Dagblaðið - 09.06.1977, Qupperneq 6
6
DAÍiBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. JUNÍ 1977.
Samveldisráðstef nan í Bretlandi:
Varað við auknum
áhrifum kommúnista
í þriðja heiminum
ilarðar deilur uröu þegar á
fyrsta degi samveldisráðstefn-
unnar í London í gær. Forsætis-
ráðherra Singapore, Lee Kuan
Yew, hélt harðorða ræðu þar sein'
hann varaði við auknum áhrifum
kommúnista i Suðaustur-Asiu,
Afríku og Suður-Ameríku.
Talsmaður ráðstefnunnar kvað
nokkra þátttakendur frá pólitiskt
óháðum lcindum hafa tekið undir
orð Lees um valdabaráttuna í
heiminum. — Fulltrúar 33ja
landa taka þátt i ráðstefnunni.
Upphaflega áttu löndin að vera
35. Gestgjafarnir, — Brelar, —
hafa hins vegar lýst fulltrúa
Uganda, Idi Amin, óvelkominn til
landsins, eins og frægt er orðið.
Fulltrúi Seyehelleyja hefur ekki
látið sjá sig. — Þjóðhöfðingjanum
þar var steypt af stóli síðasta
sunnudag, er hann var farinn af
stað til Bretlands til að sitja sam-
veldisráðstefnuna.
Fundahöldin standa yfir í átta
daga. Stjórnandi þeirra, James
Callaghan forsætisráðherra, sagði
í setningarraæðu sinni i gær
meðal annars að bilið milli rikra
þjóða og fátækra væri eitt alvar-
legasta fyrirbæri aldarinnar og
bæri leiðtogunum ófagurst vitni.
1 dag fara fram umræður um
Ródesíu og ástandð í suðurhluta
Evrópu. Talið er að Ródosiumál-
efnið sé eitt það heitasta á
ráðstefnunni sem á þó tæpasteftir
að hafa nein afgerandi áhrif á
gang heimsmálanna. — Kenneth
Kaunda forseti Zambíu hefur
gefið í skyn, að leiðtogar Afríku-
ríkja muni fara fram á það við
Breta að hætt verði að flytja olíu
til landsins.
1»
BILL EÐA MÓTORHJÓL? —
Hver skyldi trúa því, að þetta
fvrirbæri nái 160 kílómetra
hraða á klukkustund? Svo er
það nú samt. Bandarískur hug-
vitsmaður, búsettur í Ohioríki
setti farartækið saman úr
Volkswagen árgerð 1968 og
Triumph mótorhjóli og lét skrá
það sem mótorhjól. Er ekki
þarna einmitt kominn draumur
mótorhjólaga-janna að fá þak
yfir höfuðið. þegar veður gerir
mótorhjólaakstur frekar
óyndislegan?
í.-«t0Í*5ÍÍr
Lyftari
Til sölu notaður 4,5 tonna lyftari með
vökvaútfærslu á göfflum, sjálfskiptur
og í mjög góðu lagi. Hagstætt verð.
Uppl. hjá Eyjólfi Kolbeins í síma
85533 og eftir kl. 19 í kvöld í síma
40743.
Skæruliðar drepnir
Átta vinstrisinnaðir skæruliðar
— þeirra á meðal tvær konur —
létust í skotbardaga við öryggis-
herinn í E1 Salvador í gær. Átökin
urðu í San Miguel, sem er um það
bil 140 kílómetrum austan við
höfuðborgina, San Salvador.
Þetta eru fyrstu meiri háttar
átökin í landinu, sem sagt er frá,
siðan vinstrisinnar rændu utan-
ríkisráðherra landsins, Mauricio
Borgonovo Pohl í apríl síðastliðn-
um. Hann var síðan tekinn af lífi
er yfirvöld i E1 Salvador urðu
ekki við kröfum mannræningj-
anna um að sleppa félögum þeirra
úr fangelsi.
Frú Trudeau ísjónvarpsviðtali
Þykir fyrir þvíað hafa
valdið eiginmanni
sínum svívirðu
- en kennir fjölmiðlum um hvemig for
Margaret Truaeau fraíar-
andi forsætisráðherrafrú í
Kanada sagði í sjónvarps-
viðtali í Bandaríkjunum í nótt,
að hún hefði sett blett á
sambúð sína og manns síns,
Pierre Trudeau, með því að búa
á sama hóteli og hljómsveitin
Rolling Stones á dögunum.
„En þetta atvik var raunar
mjög, mjög saklaust,“ sagði
frúin, sem kvað sig hafa metið
aðstæðurnar rangt. — Upp úr
þessu lenti frú Trudeau milli
tannanna á umheiminum, eins
og frægt hefur orðið. Forsætis-
ráðherrann, maður hennar til-
k.vnnti síðan í lok síðasta
mánaðar að þau hjónin hefðu
ákveðið að skilja.
Frú Trudeau kom fram í
þætti ABC-sjónvarps-
stöðvarinnar „Good Morning
America“.’Hún sagði jafnframt
að dauði Aliu drottningar í Jór-
daníu hefói haft mikil áhrif á
sig og átt þátt í ákvörðun nenn-
ar að helga sig ljósmyndun.
„Við Alia vorum nanar vtu-
konur,“ sagði Margaret
Trudeau. „Við dauða hennar
varð mér ljóst í fyrsta skipti, að
þú getur ekki ávallt dregið það
til næsta dags, sem þig langar
til að gera í dag. Það kemur
nefnilega stundum fyrir að það
er enginn næsti dagur.“
Spurningunni um, hvort
nokkurt samband væri milli
hennar og Mick Jagger, söngv
ara Rolling Stones, neitaði frú
Trudeau algjörlega. Ekkert
hefði gerzt frekar en að hún
hefði farið á hljómleika hljóm-
sveitarinnar sem aðdáandi og
ljósmyndari.
Hún kvaðst harma það að
hafa valdið eiginmanni sfnum
svívirðu, en....
„það var ekki ég sem olli
henni,“ sagði hún, „heldur fjöl-
miðlar og af þeirri reynslu
lærði ég fjölmargt.“
Tjald- og h jólhýsasvæðin
á Laugarvatni verða opnuð almenn-
ingi föstudaginn 10. júní 1977.
Tjaldleyfi og almennur feróamanna-
varningur til sölu í tjaldmiðstöðinni.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
meðferð áfengis er bönnuð á útivistar-
svæðunum og í tjaldmiðstöðinni.
Tjaldmiðstöðin Laugarvatni
Framhaldsdeildir
Ákveðið er að framhaldsdeildir starfi
við GRUNNSKÓLANN í Stykkishólmi
næsta skólaár.
Námsbrautir:
Almennt bóknám.
Heilsugœslubraut.
Viðskiptabraut.
Heimavist verður starfrækt við skól-
ann ef næg þátttaka fæst. Umsóknir
sendist skólastjóra sem veitir allar
nánari upplýsingar. Skólanefnd.