Dagblaðið - 09.06.1977, Síða 12
I
DAÍJBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. JÚNl 1977.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1977.
13
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
iþróttir
Iþróttir
iþróttir
iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Stefnir í íslenzkan
keppni við Dani
— Hreinn varpaði 20.62 íkúlu og
Erlendur Valdimarsson sigraði í
kringlukasti — Friðrik Þór stökk
7.41 f langstökki
Það stefnir í íslen/kan sigur í
landskeppninni við Dani i
köstum, sem hófst á Laus;ar-
dalsvelli í gær og lýkur í kviild.
Þeir Hreinn Halldórsson, KR,
og Óskar Jakobsson, ÍR,
tryggðu tvöfaldan sigur í kiilur
varpi og Erlendur Valdimars-
son, KR, varð sigurvegari í
kringlukasti. Óskar þar þriðji,
þannig að eftir fyrri daginn
hafði ísland hlotið 13 stig, en
Danmörk 7. í unglingakeppn-
inni hafði ísland forustu — og
var það óvænt. Stigin (>-4, en
líkur að Danir jafni þar metin í
kvöld. Þá verður keppt í spjót-
kasti og sleggjukasti — og þeir
Erlendur og Óskar hafa góða
möguleika að ná inn stigum
þar, sem ættu að nægja til sig-
urs.
Hreinn var ákaflega öruggur
í kúluvarpinu — og oft flaug
kúlan yfir 20 metra strikið,
jafnvel í heldur misheppnuðum
köstum. Hann varpaði lengst
20.62 metra og var því aðeins 8
sm frá íslandsmeti sinu. Fimm
kiist hans voru 20 metrar eða
meir. Það st.vt/ta 19.98 ml! —
Nú fer að verða skamnrt í, að
íslandsmetið verði yfir 21
metri. Óskar Jakobsson, piltur-
inn tvítugi, lét ekki sinn hlut
eftir liggja. Jafnaði sinn bezta
árangur, 17.56 metra. Daninn
Henningsen varð 3ji með 16.26
m og Kjeld Nielsen. rak lestina
með 14.94 m. Oskar Reykdals-
son vann óvænt yfirburðasigur •
í unglingakeppninni. Varpaði
13.74 m sem er hans bezta, en
Daninn Jan Hansen varpaði
12.80 m.
I kringlukastinu í lands-
keppninni hafði Erlendur yfir-
burði. Kastaði lengst 58.14 m.
Öskar var ekki nógu afslapp-
aður í hringnum og varð að láta
sér nægja þriðja sætið. Kastaði
55.60 m, en Steen Hedegaard
varð annar rétt á undan Oskari
með 55.66 m. 1 fyrsta kasti sínu
var Öskar yfir 58 m en gerði því
miður ógilt. Peder Jorl Hansen
varð fjórði með 49.82 m. I ung-
lingakeppninni sigraði Þráinn
Hafsteinsson HSK, kastaði
44.30 tn, en Daninn Jan Hansen
40.82 m.
Keppt var i nokkrutn auka-
greinum og þar bar hæst
árangur Kriðriks Þórs Óskars-
sonar, ÍR. Hann stórbætti
árangur sinn. Stökk 7.41 m og
er því alveg að ná íslandmeti
Vilhjálms Einarssonar 7.46 m.
Meðvindur var 1,6, þegar
Friðrik Þór náði 7.41 m, en má
vera 2 m, svo löglegt sé. Hann
átti bezt áður löglegt 7.16 m.
Jöhann Pétursson, UMSS, varð
annar, með 6.34 m eða nokkuð
ft á sínu bezta.
Urslit í öðrum greinum urðu
þau, að Sigurður Sigurðsson, Á,
sigraði í 100 m hlaupi á 10.9
sek. Magnús Jónasson, Á, varð
annar á 11.1 sek. og Björn
Blöndal, KR, fékk sama tíma.
Þórdís Gísladóttir, IR, stökk
1.68 tn i hástökki, Valbjörn Þor-
láksson, KR, 3.75 m í stangar-
stökki. Thelma Björnsdóttir,
UBK, sigraði í 3000 m á 11:02.6
mín. Einar P. Guðmundsson,
FH, i 1500 m hlaupi á 4:14.6
mín. sem er bezti tími hins
unga hlaupara. Gunnar Sig-
urðsson, 1"H, hljóp á 4:15.2
mín., sem einnig er hans bezta.
Ingunn Einarsdóttir, IR,
sigraði í 200 m hlaupi á 25.1
sek. en Sigurborg Guðmunds-
dóttir, A, hljóp á 26.0 sek. I 400
m grindahlaupi sigraði Þor-
valdur Þórsson, ÍR, á 56.6 sek.
og á áreiðanlega eftir að láta að
sér kveða í framtíðinni á þess-
ari vegalengd.
Keppnin heldur áfram í
kvöld á Laugardalsvellinum og
hefst kl. 20.30.
KR SK0RAÐIUR SIÐUSTU SPYRNUNNI
—og sigraði Blikana 2-1 í Kópavogi
Hreinn Halldórsson — 20.62. DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
Hreint ótrúleg mistök kostuðu
Breiðablik bæði stigin gegn KR i
1. deild fslandsmótsins í gær-
kvöld. KR sigraði þá Blikana 2-1 i
Kópavogi og vann þar með sinn
annan sigur. Ósigur í gærkvöld
þýðir í raun að Breiðabliki tókst
ekki að þoka sér nær forustu-
liðum 1. deildar — og Blikarnir
geta engum nema sjálfum sér um
kennt.
Tvö mörk á silfurfati færðu
Blikarnir KR. Breiðablik byrjaði
stórvel — lék laglega knattspyrnu
og knötturinn var látinn ganga.
Tækifærin létu ekki á sér standa
og segja má að fyrstu 20
mínúturnar hafi KR vart komizt
yfir miðju að gagni. Þegar á ll.
mínútu small knötturinn í stöng
KR-marksins eftir fremur laust
skot Heiðars Breiðfjörð af stuttu
færi. Halldór Pálsson varði einnig
vel gott skot af stuttu færi en
markið lá í loftinu.
Og það kohia á 14. mínútu. Eftir
mistök varnarmanna KR á hægri
vængnum brunaði Hinrik Þór-
hallsson upp hægra megin og
sendi fasta sendingu fyrir mark
KR. Þar kom Heiðar Breiðfjörð á
fullu og skoraði með góðu skoti.
1-0.
Og Blikarnir héldu áfram sókn
sinni — 3 25. mínútu átti Heiðar
Breiðfjörð hörkuskot af 20 metra
færi — efst í markhornið hægra
megin en Halldór Pálsson mark-
vörður KR bjargaði vel í horn. KR
kom smám santan inn í myndina
— án þess þó að ná að skapa sér
hættuleg marktækifæri. Staðan í
leikhléi var því 1-0.
Blikarnir gerðu afdrifarík mis-
tök í síðari hálfleik. Ætluðu sér
bókstaflega að sitja á naurnri
forustu sinni — gáfu KR eftir
miðjuna. Sókn KR þyngdist því til
muna. Örn Óskarsson var færður
frarn — og sóknarbroddurinn
jókst verulega.
KR-ingum tókst að knýja fram
nokkrar hornspyrnur og sérstak-
lega var hætta er Hálfdán Örlygs
son tók þær frá hægri. Bæði var
sólin lágt á lofti og vindur stóð af
norð-austri í bak KR-inga.
A 16. mínútu tók Hálfdán
hornspyrnu frá hægri. Hann
sendi knöttinn vel fyrir — Ólafur
Hákonarson átti misheppnað
úthlaup, náði ekki til knattarins
sem fell beint á kollinn á Erni
Öskarssyni sem skallaði auðveld-
lega í netið af stuttu færi. En
markið verður raunverulega að
skrifast á reikning Ólafs, 1-1.
A næstu mínútum fékk KR
dæmda röð hornspyrna og mark-
ið virtist liggja í loftinu en vörn
Breiðabliks náði að lægja
storminn. Blikarnir komu aftur
inn í tnyndina — og leikurinn
leystist upp í miðjuþóf. Bæði lið
virtust sætta sig fyllilega við jafn-
tefli — hvorugt náði að skapa sér
tækifæri; sóknarleikurinn mátt-
litill.
A 45. mínútu síðari hálfleiks
spyrntu KR-ingar langt fram —
engin hætta á ferðum. Einar
Þórhallsson hljóp á eftir knettin-
um og ætlaði að senda til mark-
varðar en ntjög klaufalega missti
hann knöttinn í horn. Hálfdán
Örlygsson tók hornspyrnuna —
sendi fremur lága sendingu fyrir
markið og engin hætta virtist á
ferðunt — enginn KR-ingur
nálægur. Olafur . Hákonarson
ætlaði að góma knöttinn en
ótrúlega klaufalega missti hann
knöttinn í gegn um hendur sér —
blindaðist af sólinni, 1-2.
Blikarnir höfðu ekki tíma til að
byrja á miðju aftur. KR-ingar
fögnuðu — þó hissa væru ef til
vill. Övænt tvö stig í höfn.
Enn máttu Blikarnir sætta sig
við ósigur vegna mistaka. Ölafur
Hákonarson stóð í marki
Blikanna — og hann gerði tvær
skyssur — báðar kostuðu mörk.
Vörn KR var þétt i leiknum við
Blikana—og bezlí hluti liðsins.
Haildór Pálsson var öruggur í
niarki.
Leikinn dæmdi Þorvarður
Björnsson -h. halls.
Sviar til Argentínu
Sviar tryggðu farseðil sinn til
Argentínu í Stokkhólmi í gær-
kvöld með góðum sigri yfir Sviss,
2-1. Þar með hafa Svíar unnið alla
leiki sína í riðlinum. Eftir mark-
lausan og fremur slakan fyrri
hálfleik náðu Svíar frumkvæðinu
í síðari hálfleik með góðum leik.
Tæplega 45 þúsund áhorfendur
fögnuðu innilega þegar Sjöberg
náði forustu á 69. mínútu með
góðu marki. Sjö mínútum síðar
jók Svíþjóð forustuna er Bo
Böerjson skoraði, 2-0.
Tíu mínútum fyrir leikslok
náði Sviss að minnka muninn er.
Peter Risi skoraði en það breytti
litlu — Svíþjóð hefur tryggt far-
scðilinn til Argentínu.
Staðan í 6. riðli er:
6
2
0
Svíþjóð 3 3 0 0 6-2
Noregur 2 1 0 1 1-2
Sviss 3 0 0 3 2-5
ítalir sigruðu í Helsinki
Italía steig mikilvægt skref í átt til
Argentínu er ítalir sigruðu Finna i
Helsinki 3-0. Þar með hafa ítalir hlotið
6 stig úr þremur leikjum — sama
stigafjölda og Englendingar er leikið
hafa einum leik meira.
En þessi sigur gefur litla mynd af
gangi leiksins. Finnar sóttu mjög stíft í
fyrri hálfleik og fengu til að mynda 12
hornspyrnur gegn 3 ítala. En leikni
ítala réð í lokin. Þeir náðu óvænt for-
ustu á 10. mínútu er Claudio Gentile
skoraði með skalla. Roberto Bettega
jók forustu ítala í 2-0 á 57. mínútu
einnig með skalla. Þriðja mark Itala
skoraði Romeo Benetti á 82. minútu.
Þrátt fyrir að lið Finna hafi sótt mun
meira og virzt betur skipulagt lioföiv
þeir ekki leikmenn til að koma knett-
inum í netið. „Væri ég framkvæmda-
stjóri Ítalíu væri ég mjög ánægður með
að vinna með þremur mörkum þrátt
fyrir jafnslakan leik,“ sagði Don Revie
eftir leikinn. Staðan í riðlinum er nú:
Ítalía 3 3 0 0 9-2 6
England . 4 3 0 1 11-4 6
Finnland 5 2 0 3 10-4 4
Luxemburg 4 0 0 4 2-17 0
England hélt jöfnu í Rio
England og Brazilía skildu jöfn í Rio
de Janeiro í gærkvöld, 0-0. Þessi úrslit
eru mikil uppreisn fyrir England eftir
niðurlægingu síðustu leikja — m.a.
tveggja ósigra á Wembley.
Englendingar réðu lögum og lofum í
fyrri hálfleik — og Stuart Pearson,
Trevor Francis og Kevin Keegan
misstu auðveld tækifæri. Þannig skaut
Pearson beint í fætur markvarðar
Brazzanna er auðveldara virtist að
skora.
En Brazzarnir tóku öll völd í síðari
hálfleik hvattir af 200 þúsund áhorf-
endum. Gil skoraði raunar — en
markið var dæmt af og skömmu síðar
bjargaði Clemence af tám hans eftir
slæma sendingu Francis til mark-
varðar.
Clemence var hreint frábær í marki
Englands — og lukkan var honum
einnig fylgispök og vörn Englands var
mjögtraust.
Þá léku heimsmeistarar V-
Þýzkalands í Montevideo — höfuðborg
Uruguay. Enn sönnuðu V-Þjóðverjar
mátt sinn með góðum sigri, 2-0. Þeir
Flohe og Dieter Muller skoruðu mörk
V-Þýzkalands, en staðan i leikhléi var
1-0.
„Almcnn
rai>ii
\* , Ly
íi
aictiii
oIIiiiii sem leiDast
Nú eiga allir sem hyggja á feröalög kost á afsláttar-
fargjaldi allt áriö án þess að fara í skipulagða hópferö,
Snúiö ykkur til söluskrifstofa okkar, umboösmanna eöa
ferðaskrifstofanna, og fáiö nánari upplýsingar, um
!i
P
g
og án þess aö vera félagsbundinn 1 einhverjum samtökum. ”Almennu sérfargjöldin” áöur en þiö skipuleggiö fríið, og
rp.-| 114. k .r\r\/ r. t ^ t þið muniö komast aö raun um aö þau eru FARGJÖLD SEM
Til viöbotar allt aö 40% afslætti, samkvæmt almennum wnjptttd afi
sérfargjöldum”, veitum viö sérstakan 25% unglingaafslátt,
þeim sem eru á aldrinum 12-22ja ára.
Fargj aldakostnaður fyrir
...-.... ..—.....
n^mi 'j i I
Fargj aldakostnaöur fyrir
hjón með tvö börn til
Hrn errriö Hrvrapu hóAar
Venjulegt fargjald kr:
”4
Kaupmannahöfn London Barcelona
80.960 53.740 71.820 45.840 110.760 65.860
27.220 33,62% 25.980 36,16% 44.900 40,54%
Kaupmannahotn London Barcelona
242.880 161.220 215.460 137.520 335.280 197.580
81.660 33,62% 77.940 36,16% 137.700 40,54%
leiðir. Afsláttur.. 33,62% 36,16% 40,54%
HfffíMC 10FTLEIDIR
ISLANDS
Friðrik í stökki sinu — 7.41. DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
ti-íKi .11.7 — uni/ i