Dagblaðið - 09.06.1977, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDACUR 9, JtJNÍ 1977,
Korkurinn íhugar að
áfrýja til Hæstaréttar
— harðasta f íkniefnadómi til þessa
Christopher Barbar Smith —
Korkurinn — hefur nú tveggja
vikna frest til að ákveða hvort
hann áfrýjar til Hæstaréttar
dómnum sem kveðinn var upp
yfir honum í sakadómi i ávana-
og fíkniefnamálum í fyrradag.
Dóminn kvað upp Asgeir
Friðjónsson sakadómari.
Smith var dæmdur i fjögurra
ára fangelsi og níu hundruð
þúsund króna sekl fyrir stór-
felldan innflutning og dreif-
ingu ávana- og fíkniefna fyrir
tveimur árum .lafnframt
útskurðað aðgera bæri upptækt
andvirði samtals 2.a4ö.462.00
íslenzkra króna. Er megnið af
þeim peningum á tveimur
bankareikningum i Bandaríkj-
unum, skv. síðustu upplýsing-
um sem sakadómur í ávana- og
fíkniefnum hefur fengið að'
vestan. Einnig skal Smith
greiða samtals 200 þúsund
krónur í málskostnað.
Verði níu hundruð þúsund
króna sektin ekki greidd innan
fjögurra vikna kemur sex
mánaða fangelsi í hennar stað
en til frádráttar fangelsisvist-
inni kemur gæzluvarðhald
Smiths, sjötíu og átta dagar.
Eins og fyrr segir hefur
Smith nú tveggja vikna frest til
að ákveða hvort hann unir
dómnum eða áfrýjar til Hæsta-
rétlar. Siðan hefur ákæru-
valdið — ríkissaksóknari —
þriggja mánaða frest til að
ákveða hvort það telur ástæðu
til áfrýjunar. Kjósi hvorugur
aðilinn að áfrýja dómi undir-
réttar fer málið til dómsmála-
ráðuneytisins sem felur tiltekn-
um sakadómara að sjá um fulln-
ustu dómsins. Endanlegur dóm-
ur í málinu getur því legið fyrir
— eða ekki legið fyrir fyrr en
eftir marga mánuði þegar máls-
nteðferð fyrir hæstarétti er
lokið.
Korkurinn situr nú í fangelsi
hersins á Keflavíkurflugvelli
og afplánar fjögurra ára fang-
elsisdóm sem hann hlaut þar
nýlega fyrir fíkniefnamisferli.
ÓV
REYKJAVIK
638 Hornfirðingar um móttökuskilyrði
útvarps/sjónvarps:
Lengi léleg — en f ara
þó hríðversnandi!
Spánn:
íslenzkirfarar-
stjórar slasast
íbflslysi
Tveir íslenzkir fararstjórar hjá
Utsýn og konur þeirra slösuðust í
árekstri í Torrimolinos á Spáni
aðfaranótt sl. föstudags. Þrennt
meiddist óverulega en önnur
konan lærbrotnaði, skaddaðist á
hendi og skrámaðist eitthvað
meira. í morgun lá ekki ljóst fyrir
hjá vinnuveitendum þeirra með
hverjum hætti slysið bar að hönd-
um og ekki var vitað hvort konan
er enn á sjúkrahúsi en hún er á
góðum batavegi.
G.S.
Ekki færri en 638 útvarps- og
sjónvarpsnotendur í Höfn á
Hornafirði hafa sent mennta-
málaráðherra bréf þess efnis að
þeir sætti sig ekki lengur við þau
móttökuskilyrði sem þar eru fyrir
hendi. Muni þeir ekki sætta sig
við það öllu lengur. að greiða
sömu gjöld fyrir þjónustu Ríkis-
útvarpsins og til dæmis íbúar
Reykjavikur sem búi við örugg
móttökuskil.vrði.
Segir i bréfi til Vilhjálms
Hjálmarssonar menntamálaráð-
herra að lengi hafi móttökuskil-
yrðin verið slæm en upp á síð-
kastið hafi þau þó virzt fara hríð-
versnandi.
Telja Hornfirðingarnir að
bætur á dreifikerfinu eigi að hafa
algjöran forgang í framkvæmdum
útvarps og sjónvarps á næstunni.
JBP
NÚTÍMA TRÚBOÐ
Mormónar halda áfram að boða
Islendingum trú sína. En öldin er
nokkuð önnur frá því að margir
íslendingar tóku trúna á liðinni
öld. Nú stunda mormónatrúboðar
Stór-Reykjavíkurmarkað, þar er
meira af fólkinu. Þeir setja upp
myndasýningar á Lækjartorgi,
hringja dyrabjöllum og bjóða
heimafólki upp á kvikmynda-
sýningu. Og ekki lofa Mormónar
lengur gulli og grænum skógum f
Saltvatnaborginni. Þessi maður
var að vekja athygli á mormóna-
trúnni í göngugötunni. Ekki
vitum við gjörla hversu mörgum
glötuðum sálum hann bjargaði
þennan sólríka júnídag. — DB-
mynd Hörður.
Yfir 80 milljóna
hagnaður hjá Sam
vinnutryggingum
VARAHLUTIR
í jeppana eru nú sífellt að berast
Rúmlega áttatíu milljóna
hagnaður varð hjá Samvinnu-
tryggingum á síðasta ári. Iðgjöld
jukust um 25,4 af hundraði og
námu um 1.7 milljörðum en
greiðslur vegna tjóna lækkuðu
>um 11.6 af hundraði og urðu um
1.3 milljarðar.
Rekstur ábyrgðartrygginga
bifreiða gekk svo vel að i f.vrsta
skipti um árabil var talið fært að
endurgreiða tryggingatökum
tekjuafgang. Fimm prósent af
nettóiðgjöldum ársins. eða 21.6
milljón voru þvi endurgreiddar
til bifreiðaeigenda sem tr.vggja
bifreiðir sínar hjá félaginu.
610 bifreiðaeigendum var veitl
ókeypis ársiðgjald fyrir 10 ára
tjónlausan akstur, en iðgjöld
þessi hefðu ella orðið 13,1
milljón.
Rekstrarafgangur varð einnig
hjá líftryggingafélaginu Aiui-
vöku, 8.7 milljónir, og voru 5.1
milljón lagðar í bönussjóð. Þá
varð rekstrarafgangur hjá Endur-
tryggingafélagi Samvinnutrygg-
inga 6.8 milljónir og hluthöfum
þar greiddur 10"{, arður.
Iðgjöld siðasta árs hjá þessum
félögum þremur námu samtals
unt 2,4 miiljörðum og jukust um
27 af hundraði en heildartjón
ársins námu aftur á móti samtals
um 1,9 milljörðum og lækkuðu
um 3 af hundraði.
Þetta kom fram á sameiginleg-
um aðalfundi félaganna sent var
haldinn fyrir skömmu. Þar var
samþykkt að einum fulltrúa frá
starfsmannafélagi félaganna
skyldi framvegis heimiluð seta á
stjórnarfundum þeirra. Sam-
þ.vkkt var áskorun til Alþingis unt
að lögum um brunatryggingar
fasteigna yrði breytt þannig að
þ;er verði gefnar frjálsar. HH
Dagblað
án ríkisstyrks