hefðu átt að vinna öruggan sigur. Úrslit í b-riðli: V-Þýzkaland-trland 1-1 Frakkland-JOgósiavía 1-0 Lokastaðan varð — V- Þýzkaland 4 stig, Frakkland og írland 3 stig og Júgóslavía 2 stig. Úrslit í c-riðli: N-Írland-Austurríki 1-0 Sovétríkin-Malta 6-0 Lokastaðan í c-riðli varð — Sovétríkin 6 stig, N-írland 4, Austurríki og Malta 1 stig. d-riðill: Búlgaria-Holland - 1-0 Svíþjóð-Ítalía 1-0 Búlgaría vann riðilinn með 4 stig — jafnmörg og Svíþjóð en Búlgarar höfðu hagstæðari mark- tölu vegna störsigurs síns gegn Svíum. Ítalía hlaut 3 stig — Hol- land 1 stig. í undanúrslitum mæta Sovét- rikin Belgum — og V-Þýzkaland mætir Búigörum. McLintock og Giles kvöddu 1. deild — f gærkvöld. Tekur McLintock við Leicester? Johnny Giles til írlands Tveir kunnir kappar voru i sviðsljósinu í gærkvöld á Eng- landi. Þeir voru Johnny Giles, WBA og Frank McLintock QPR. Báðir léku þeir síðustu leiki sína í 1. deild — Giles gegn Aston Villa, McLintock gegn Birming- ham. Aston Villa vann stórsigur á WBA 4-0 — QPR og Birmingham skildu jöfn, 2-2. Frank McLintock lauk glæsileg- um ferli 37 ára gamall. Hann hóf feril sinn hjá Leicester — en þegar honum tókst ekki að vinna til æðstu verðlauna þar lá leið hans til Arsenal. Þar var McLin- tock í hjarta varnarinnar — og Arsenal vann bæði deild og bikar 1971. En Bertie Mee ákvað að byggja upp nýtt Arsenal — og seldi McLintock til QPR, sem þá var í 2. deild. Þar gerði Bertie Mee sín stærstu mistök hjá Arsenal — McLintock sannaði áþreiiaiuega að hann átti enn mikið eftir. Hann leiddi QPR til sigurs í 2. deild — og í fyrra hafnaði QPR í öðru sæti á eftir Liverpool í 1. deild. McLintock átti við meiðsli að stríða í vetur — og QPR barðist hatrammri baráttu við fall i 2. deild. Því tókst að forðast fall og í gærkvöld lék Frank McLin- tock sinn 610 deildaleik — 17 ár eru nú síðan þessi margfaldi skozki landsliðsmaður kom fram á sjónarsviðið hjá Leicester. Sautján ár er langur tími í knatt- spyrnunni. -Nú eru taldar miklar líkur á að McLintock haldi til Leicester —liðið sem hann hóf feril sinn hjá. Jimmy Bloomfield hefur sagt starfi sínu lausu þar — sakað klúbbinn um ónóga framagirni. Hundruð áhangenda QPR þustu niður á Loftus Road í Lundúnum til að fagna McLin- tock — og rifu skyrtuna af honum. En Johnny Giles kvaddi ekki jafnglæsilega. Liðið sem hann kom f 1. deild á undraverð- an hátt — WBA tapaði 0-4 í Birmingham fyrir Aston Villa. Þar skoraði Andy Gray þrjú mörk fyrir Villa — og Johnny Gile heldur til írlands. WBA gat ekki fallizt á skilyrði hans fyrir því að vera áfram í Englandí — og þvi fór Giles. Hann tekur nú við frægu írsku liði — Shamrock^r. Rovers. ■ *r Johny Giles — heldur nú til trlanas. Lolli, Polli og þú unnuð ýmis kraftaverk svo þú hlýtur að geta það á ný. __________________ ‘v ) ^ ' v ✓/ Doro nf hn A meðan kemur par á völlinn, Nlta “ Hörkukeppni í Graf arholti Um sl. helgi fór fram í Grafarholti forkeppni I höggleiksformi fyrir hvíta- sunnukeppni Golfklúbbs Reykjavfkur. Keppt er um þann bikar sem elztur mun vera verðlaunagripa fyrir golf á tslandi. 33 keppendur mættu til leiks, 16 beztu komust áfram en framhald keppninnar verður í formi holukeppni. Hörku- barátta varð um efstu sætin en eftir þær 18 holur sem leiknar voru á laugardag voru tveir' keppendur í fyrsta og öðru sæti með jafnmörg nettóhögg, eða 66, en það voru þeir Halldór B. kristjánsson og Guðmundur Vigfússon, Þeim nægðu ekki færri en 36 holur til viðbótar til að skera úr um það hvor þeirra skyldi hljóta fyrsta sætið en svo fór þó að lokum að Halldór kom inn á sjö höggum betra skori en Guðmundur. I þriðja sæti varð Ragnar Ólafsson en hann lék stórglæsi- lega á laugardag, átti t.a.m. 6, „birdie“ í hringnum. Annars varð röð þriggja efstu þessi: 1. Halldór -B. Kristjánsson, 81 högg (forgjöf 15)= 66 2. Guðmundur Vigfússon, 86' högg (forgjöf 20) =66 3. Ragnar Ólafsson, 72 högg (forgjöf 3) = 69 Keppninni lýkur um hvíta- sunnuna. rl. Dunlop opin íLeirunni um hvítasunnu Um næstu helgi.íer fram á golfvelli Golfklúbbs Suður nesja í Leiru opið mót I golfi, Dunlop-mótið. Mótið hefst á laugardag, 28. mai kl. 9.00, og verða leiknar 36 holur með og án forgjafar. Sunnudaginn 29. maí verða seinni 18 holurnar leiknar og hefst keppnin einnig kl. 9.00 þann dag. rl. Leynir með öf lugt starf Golfklúbburinn Leynir á Akranesi kaus nýlega stjórn sína fyrir yfirstandandi ár. Eftirtaldir menn hlutu kosn- ingu: Formaður: Þorsteinn Þorvaldsson, varaformaður: Janus Bragi Sigurbjörnsson, gjaldkeri: Einar Jónsson, ritari: Hannes Þorsteinsson og meðstjórnandi: Gunnar Júlíus- son. Stjórnln hefur þegar hafið starf af fullum krafti. Meðlim- um hefur verið send kapp- leikjaskrá og upplýsingar um fyrirhugaða starfsemi á sumr- inu. Ennfremur hefur byrjend- um, eða nýliðum, verið sendar upplýsingar um það, hvernig þeir geti hafið golfleik. Síðast en ekki sízt er þess að geta, að Hannes Þorsteinsson, fyrr- um Íslandsmeistari í golfi, hefur verið ráðinn til að halda námskeið fyrir byrjendur, en námskeiðin eru hafin og standa til 6. júní. Námskeið þessi eru án endurgjalds og lána Leynis- félagar goifáhöld til kennsl- unnar, endurgjaldslaust. rl.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.